Réttur - 01.07.1982, Blaðsíða 13
3.1.1
Dæmi: „Vandræðagemlingarnir“
Hver þekkir ekki hópinn sem er á móti
öllu, einkum ef þeim finnst þau beitt
valdi. Andstöðu sína láta þau í ljósi með
ákveðnu hátterni, og oft hárgreiðslu og
klæðaburði („I hate school“ eða nöfn á
eiturlyfjum skrifuð á úlpuna). Pau halda
stíft hópinn í klíkunni sem er í reynd
undirstaða og uppspretta andstöðunnar.
Þeim er lífsnauðsynlegt að hittast daglega
(það er kannski það eina sem hvetur þau
til að mæta í skólann, mega ekki missa af
neinu!), þau þróa með sér sérstakan
„ofsalega töff“ talsmáta og framkomu.
Það er hlegið að öllu. Mest gaman að fara
um göturnar og gera smá vandræði. Káfað
er á öllum hlutum og hrindingar eru
tjáningarmáti. Lög í hópnum eru að alls
ekki má kjafta frá, en þau lög eru oft
brotin og virðist í reynd mega brjóta. í
skólanum reyna þau í lengstu lög að koma
í veg fyrir að vera látin vinna, þau
„misskilja", snúa út úr og eru óþolinmóð.
Hvert pennastrik er kvöl. Þau finna ekki
gleði í einstaklingsvinnu í rólegheitum.
Hámarkið er að vera á skrá.
Hópnum er mikið atriði að sýna kúrist-
unum og kennurunum að hann er aðgreind-
ur frá skólanum, lifir og hrærist í öðrum
og „æðri“ lífsstíl, hinum „raunverulega
141