Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 6
6 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
BORGARSTJÓRN Óskar Bergsson, for-
maður borgarráðs, og Björn Ingi
Hrafnsson, fyrrverandi borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, segja
að þeir hafi engin afskipti haft af
samningagerð um uppbyggingu
á Höfðatorgi eða samningum um
leigu borgarinnar á húsnæði þar.
Ólafur F. Magnússon borgar-
fulltrúi setti fram fyrirspurn um
málið á síðasta borgarráðsfundi.
„Það mun koma fram í svari
borgarstjóra í næstu viku að
aðkoma mín að þessum samningi
við Höfðatorg var engin, hvorki
formleg né óformleg. Þetta kom
líka fram í umræðum í borgar-
stjórn á þriðjudag og hefur marg-
oft verið svarað,“ segir Óskar.
Vegna fullyrðinga Ólafs um að
Óskar hafi neitað að færa fyrir-
spurn hans til bókar á þarsíðasta
fundi borgarráðs segir Óskar að
fyrirspurnin hafi á þeim tíma-
punkti ekki verið tæk til afgreiðslu
þar sem hún hafi að hluta fjallað
um atriði sem ekki sé á færi stjórn-
kerfis borgarinnar að svara.
„Ég er farinn að fá það á tilfinn-
inguna að það sé ekki gott á milli
Óskars og Ólafs F. Magnússonar,“
segir Björn Ingi Hrafnsson. „Hins
vegar er það þannig að ég kom að
þessu máli sem kjörinn fulltrúi í
borgarráði og greiddi þar atkvæði
en ég hafði ekki neina aðkomu að
samningunum að öðru leyti. Ég sat
enga fundi með þessum aðilum og
tók ekki þátt í vinnslu málsins og á
engin tengsl við þetta fyrirtæki.“
- gar
Óskar Bergsson og Björn Ingi Hrafnsson um þátt borgarfulltrúa Framsóknar:
Sömdum ekki við Höfðatorg
BJÖRN INGI HRAFNSSON OG ÓSKAR
BERGSSON Þeir segjast ekki hafa samið
við Höfðatorg. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PRÓFKJÖR
SAMFYLKINGARINNAR
Í REYKJAVÍK
UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA HEFST Í DAG
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í dag, laugardaginn 7. mars í
kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austurvöll og
stendur til 13. mars. Þeir sem ekki eiga heimangegnt á kjördag, hafa
ekki aðgang að tölvu, nota ekki heimabanka eða vilja kjósa með
gamla laginu á pappír, er velkomið að kjósa utan kjörfundar.
Kjörstaðurinn verður opinn kl. 14-20 alla daga. Kosningarétt hafa
félagar í Samfylkingarfélögunum í Reykjavík sem voru skráðir
félagar þann 28. febrúar 2009 og eiga lögheimili eða hafa kosninga-
rétt í Reykjavík. Aðstoð við kosninguna er á kjörstað.
Kynningardagur frambjóðenda verður á morgun, sunnudaginn 8. mars
kl. 14-18 í kosningamiðstöð Samfylkingarinnar á Skólabrú við Austur-
völl. Frambjóðendur bjóða kjósendur velkomna, kynna sig og sín hjart-
ans mál og svara spurningum kjósenda. Ilmandi kaffi og heimabakað
góðgæti gegn hóflegu framlagi í kosningasjóð. Allir velkomnir!
Nánari upplýsingar á samfylking.is og í síma 414 2200.
Kjörstjórn Samfylkingarinnar í Reykjavík
DÓMSMÁL Hafskipsmenn hafa kært ákvörðun ríkis-
saksóknara um að rannsaka ekki Hafskipsmálið frek-
ar, með stjórnsýslukæru til dómsmálaráðherra.
Þau Björgólfur Guðmundsson, Páll Bragi Kristjóns-
son, Helga Thomsen (ekkja Ragnars Kjartanssonar),
Þórður H. Hilmarsson og Helgi Magnússon höfðu
beðið um rannsókn á meintum brotum í dómskerfinu,
sem hafi verið framin við meðferð Hafskipsmálsins
svokallaða, um miðjan níunda áratuginn.
Hinn 8. október féllst ríkis-saksóknari á að rann-
saka málið, á grundvelli lagagreinar sem nú hefur
verið felld niður. Niðurstaða hans varð síðan sú að
ekki væri ástæða til að rannsaka málið frekar. Kröfð-
ust Hafskipsmenn þess þá að ný ákvörðun yrði tekin,
sem ríkissaksóknari hafnaði.
„Við grundvöllum kæru okkar á því að öll skilyrði
laganna sem kæran er upphaflega byggð á séu upp-
fyllt,“ segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. Ríkis-
saksóknari hafi ekki rannsakað málið í skilningi
laga.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir rann-
sóknarbeiðnina ekki hafa leitt neitt í ljós sem gæfi til
kynna refsiverð brot hjá þeim sem átti að rannsaka.
„Og ég hef rökstutt það á nítján síðum að ekki sé til-
efni til frekari rannsóknar.“
Fyrrgreind heimild til rannsóknar hafi verið sér-
kennileg. „Auðvitað er það ekki eðlileg rannsókn að
rannsaka mál sem eru fyrnd og verður aldrei komið
með fyrir dóm,“ segir Valtýr. - kóþ
Valtýr Sigurðsson minnir á að Hafskipsmálið sé fyrnt og fari aldrei fyrir dóm:
Hafskipsmenn kæra ríkissaksóknara
TVEIR HAFSKIPSMANNA Björgólfur Guðmundsson og Páll Bragi
Kristjónsson eru meðal þeirra sem hafa kært ríkissaksóknara
fyrir að rannsaka ekki Hafskipsmálið nægilega vel.
