Réttur - 01.07.1982, Síða 33
stéttir Vestur-Evrópu til að aðstoða sig og
hjálpa óbeint til að sigra Spán og taka
Austurríki og Tékkóslóvakíu, — uns hon-
um fannst kominn tími til að leggja líka
Vestur- og hluta Norður-Evrópu undir sig
— og síðan Balkanskagann. Þá fyrst var
lagt í Sovétríkin: kommúnisminn skyldi
kveðinn niður, — sósíalismanum lokuð
leið til þróunar í Evrópu. Hetjuskapur og
fórnir Sovétþjóðanna gerðu þann vitfirrta
valdadraum að engu.
Nú er Ronald Reagan, þetta verkfæri
„hernaðar- og stóriðju-klíkunnar", sem
bestu menn Bandaríkjanna hafa varað
þjóð sína við, — að reyna að feta í fótspor
Hitlers og trylla jafnt Bandaríkjaþjóð
sem Vestur-Evrópubúa til styrjaldar gegn
kommúnismanum. — En sá er munurinn
að Reagan ræður yfir þeim morðvopnum,
sem Hitler ekki hafði, — og getur hafið
styrjöld, sem þurrkaði mannkynið út. Það
þýðir með orðalagi Marx og Engels að
allar stéttir mannkyns liðu undir lok,
mannkynið hyrfi af jörðinni, — og ef
jörðin yrði ekki sjálf glóandi, geislavirkur
hnöttur (sem Venus?) eða aðsetursstaður
afskræmdra dýrategunda, „yndisreitur“
rottanna sem tilraunaey Kanans í Kyrra-
hafi, — þá liðu a.m.k. milljónir ára þar
til mannkyn skapaðist aftur á þessari jörð,
ef það yrði þá nokkru sinni.
Þegar þetta víti blasir við sem afleiðing
atómsprengjunnar — sem Albert Einstein
kvað vera djöfulinn sjálfan kominn til
jarðríkis — og hins vegar glöggt hvernig
ýmsir voldugustu aðilar auðvaldslanda sí-
auka stríðshættuna, þá er gott að hafa í
huga aðvörun Bólu-Hjálmars.:
„Hæg er leið til helvítis,
hallar undan fæti.“
Mannkynið verður að gera sér ljóst í
tíma hvflík skelfingar örlög því eru búin,
ef ameríska hernaðarklíkan er látin fara
sínu fram og blekkja almenning með
þvaðrinu um kommúnismann, svo sem
Hitler gerði forðum.
Líf mannkynsins liggur við að eigi
verði valinn helvegur Reagans.
2. Auðvaldsþjóðfélag
„vélmenna“ og böðla
Það er rétt að minnast á eina hugsan-
lega leið auðvaldsins, þótt ótrúlegt sé að
alþýða manna geri því fært að fara hana.
Mannkynið hefur nú í höndum sér
mesta byltingartæki tækninnar, sem það
hefur eignast frá upphafi vega: örtölv-
una2.
Þetta tæki má nota til að útrýma öllum
þrældómi af jörðinni, ef alþýða heims
ræður notkun þess, — skapa mannfélag
fegurðar og réttlætis.
En það er líka hugsanlegt, ef auðmenn
eru allsráðandi í einu þjóðfélagi að þeir
geti skapað ómennskt samfélag, er væri
hreint víti fyrir vinnandi stéttir nútímans.
Hugsum okkur t.d. auðmenn Japans:
Þeir hafa þegar látið hálaunaða sérfræð-
inga sína framleiða vélmenni, sem vinna
einir í heilum verksmiðjum og framleiða
sjálfir verksmiðjur, þar sem enginn
mennskur maður vinnur, aðeins vélmenni.
Ef þjóðfélag t.d. í Japan er látið þróast
þannig að mestallar verksmiðjur eru starf-
ræktar af vélmennum, þá yrði það ó-
mennska auðvaldsþjóðfélag þannig: Lítil
auðmannastétt á mestallar verksmiðjur
landsins, reknar af vélmennum, sem há-
launaðir sérfræðingar framleiða. Verka-
lýðurinn, sem áður var, er óþarfur orð-
161