Réttur


Réttur - 01.03.1937, Qupperneq 16

Réttur - 01.03.1937, Qupperneq 16
er þá auðnum skift, — en því verður ekki neitað að nóg er til af honum, svo velmegun gæti verið almenn á Islandi. Af auðmagninu á íslandi eru 108 miljónir kr. í verzluninni, en í skipastól og veiðarfærum aðeins 22 miljónir kr. Með því að afnema gróðamöguleika verzl- unarauðmagnsins verður það knúið yfir í framleiðsl- una, — og það telur skipulagsnefnd atvinnumála einnig nauðsynlegt. Þjóðartekjurnar eru 1934 áætlaðar 97 miljónir kr. Mun það full lágt áætlað. Meðalárstekjur á hvern íbúa í Reykjavík eru 1376 kr., í kaupstöðum frá 702 —940, í sveitum 473—739 kr. Væru tekjur jafnar, ætti því 5 manna verkamannafjölskylda í Reykjavík að hafa 6880 kr., en skýrsla skipulagsnefndar at- vinnumála ber með sér, að meðaltekjur verkamanna í Reykjavík eru 2244 kr. Hinsvegar eru meðaltekjur 1000 hátekjumanna í Reykjavík rúm 11 þús. kr., og eru meðal þeirra einstaklingar, er hafa allt að 98 þús. kr. árstekjur samkvæmt eigin uppgjöf. Þessar tölur allar sýna, hvað hægt er að gera á íslandi, án þess að meining mín sé, þó meðaltekjur og meðaleign séu reiknaðar út, að skipta beri öllu upp jafnt á milli manna, — eins og afturhaldið einu sinni bar okkur á brýn! En aiiður og tekiur íslendinga sem heildar, sanna, að hér gæti öllum HSið vel. Pólitík okkar kommúnista er að láta þá ríku borga og þegar breytt hefir verið samkvæmt henni, hefir meira að segja tekizt að láta hina ríku, erlendu hringa borga, eins og olíuhringarnir voru knúðir til með bílstjóraverkfallinu og Naftasamkeppninni. Og þegar Kommúnistaflokkurinn og bílstjórafélögin geta kom.ið 400,000 kr. ársgreiðslu yfir á útlenda hringa, hvað getur þá ekki íslenzka ríkisvaldið, þegar því er beitt. 16

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.