UMHVERFISMÁL „Sveitarstjórn
leggst gegn friðlýsingu hvann-
stóðs undir Reynisfjalli þar sem
ekki verður séð að hvönn eða
sniglinum brekkubobba sé nokkur
hætta búin af manna völdum og
skiptar skoðanir eru meðal íbúa
um ágæti friðlýsinga sem þegar
eru í gildi í Mýrdalshreppi,“ segir
í umsögn sveitarstjórnar Mýr-
dalshrepps sem gefinn var kostur
á að skila umsögn um þingsálykt-
unartillögu um náttúruverndar-
áætlun fyrir árin 2009 til 2013. Í
tillögunni er meðal annars gert
ráð fyrir að friða hvannstóð undir
Reynisfjalli þar sem er búsvæði
brekkubobba. - gar
Friðunartillögu hafnað:
Telja hvönn og
bobba óhætt
FÓLK „Ég er svekkt. Maður hefur
reynt að standa sig og gera allt
eftir kúnstarinnar reglum en fær
þetta samt í hausinn,“ segir Solveig
Thelma Einarsdóttir sem fær ekki
að flytja bílinn sinn með sér úr
landi.
Solveig kveðst hafa keypt sér
Toyota Aygo fyrir þremur árum.
Á bílnum sé verðtryggt lán til sex
ára. Í apríl á hún pantað far með
Norrænu til Noregs þar sem hún
ætlar að freista gæfunnar. En babb
er komið í bátinn. Tryggingamið-
stöðin, þar sem Solveig er með
tryggingu og lán hjá Elísabetu,
bannar henni að fara með bílinn.
„Ég er búin að borga af bílnum í
þrjú ár, á fasteign á Íslandi og hef
aldrei verið í vanskilum eða beðið
um frystingu á lánum. Samt synja
þeir mér um grænt kort á bílinn,“
segir Solveig sem kveðst hafa feng-
ið þau svör að það sama gilti um
alla. „Í dag er bílum ekki hleypt í
Norrænu nema menn fái grænt kort
sem þarf að sækja um hjá trygg-
ingafélaginu og
það fær maður
ekki nema vera
alveg skuld-
laus. Það er
fjöldi fólks
sem veit ekki
um þetta.“
Solveig, sem
er hársnyrtir,
hyggst vera þrjá
mánuði í Noregi
til að byrja með
og kveðst
þegar
hafa
starfs-
viðtöl í hendi. „Ef vel gengur hef
ég hugsað mér að vera áfram svo
ég geti nú borgað af bílnum,“ segir
Solveig sem lítur nú á smábílinn
sinn sem hreina átthagafjötra til
viðbótar við gjaldeyrishöft sem
hindri Íslendinga í að koma undir
sig fótunum erlendis.
Jón Páll Leifsson, rekstrar-
stjóri Elísabetar, segir trygg-
ingafélagið byggja á skilmálum
skuldabréfa vegna bílalána. Þar
er meðal annars kveðið á um að
ef veð rýrnar eða hann er flutt-
ur úr landi án skriflegs samþykk-
is skuldareigandans sé öll skuldin
fallin í gjalddaga.
„Á grundvelli þessa ákvæðis
byggist synjun félagsins á beiðni
lántakanda hverju sinni um að
flytja veðsettan bíl úr landi,“
segir Jón Páll og tekur fram að
afgreiðsla máls Solveigar sé í sam-
ræmi við það sem tíðkist hjá öðrum
bílalánafyrirtækjum.
Jón Páll segir að félagið verði
að geta gengið að veðinu ef til van-
skila komi. Sé veðið í bílnum sjálf-
um leiði það til verulega aukinnar
áhættu að leyfa flutning hans úr
landi. „Það er kunnara en frá þurfi
að segja hversu tafsamt og kostn-
aðarsamt það getur reynst fyrir
kröfuhafa að þurfa að innheimta
kröfur á skuldara sem reynist
vera búsettur utanlands svo ekki
sé minnst á þann kostnað og fyrir-
höfn sem því mundi fylgja að nálg-
ast hina veðsettu eign til að ganga
að tryggingunni sem í veðinu er
fólgin þegar það hefði verið flutt
úr landi.“ gar@frettabladid.is
Bíllinn í farbanni þó
að lánið sé í skilum
Solveig Thelma Einarsdóttir segist hafa staðið í skilum af láni á smábílnum sín-
um en fær samt ekki að fara með hann úr landi til að freista gæfunnar í Nor-
egi. Verðum að geta gengið að veðinu, segir rekstrarstjóri tryggingafélagsins.
SOLVEIG THELMA EINARSDÓTTIR Ætlar með þriggja ára son og kærastanum til Nor-
egs en fær ekki að taka bílinn með sér. Hún segir lítið gagn af því að halda áfram að
borga af bíl sem hún má ekki nota. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Auglýsingasími
– Mest lesið
JÓN PÁLL
LEIFSSON
Hefur þú misst vinnu eða starfs-
hlutfall þitt verið skert nýlega?
Já 33,6%
Nei 66,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Líst þér vel á aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í atvinnumálum?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN