Réttur


Réttur - 01.07.1982, Síða 23

Réttur - 01.07.1982, Síða 23
Jóhannes úr Kötlum: Níundi nóvember / Heill þér sól! í austri eldar rísa, ákaft bláan morgunhimin lýsa, öllum oss til lífsins veginn vísa, — vorsins heiti faðmur opnast senn. Styrk sé hönd vor: stöðvum bál og ísa! Stöndum saman, allir verkamenn! Mikinn hlut af höndum þarf að inna: Hér má gull úr bergi jarðar vinna, hér má silki úr hafsins bylgjum spinna, — hvergi er landið góða numið enn. Látum bóndann blóðrás vora finna! Berjumst saman, allir snauðir menn! II Hverjir eru þeir, sem þarna standa, — þöglir menn og sýnilega í vanda? Svörtu lofti að sér brjóstin anda, aumir fætur kvika sem á glóð, dyljast sár í siggi krepptra handa... Sjá, þar hímir íslands nýja þjóð! Þetta eru þeir, sem reru á kænum, þegar vonin brást í dalnum grænum, niðjar bóndans gamla í gamla bænum, gestirnir, sem lögðu þessi torg. Þetta eru þeir, sem hurfu að sænum, — þreyttir menn, sem skópu heila borg.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.