Réttur


Réttur - 01.07.1982, Síða 6

Réttur - 01.07.1982, Síða 6
einum þætti í störfum ráðstefnunnar, þætti sem hlýtur að vekja til umhugsunar um áhrifavald hinna stóru auðhringa, eða auð-fyrirtækja, á orð og gerðir einstakra ríkisstjórna. Þó að verkefni Hafréttarráð- stefnunnar væru í flestum greinum erfið viðfangs, kom fljótt í ljós, að einn þáttur þessa margslungna verkefnis var erfiðari viðfangs en aðrir þættir. Hér var um að ræða það verkefni að setja reglur um nýtingu alþj óðahafsbotnssvæðisins. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafði lýst yfir, að engin ein þjóð gæti gert tilkall til þessa svæðis, því svæðið væri sameign alls mannkyns. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafði einnig ákveðið samhljóða, að þetta svæði ætti að nýta fyrst og fremst til hagsbóta fyrir þróunarlöndin, fyrir hinar fátæku þjóðir. En þegar gengið var til þessa verkefnis, kom í ljós, að hinir öflugu auðhringar í Bandaríkjunum, höfðu ætlað sér að ná drjúgum hagnaði af vinnslu málma af þessu svæði og vinnslu í olíu. Það tók mörg ár í störfum Hafréttarráðstefnunnar að glíma við þessi vandamál. Kröfur bandarísku auðhringanna voru miklar og Ijóst var að fulltrúar Bandaríkjastjórnar á ráðstefnunni áttu í vök að verjast, því annars vegar var áhrifavald auðfélaganna, en hins vegar var samþykkt Sameinuðu þjóðanna, sem Bandaríkjastjórn hafði staðið að. Eftir því sem deilur um þessi mál stóðu lengur á Hafréttarráðstefnunni, kom skýr- ar í ljós að hér var tekist á um réttindi og hagsmunamál þriðja heimsins og gróða- kröfur voldugustu auðfélaga Bandaríkj- anna og nokkurra hliðstæðra auðfélaga í Evrópu. Að lokum tókst þó samkomulag í þess- um langvinnu deilum. Þróunarríkin gáfu all-verulega eftir og fulltrúar Bandaríkja- stjórnar gerðu samkomulag um málamiðl- unarleið. Þegar þetta samkomulag var gert, var Carter enn forseti í Bandaríkj- unum. En samkomulagið stóð ekki lengi. Þeg- ar stjórn Ronalds Reagans tók við völd- um, lýsti hún því yfir, að hún myndi ekki standa við þetta samkomulag Carter- stjórnarinnar. Ljóst var að með Reagan-stjórninni höfðu auðhringarnir styrkt sína stöðu og þeir gerðu því enn nýjar kröfur um réttindi sér til handa og á kostnað þróun- arþjóðanna. Og enn þann dag í dag stendur málið þannig, að Bandaríkjastjórn neitar að gerast aðili að þeim hafréttarsáttmála sem um 140 þjóðir hafa fallist á. 134

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.