Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 36
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Helsinki gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
Amsterdam . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Bergen . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Barcelona . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Berlín . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Boston. . . . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Düsseldorf . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Frankfurt . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Glasgow . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Halifax . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
Helsinki . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Kaupmannahöfn . . . . . . . frá 14.900 kr.
London . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Madrid . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Manchester . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Milano . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Minneapolis . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
München . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
New York . . . . . . . . . . . . . . frá 29.720 kr.
Orlando . . . . . . . . . . . . . . . frá 31.220 kr.
Osló . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
París . . . . . . . . . . . . . . . . . . frá 17.300 kr.
Stavanger . . . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Stokkhólmur . . . . . . . . . . . frá 14.900 kr.
Toronto . . . . . . . . . . . . . . . . frá 25.400 kr.
*Verð aðra leiðina með sköttum og gjöldum.
Besta verðið okkar*
+ Bókaðu á www.icelandair.is
HELSINKI
Flug og gisting í 3 nætur
frá 58.900 kr.
á mann í tvíbýli á Radisson SAS Seaside ****
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Reykjavík – Helsinki
frá 17.300 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er allt að 4 sinnum í viku.
Helsinki er sérstök að mörgu leyti, en það sem
einkennir borgina framar öðru er kannski
nálægðin við sjóinn og skerjagarðinn, almenn-
ingsgarðarnir, strendur nálægt miðbænum og
hve stutt er í allt í miðbænum. Í Helsinki er
meginlandsloftslag og þess vegna oftast mjög
gott sumarveður og ekki verra að hafa strendur
innan borgarmarkanna.
Suomenlinna og siglingar
Almenningssamgöngur eru sérlega góðar og
auðvelt að komast á alla þá staði sem vert er að
heimsækja. T.d. ganga ferjur á 15 mín. fresti út í
Suomenlinna-virkið á eyju fyrir utan borgina þar
sem hægt er að skoða virkið eða slappa af á
klettaströnd eyjunnar. Frá miðbæjarhöfninni er
líka boðið upp á ferðir til annarra áfangastaða
og skerjagarðssiglingar. Þá má nefna siglingar
til bæði Rússlands og Eistlands, en Tallinn er í
innan við 2 tíma siglingu frá Helsinki.
Linnanmäki og Korkeasaari
Börn á öllum aldri taka oftast stefnuna á
Linnanmäki-skemmtigarðinn, eða dýragarðinn
Korkeasaari. Þar sem dýragarðurinn er á eyju
eru reglulegar bátsferðir frá miðbænum
þangað. Í nágrannabænum Vantaa er líka
vísindagarðurinn Heureka, í 15 mínútna
lestarferð frá miðbænum.
Öll verð miðast við lægstu verð í verðskrá
og geta á einhverjum tímapunkti verið uppseld.
Töölö-vatn og Finlandia Talo
Í góðu veðri er tilvalið að rölta meðfram
Töölö-vatninu og upplifa finnska rómantík.
Finlandiahúsið og Óperuhúsið eru við
Mannerheimitie-götu, í garðinum við Töölö-vatn.
Austan við vatnið er Borgarleikhús Helsinki.
Finlandiahúsið er tónlistar- og ráðstefnuhöll,
teiknuð af Alvar Aalto árið 1962. Aalto teiknaði
allt sem í húsinu er, innréttingar, ljós og öll
húsgögn svo að ekki sé minnst á hurðarhúna.
Hér má kynnast finnskri húsagerðarlist á
20. öld eins og hún varð best.
Verslanir í Helsinki
Fólk í verslunarstuði finnur alltaf eitthvað í
vöruhúsinu sem er miðpunktur borgarinnar,
Stockmann. En ekki má gleyma listasetrinu
Arabia þar sem hægt er að finna Iittala-,
Hackman- og Arabiavörur á útsöluverði. Það
má líka finna ýmislegt á flóamörkuðunum á
Hietalahti-torginu og Valtteri. Ein stærsta
verslunarmiðstöð Norðurlanda er líka í
Austur-Helsinki, en þangað er auðvelt að
komast með hreinustu neðanjarðarlest í heimi.
