Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 12
7. mars 2009 LAUGARDAGUR
Hvernig fæ ég yfirsýn
yfir útgjöld heimilisins?
Eru skuldabréf málið í dag?
Hvort er betra að spara í
verðtryggðu eða óverðtryggðu í dag?
Er munur á nafn-
og raunvöxtum?
Hver er munurinn á vara- og neyslusparnaði?
Get ég hætt að vinna við 65 ára aldur?
Af hverju losna ég
aldrei við yfirdráttinn?
Hvernig næ ég
tökum á fjármálunum?
Hvað er verðtrygging
og hvernig virkar hún?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
Mikil aðsókn á
fjármálanámskeið
Undanfarið hefur Íslandsbanki í samstarfi við Opna háskólann í Háskólanum í
Reykjavík boðið fjármálanámskeið fyrir almenning. Námskeiðin hafa mælst mjög
vel fyrir og viðtökurnar verið framar vonum. Enn eru nokkur námskeið eftir og
hvetjum við áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
Markmið námskeiðsins er að veita ráðleggingar um flest sem snýr að fjármálum
fjölskyldunnar. Þátttakendur verða fræddir um sparnað, lán, efnahagsreikning
heimilisins, heimilisbókhald, fjárfestingar, lífeyrissparnað og margt fleira.
Námskeiðin fara fram í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2,
og eru öllum opin. Hvert námskeið stendur í 3 klst. og þátttökukostnaður er
1.000 kr. eða 1.000 punktar í Vildarklúbbi Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar á islandsbanki.is/fjarmalanamskeid.
Næstu námskeið:
Laugardaginn 7. mars Kl. 10.00–13.00 - UPPSELT
Miðvikudaginn 11. mars Kl. 17.15–20.15
Laugardaginn 14. mars Kl. 10.00–13.00
Miðvikudaginn 18. mars Kl. 17.15–20.15
Laugardaginn 21. mars Kl. 10.00–13.00
Skráning á www.opnihaskolinn.is eða í síma 599 6394.
SÚDAN, AP Mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna ætlar að
kanna hvort ákvörðun Súdans-
stjórnar um að reka erlent hjálp-
ar-starfsfólk á brott úr landinu
teljist mannréttindabrot.
„Að svipta vitandi vits svona
stóran hóp fólks öllum mögu-
leikum sínum til að komast af
er ömurlegur verknaður,“ segir
Rupert Colville, talsmaður mann-
réttindafulltrúans Navi Pillay.
Lífi þúsunda manna er ógnað
vegna brottreksturs þrettán
stærstu hjálparsamtakanna frá
Súdan. Stjórn landsins ákvað að
gera þetta eftir að Alþjóðlegi saka-
dómstóllinn í Haag gaf út hand-
tökuskipan á hendur Omar al-
Bashir forseta vegna stríðsglæpa
í Darfúrhéraði.
Alþjóðaheilbrigðisstofnun
n segir að þetta þýði að stórt
gat myndist í öllu eftirliti með
útbreiðslu sjúkdóma, sem gæti
orðið til þess að smitsjúkdóma-
faraldrar fari á kreik án þess að
nokkur viti af.
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna segir að flóttamanna-
búðir handan landamæranna í
Tsjad séu illa undir það búnar að
taka á móti miklum mannfjölda í
viðbót við þá sem fyrir eru. Súd-
ansstjórn sakar hjálparstofnanir
um að starfa með dómstólnum og
dæla í hann röngum upplýsingum
um ástandið.
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, segir
að þessi ákvörðun Súdansstjórn-
ar muni valda óbætanlegu tjóni á
starfi hjálparstofnana í Darfúr-
héraði og hvetur stjórnina til þess
að endurskoða þessa ákvörðun.
Að minnsta kosti 2,7 milljón-
ir manna hafa hrakist að heiman
vegna átakanna og hafast flestir
við í flóttamannabúðum, ýmist
í Darfúrhéraði eða rétt handan
landamæranna í Tsjad.
Ban segir að 4,7 milljónir manna
í Súdan þiggi aðstoð frá hjálpar-
stofnunum.
Samkvæmt ákvörðun stjórn-
valda þurfa nú 40 prósent allra
hjálparstarfsmanna í héraðinu að
hafa sig úr landi.
Samkvæmt Sameinuðu þjóðun-
um hafa 76 sjálfstæð hjálparsam-
tök sinnt íbúunum í Darfúr auk
allra helstu hjálparstofnana Sam-
einuðu þjóðanna.
gudsteinn@frettabladid.is
Lífi þúsunda
stefnt í voða
Brottrekstur hjálparstarfsfólks frá Súdan veldur
óbætanlegu tjóni á hjálparstarfinu í landinu.
Súdansstjórn hvött til að endurskoða ákvörðun sína.
BÖRN Í FLÓTTAMANNABÚÐUM Alls þurfa um 4,7 milljónir manna í Súdan á aðstoð
hjálparstofnana að halda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSSLAND Míkhaíl Gorbatsjev,
fyrrverandi formaður sovéska
Kommúnistaflokksins, líkir
flokki Vladimírs Pútín, Samein-
uðu Rússlandi, við kommúnista
eins og þeir gerðust verstir þegar
hann var við völd. Þá segir hann
að sjálfstæði og frelsi löggjafar-
valdsins og dómsvaldsins í Rúss-
landi hafi ekki verið tryggt.
Gorbatsjev ræddi við frétta-
stofu AP í tilefni af því að 20 ár
eru liðin frá því að Sovétríkin
hófu að riða til falls. Hann vonast
til að Rússland, Úkraína, Kasak-
stan og Hvíta-Rússland myndi
nýtt sambandsríki þegar fram
líða stundir. - bs
Gorbatsjev gagnrýnir Pútín:
Eins og versti kommi
MÍKHAÍL GORBATSJEV Hann segir Pútín
vera eins og versta kommúnísta.