Réttur


Réttur - 01.07.1982, Side 51

Réttur - 01.07.1982, Side 51
Auðgunarmorð í þriðja heiminum Fólk í fátækum ríkjum virðist sannfært um að finna megi pillu við hvaða kvilla sem er. Það eyðir síðasta eyri sínum til að kaupa vítamín, hormóna- eða verkjatöflur, sem eiga að koma heilsunni í lag. Til að tryggja vöxt og viðgang barna sinna fórnar þetta fólk takmörkuðum efnahag til að kaupa vestrænan barnamat, sem án hreins vatns og lágmarks sótthreinsunar getur drepið börnin þess. Ekki kaupa vörur frá Nestle Eins og lesendum er sjálfsagt kunnugt um þá hefur fjölþjóðaauðhringurinn Nestle verið stærsti framleiðandi á barna- mat í heiminum um langt árabil. Auð- hringur þessi hefur hins vegar ekki vand- að meðulin að öllu leyti, heldur iðkað fremur ósiðlegar aðferðir í þriðja heimin- um til þess að fá mannfólkið þar til að gæða börnum sínum á framleiðslu sinni. Nú er það svo að mikið ólæsi er ríkjandi í þriðja heiminum og því ekki við því að búast að reglur um notkun barnafæðunnar ómissandi yrðu beinlínis víðlesnar. Því er viss fræðsla um meðferð vandmeðfarinnar matarframleiðslu forsenda þess að hennar sé neytt. Auðhringurinn Nestle vílar hins vegar ekkert fyrir sér í þessum efnum. Hann hikar ekki við að dreifa mat sínum endur- gjaldslaust fyrst í stað til að fá fólk til að bíta á agnið. Hann dreifir villandi áróð- ursefni til mæðra og heilbrigðisfulltrúa hins opinbera auk þess sem hinir síðar- nefndu verða oft náðar auðhringsins að- njótandi er hann gefur þeim gjafir af ýmsu tagi. Auðhringurinnn gerir sem sagt hvað hann getur til að komast hjá því að hlíta settum reglum Sameinuðu þjóðanna og stofnana þeirra. „Nýjar víðtækar leið- beiningar“ um meðferð barnamats frá Nestle samdi fyrirtækið eftir að alþjóða- neytendasamtök tóku sig saman (ásamt samtökum sem kalla sig Infant Formula Action Network) um að koma í veg fyrir sölustarfsemi þess. Auðhringurinn hefur hins vegar ekki lagt niður óeðlileg vinnu- brögð sín í þriðja heiminum og því halda neytendasamtök áfram að beita sér fyrir því að fólk kaupi ekki vörur frá Nestle. Svo langt hefur auðhringur þessi gengið að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur 179

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.