Fréttablaðið - 07.03.2009, Síða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI7. mars 2009 — 58. tölublað — 9. árgangur
YFIRHEYRSLA 42
BÆKUR 32
Naumt tap gegn
besta liði heims
ÍÞRÓTTIR 62
Stigavörðurinn sem
hélt að hann væri
Hemmi Gunn
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
menning
mars 2009
[ SÉRBLAÐ F
RÉTTABLAÐS
INS UM MEN
NINGU OG L
ISTIR ]
ROF Í BYGGIN
GARSÖGU
fram unda
n
Síðueldar í
kvikmynd
Gagarín he
fur lokið við
að endursk
apa mestu
náttúruham
farir Íslands
sögunnar í
kvikmynd.
Móðuharði
ndin taka n
ú korter.
BLS. 4
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Fullkomleg
a náttúru-
laust í öllu s
ínu
samþjappað
a ofbeldi,
hryllingi, gr
immd og
fúkyrðum.
BLS. 6
Leikverkið
Rústað
karlmenn og krabbamein
LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Nikolu Christoph hafði
fengið nóg af dansaralífi
í Vínarborg. Fyrir tilviljun
endaði hún í sumarvinnu á
Íslandi og sneri ekki aftur
VIÐTAL 40
BÚTUR AF
HJARTANU
VERÐUR
EFTIR Í
JEMEN
VIÐTAL 24
Dramatískustu
ævisögur
sem hafa
komið út
ÉG HÉLT ÉG VÆRI STÓRBORGARBÚI
Mín Borg
ferðablað Icelandair
fylgir með
Fréttablaðinu í dag.
GEYMIÐ BLAÐIÐ
Pottar Pönnur!
Allir pottar og pönnur á afslætti
Síðustu dagar
BANKAR Óánægja er meðal starfs-
manna Landsbankans með fram-
göngu Ásmundar Stefánssonar
sem tók við sem bankastjóri á
þriðjudag. Ásmundur mun hafa
líkt starfsmönnum Landsbankans
fyrir hrun við fangaverði í útrým-
ingarbúðum nasista.
Samlíkinguna við hinar ill-
ræmdu búðir Þjóðverja úr heims-
styrjöldinni síðari dró Ásmundur
upp á fundi á fimmtudagsmorg-
un með um fjörutíu starfsmönn-
um lögfræðisviðs Landsbankans.
Ásmundur mun hafa sagt starfs-
mönnunum að þeir ættu að vera
auðmjúkari í störfum sínum fyrir
bankann þegar einn þeirra kvaðst
telja að í bankakerfinu bæru menn
mismikla ábyrgð. Tók sá sem
dæmi að ekki væri hægt að kenna
þeim sem seldu farmiða um borð í
Titanic um hin hörmulegu endalok
skipsins. Ásmundur mun þá hafa
sagt að samlíking við fangaverði í
Auschwitz væri nærtækari.
„Ég ætla ekkert að fara að rekja
trúnaðarsamtöl mín við starfsfólk
bankans við fjölmiðla. Eina sem
ég get staðfest er að það er alrangt
að ég hafi líkt starfsfólkinu við
fangaverði,“ segir Ásmundur.
Hann vill hins vegar ekki svara
því hvort hann hafi nefnt útrým-
ingarbúðir á einhvern hátt í máli
sínu. Aðspurður um óánægju
starfsmanna segir Ásmundur það
ljóst að þegar viðkvæm mál séu
rædd séu ekki allir sáttir við það
sem sagt er. „Okkar verkefni er
að efla sjálfstraust starfsmanna
og efla traust almennings á bank-
anum.“
Haukur Halldórsson, sem
tók við formennsku í bankaráði
Landsbankans af Ásmundi, seg-
ist ekki hafa heyrt af hinum
umdeildu ummælum. „Ég var ein-
mitt á ágætum fundi með fram-
kvæmdastjóra lögfræðisviðs síð-
degis í gær [í fyrradag]. Ég spurði
hvernig fundurinn hefði gengið og
heyrði ekkert annað en jákvætt,“
segir Haukur. - gar
Líkti starfsfólkinu við
fangaverði í Auschwitz
Ásmundur Stefánsson líkti starfsfólki sínu í Landsbankanum við fangaverði í
útrýmingarbúðum þegar hann ræddi bankahrunið. Hann þvertekur fyrir það.
VORIÐ KALLAR Vorið hefur boðað komu sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þrátt fyrir kulda og hvíta jörð. Huðnan Perla bar tveimur hvítum kiðlingum, hafri og huðnu, á
fimmtudagsmorgun. Perla er gráflekkótt að lit en faðirinn heitir Brúsi og er hvítur. Kiðlingarnir komu tveimur mánuðum fyrir áætlaðan burð hjá geitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK Fréttir af tíðum skotárás-
um á Norðurbrú og Amager í
Kaupmannahöfn vekja bæði
ugg og undrun Íslendinga.
Undanfarnar vikur hafa fáir
dagar liðið á milli slíkra árása,
sem kostað hafa þrjá menn
lífið. Fréttablaðið kynnti sér
málið. - gb /sjá síðu 34
Klíkustríð í Kaupmannahöfn:
Ótti við árásir