Réttur


Réttur - 01.07.1982, Síða 16

Réttur - 01.07.1982, Síða 16
að hlusta og horfa á. En þeim er ekki ljóst að skólinn tilheyrir sömu stétt eða menn- ingararfleifð og þau og m.a. þess vegna aðlagast þau þokkalega vel. Peir „lélegu“ í skólanum trúa því að þeir séu mislukkaðir og að mistök þeirra stafi bara af þeirra eigin aumingjaskap. Peir vita ekki að kerfið sinnir þeim ekki. Peir vita ekki að skólinn hefur sem mark- mið að viðhalda menningu eða menning- ararfleifð sem er ekki þeirra. 3.3 Kynbundin mismunun Við upphaf skólagöngu eru stelpurnar betri en strákarnir. Verkefnin, sem eru lestur, föndur og rólegir leikir, höfða frekar til reynslu stelpnanna. Pað líður smá tími þangað til strákarnir sjá námið sem karlmannlegt verkefni og hluti þeirra fer að tengja námið frama síðar í lífinu. Pað líður líka smá tími þangað til stelp- urnar skilja að vinna er ekki þeirra aðal- takmark og að það er fremur ókvenlegt að streða of mikið eða að ná góðum árangri. Rannsóknir erlendis hafa sýnt þessa afturför eða stöðnun stelpna á ákveðnu skeiði unglingsáranna. Að sjálf- sögðu verður skólanum ekki einum kennt um þessa stöðnun, en ljóst er að hann gerir ekkert til að fyrirbyggja hana eða vinna gegn henni. Trúlegt er að skólinn örvi stöðnunina frekar með vali á náms- efni, mati á greinum, karlkyns kennurum (stelpurnar hafa færri samkynja fyrir- myndir þegar ofar dregur í skólakerfinu) og annars konar væntingum til strákanna. Til að skýra þennan þátt nánar vil ég nefna nærtækt dæmi. Pað er mjög mikil- vægt fyrir hvern einstakling að finna sinn stað í fortíð jafnt sem nútíð. Sagnfræði, eins og hún hefur verið iðkuð lengst af, hefur að langmestu leyti beinst að sögu hvítra karlmanna, karlkynseinstaklinga og verka þeirra er getið. Þar eru með taldir landvinningar og stríð sem talin eru meðal helstu mótandi afla sögunnar. Kvenna er sárasjaldan getið, hvað þá að tíunduð séu afrek verkalýðsstéttarinnar — karla og kvenna; hvítra, svartra og gulra — sem í reynd hefur skapað söguna. Þessi takmörk sögukennslunnar hafa án efa haft djúptæk ómeðvituð áhrif á sjálfs- vitund stúlkna af öllum stéttum og drengj a úr verkalýðsstétt. (Ég fyrir mitt leyti minnist þess hve mikil uppljómun það var fyrir mig þegar ég las lítið kver um kvennasögu og þegar mér varð ljóst að konur höfðu líka skapað list og skrifað bókmenntir). Pað hefur verið sagt að skilyrði þess að skilja sjálfan sig sé að gera sér grein fyrir sögu sinni. Fyrst þegar menn finna fast land undir fótum í þeim efnum, sé þroska- skilyrðum fullnægt. (Ég man líka hvernig áhrif öll sveitaljóðin og sveitasögurnar sem fylltu lestrarbækur minnar kynslóðar höfðu á mig, borgarbarnið. Sérstöðu borgarbúa var þar ekki gerð skil). Hér hefur í fáum orðum verið farið yfir meðhöndlun duldu námsskrárinnar á stéttum og kynjum. 4.0 Vísir að niðurstöðu Margt bendir til þess að ríkisskólinn taki ekki tillit til mismunandi menningar- arfleifðar stéttanna, heldur viðhaldi þeirri menningu sem er við völd. Skólinn hefur það sem yfirborðsmarkmið að allir fái not- ið sín til fulls. Pað er að mínu mati bara rómantík og afneitun á sannleikanum um

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.