Réttur


Réttur - 01.07.1982, Side 60

Réttur - 01.07.1982, Side 60
Þegar svona upplýsingar um algert ábyrgðarleysi og ótakmarkaðan níðings- skap bandaríska herráðsins bætast við þekkinguna á þeim voða, sem nú vofir yfir, þá er skiljanlegt að þeir stjórnmála- menn, sem einhverja ábyrgðartilfinningu hafa, rísi upp. Stórfengleg „krossferð“ Jafnt kunnustu stjórnmálaleiðtogar og fyrrverandi ráðherrar og sendiherrar og sjálf kaþólska kirkjan risu upp til að vera með í því, sem íhaldstímaritið „U.S. News and World Report“ kallaði „friðar- krossferð“. Fyrrverandi ráðherrar eins og Dean Rusk, Clark Clifford.og fyrrv. CIA-Ieiðtogi W. Colby, Averell Harri- mann, fyrrum sendiherra í Moskvu og George Kennan — ásamt tugum heims- þekktra leikara og listamanna skipuðu sér í forustu þessarar hreyfíngar til að stöðva framleiðsluna á kjamorkusprengj- um. MiIIjónir Bandaríkjamanna, líka í hin- um íhaldssömu „miðríkjum“, gerast virk- ir í „krossferðinni“. Samkvæmt Gallup-könnun í mars 1982 vora 72% Bandaríkjamanna orðnir fylgj- andi stöðvun allrar atómvopnafram- leiðslu. Edward Kennedy gerist talsmaður hreyfingarinnar. „Fjárframlög til að bólusetja börn eru strikuð út,“ segir hann í ræðu, „til þess að fá peninga fyrir vopn, er verða þessum börnum að bana.“ 20 milljarða dollara má spara strax bara með því að stöðva kjarnorkuvígbún- aðinn. „Bandaríkin og Sovétríkin eiga nú eina milljón „Hiroshima“-sprengjur. Það eru fjórar smálestir TNT sprengiefnis á hvert mannsbarn á jörðinni. Kennedy fær 166 af 435 meðlimum fulltrúadeildarinnar og 24 af 100 öldunga- deildarmönnum til meðflutnings á tillögu sinni um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar- ins. Og út um öll Bandaríkin eru undirtekt- irnar margfalt betri. Og í haust eru kosningar til beggja þingdeilda. Reagan er því orðinn hræddur, farinn að hræsna um minnkun herbúnaðar, til þess að reyna að villa fyrir kjósendum, svo hin vitfirrta hernaðarklíka hans missi ekki allan grundvöll á þingi til þeirrar ægilegu aukningar vígbúnaðarins sem hann stefn- ir að. Menn eins og Mc George Bundy öryggisráðgjafi John Kennedys, George Kennan, einn frægasti diplomat Banda- ríkjanna, Robert McNamara, hermála- ráðherra Kennedys og Johnson’s, ofl. heimta nú endurskoðun á allri þeirri utanríkis- og hermálastefnu, sem þeir sjálfir voru með í að móta forðum. í miðjum júní var svo haldinn hinn gríðarlega fjölmenni mótmælafundur í Central Park í New York, þar sem upp undir ein milljón manna mótmælti kjarn- orkukapphlaupinu og krafðist raunveru- legrar afvopnunar, svo múgmorðstækin stofnuðu ekki tilveru mannkynsins í hættu. Reagan er orðinn hræddur. Hin brjál- semiskennda vígbúnaðaráætlun hans er í hættu. Ef til viU á mannkynið sér enn lífsvon, ef fast verður fram haldið friðar- baráttunni. 188

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.