Sitt hvað er við að vera
Tónleikahald er mjög algengt í Helsinki og
venjulega fyllist miðborgin af fólki við þess
háttar viðburði, enda leikvangar sem notaðir eru
nánast í miðbænum. Besti viðburðurinn í ár ætti
þó að vera Evrópumót kvenna í fótbolta sem
Ísland tekur þátt í. Sænska leikhúsið býður líka
venjulega upp á skemmtilegar sýningar og þær
ættu að vera vel skiljanlegar fyrir flesta
Íslendinga, enda finnlands-sænskan skýrasta
Norðurlandatungumálið.
SASLIK, NEITSYTPOLKU 12
Einn af þekktustu rússnesku veitingastöðunum í
Helsinki. Litríkur og sérstakur heimur út af fyrir
sig, eins og Naustið í gamla daga. Aðalréttirnir
eru matarmiklir og henta kannski ekki þeim sem
vilja eingöngu léttan mat. Katrína mikla er afar
eftirminnilegur eftirréttur. Fyrir þá sem vilja
aðeins hóflegri útgáfu af rússneskum stað má
nefna elsta rússneska veitingastaðinn í
Helsinki, stofnaðan árið 1917, Bellevue við
Rahapajankatu 3.
GASTONE, KORKEAVUORENKATU 45
Einn vinsælasti ítalski veitingastaðurinn í
Helsinki. Hann er nærri Esplanadi-garðinum og
var opnaður árið 2003. Hér er oft fullt út úr
dyrum. Maturinn er blátt áfram, stórfínn, engin
töfrabrögð í gangi og ekkert sem hægt er að
kvarta yfir.
G. W. SUNDMANS, ETELÄRANTA 16
Fyrsta flokks einnar Michelin-stjörnu veitinga-
staður í gulleitu húsi við höfnina. Finnsk
matargerð eins og hún gerist best og mikið lagt
upp úr góðu hráefni. Á neðri hæðinni er G. W.
Sundmans Krog, staður sem sérhæfir sig í
sjávarréttum og er með aðeins léttara
yfirbragði.
KOSMOS, KALEVANKATU 3
Kosmos, í miðborg Helsinki, beint á móti
Stockmann's, hefur í meira en 80 ár verið
höfuðvígi menningarvita, stúdenta, leikara,
rithöfunda og listamanna. Segja má að núna
hafi þessi veitingastaður fengið eins konar
sígildan „költstatus“. Flottur staður, eins og
hann hefur alltaf verið. Viðskiptaveldi, stjórn-
málakenningar og veitingastaðir verða til og
hverfa en Kosmos er alltaf á sínum stað.
HÖNNUNARHVERFIÐ Í HELSINKI
Nýja Hönnunarhverfið er miðsvæðis í Helsinki.
Þar er fjöldinn allur af hönnunar- og antíkbúðum,
tískuverslunum, söfnum, galleríum, veitinga-
stöðum og sýningarsölum. Hérna má sjá verk
eftir hönnuðina, sem vakið hafa mesta athygli á
síðustu árum, verk eftir sígildu meistarana og
eftir hönnuðina sem gefa tóninn og hafa mest
áhrif þessa stundina.
Hönnunarhverfið í Helsinki er bæði borgarhverfi
og huglæg upplifun. Þarna eru 25 stræti og 150
staðir, merktir inn á kort af svæðinu, allt frá
verslunum til gallería og frá hönnunarsmiðjum til
hönnunarhótela. Gestir í hverfinu kynnast
sköpunarkrafti, einstakri upplifun, hönnun og
finnskri borgarmenningu.
Veitingastaðir
MÍN
Jón Þorsteinsson,
viðskiptafræðngur