Réttur - 01.07.1982, Qupperneq 53
Wladyslaw Gomulka
og sorgleikir eftirstríðsáranna
Wladislaw Gomulka, fyrrum aðalritari Pólska Yerkamannaflokksins (PPR)
andaðist í ágúst sl., 77 ára að aldri. Banameinið var krabbamein. Með honum
fellur í valinn einn af heiðarlegustu og á vissu skeiði sterkustu stjórnmálaleiðtog-
um eftirstríðsáranna, en ævi hans markaðist í óvenju ríkum mæli af sviftibyljum
stjórnmálaheimsins á þessum hættulegu árum.
Gomulka var fæddur 6. febrúar 1905 í Krosno, nærri Krakau í þeim hluta
hins uppskipta Póllands, sem tilheyrði keisaradæmi Austurríkis og Ungverja-
lands. 21 árs gamall gengur hann í Kommúnistaflokk Póllands, sem þá, 1926,
er lítill flokkur í PóIIandi, sem nú var orðið sjálfstætt ríki. Hann starfar í verkalýðs-
félögunum, er fangelsaður fyrir starfsemi sína strax 1926, en aðeins í nokkra
mánuði. 1932 er hann aftur fangelsaður, er hann var að flýja af leynifundi, er
lögreglan komst að og skotinn í fótinn á flóttanum og olli það honum ævilöngu
meini. Var hann þá dæmdur í 4 ára fangelsi, en sleppt eftir 2 ár sökum hins illa
fótameins og lungnabólgu.
En í mars 1936 er hann enn fangelsaður, fyrir verkalýðsstarfsemi sína og
nú dæmdur í 7 ára fangelsi. en er nasistaherinn réðst á Pólland 1. september
1939 var pólitísku föngunum sleppt. Fór Gomulka nú huldu höfði og tók upp
sína fyrri kommúnísku starfsemi.
Það yrði of langt mál að rekja feril
hans á stríðsárunum. Pað, sem þegar er
sagt, sýnir að hér var á ferðinni fórnfús
og góður marxisti, sem lét bann á flokkn-
um og ofsóknir ekki aftra sér frá starfi.
Pólski Verkamannaflokkurinn (PPR)
var myndaður haustið 1941 og í desember
1942 var Gomulka kosinn í miðstjórn
hans. Mannfall flokksins í leynistarfsem-
inni í Póllandi, herteknu af nasistum,
var mikið, ekki síst meðal leiðtoganna,
svo brátt varð Gomulka einskonar vara-
formaður flokksins, aðeins 32 ára að
aldri. En 14. nóv. 1943 tókst Gestapo að
ná aðalritara flokksins, Paul Finder, og
fleirum, pynta þá og skjóta síðan 26. júlí
1944.
Gomulka var nú kosinn aðalritari flokks-
ins 23. nóv. 1943. Það féll nú í hans hlut
að stjórna flokknum undir hinum erfið-
181