Réttur - 01.03.1937, Page 27
*
kaup, aukin atvinnu og batnandi tryggingar, sann-
færðu samstundis fólki^ um mátt samtakanna, og
þegar bændur og smáútvegsmenn vegna viturlegrar
stjórnmálastefnu verkalýðsins tækju meir og meir
að líta til hans með virðingu og samúð, þá væri sú
stund heldur ekki fjarri, að meirihluti íslenzku þjóð-
arinnar yrði fylgjandi sósíalismanum og veitti flokki
hans meirihluta í kosningum.
En meðan því takmarki ekki væri náð, að vinna
meiiihluta þjóðarinnar til fylgis við sósíalismann,
— þá yrði flokkur verkalýðsins að einbeita sér á að
framkvæma þá pólitík, sem eg að framan hefi lýst.
Og hún táknar í rauninni að setja á hér á íslandi
yfirráð verkamanna, bænda og smáútvegsmanna á
lýðræðisgrundvelli, í stað yfirdrottnunar hringa,
heildsala og stórútgerðarmanna.
En þar sem slík yfirráð eru auðvitað fallvölt, á
meðan eignarréttur atvinnurekenda helzt á megin-
þorra framleiðslutækjanna ( margra togara, nokk-
urra stórverksmiðja og flestra iðnfyrirtækja, auk alls
smáútvegs og landbúnaðar), þá er vitanlegt, að kröf-
urnar, sem gera verður til verklýðsflokks, eru sér-
staklega miklar.
Stjórnlist verklýðsflokksins yrði að vera í því
fólgin að varðveita um fram allt bandalagið við milli-
stétt sjávar og sveita og einbeita valdi þess banda-
lags gegn hinum sameiginlega óvini þeirra allra,
verzlunarauðvaldinu. Þessvegna yrði hinn sterki og
sameinaði marxistiski flokkur verkalýðsins jafnt að
hafa harðneskju og dirfsku til þess að leiða verka-
lýðinn fram til atlögu gegn auðvaldinu, þegar tím-
inn er heppilegur til kauphækkana og kjarabóta, —
sem og þá djörfung, sem þarf til að segja við fylgj-
endur sína, hvenær nauðsynlegt sé að 'hliðra til, í því
skyni, að varðveita bandalagið við bændur og smá-
útvegsmenn. En hve óumræðilega mikið traust þarf
sá verklýðsflokkur að hafa áunnið sér, sem slíka
27