Fréttablaðið - 07.03.2009, Síða 42
7. MARS 2009 LAUGARDAGUR2 ● fréttablaðið ● karlmenn og krabbamein
Mikið hefur áunnist í krabbameinsvörnum á þeim
tæpu 60 árum sem Krabbameinsfélag Íslands
hefur verið starfrækt. Ljóst er að félagið hefur lagt
lóð sitt á vogarskálarnar með ötulli vinnu að for-
vörnum, rannsóknum og greiningu krabbameina
til að ná þeim árangri sem við búum við í dag.
Krabbameinsfélagið hefur beitt sér fyrir fjölda
átaksverkefna og af umfjöllun mætti draga þá
ályktun að krabbamein væri algengara hjá íslensk-
um konum en körlum. Þessu er öfugt farið. Karl-
menn greinast oftar með krabbamein en konur en
það hafa ekki verið til hentugar skimunaraðferðir
og því ekki verið hægt að bjóða upp á hópleit hjá
körlum. Forvarnarstarfið hefur því í meira mæli
beinst að konum þar til nýlega að breyting hefur orðið þar á.
FORVARNIR
Sem heilbrigðisráðherra fagna ég átaki Krabbameinsfélagsins, enda
brýnt að vekja karla til umhugsunar um hvernig þeir geta sjálfir minnkað
hættuna á að fá krabbamein.
Horfur þeirra sem greinast með krabbamein hér á landi eru almennt
góðar og er heilbrigðisþjónusta okkar vel í stakk búin til að takast á
við þennan sjúkdóm. Þrátt fyrir þetta skiptir miklu að reyna að koma
í veg fyrir krabbamein með ýmiss konar forvörnum. Sýnt hefur verið
fram á að heilsusamlegur lífsstíll, góð heilsa og hollt mataræði hafa
mikið forvarnargildi en aðrir þættir spila einnig inn í, s.s. erfðir og
umhverfisáhrif.
Að auki er oft talað um krabbamein sem sjúkdóm efri áranna. Íslend-
ingar verða allra þjóða elstir og því eðlilegt að krabbamein sé algengt
dánarmein hér en krabbameinsvarnir geta komið í veg fyrir ótímabæran
dauða af völdum krabbameina.
Rannsóknir sýna að auk reykinga, sem við vitum að auka hve mest líkur
á krabbameinum, þá á óhollusta í mat, ofþyngd og hreyfingarleysi að ein-
hverju leyti þátt í um 30 prósent allra tilfella krabbameina í vestrænum
ríkjum heims. Mikilvægi þess að reykja ekki, borða hollan mat, halda
réttri líkamsþyngd og hreyfa sig verður seint brýnt um of fyrir fólki.
HEILBRIGÐIR LÍFSHÆTTIR
Heilbrigður lífsstíll, næg hreyfing og jafnvægi og hóf í matarvenjum er
lykillinn að bættri heilsu og vellíðan og fyrirbyggjandi gagnvart sjúkdóm-
um hvort sem um ræðir krabbamein, hjarta- og æðasjúkdóma eða áunna
sykursýki svo fátt eitt sé nefnt.
Kæru landsmenn. Ég hvet ykkur til að styðja við átakið sem nú er í
gangi og hugleiða hvernig þið getið sjálf nýtt ykkur það, eða stutt þá sem
í kringum ykkur eru til að nýta sér þá vitneskju og úrræði sem við í dag
búum yfir. Ögmundur Jónasson
ÁVARP HEILBRIGÐISRÁÐHERRA:
Heilbrigðir lífshættir
hafa jákvæð áhrif
Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Krabbameinsfélag Íslands stend-
ur nú í annað sinn fyrir átakinu
Karlmenn og krabbamein og er
athyglinni að þessu sinni beint
að fyrirbyggjandi þáttum tengd-
um lífsstíl, heilsu og mataræði
en rannsóknir sýna að hægt er
að koma í veg fyrir þriðja hvert
krabbameinstilfelli með heil-
brigðu líferni.
Hættan á krabbameini eykst
eftir fertugt hjá körlum og því
fór vel á því að gamlar landslið-
skempur í knattspyrnu skyldu
hefja átakið formlega 1. mars síð-
astliðinn með því að skora á ungu
mennina í A- og B-liði karlalands-
liðsins í innanhússfótbolta.
„Við vildum leggja okkar af
mörkum við að vekja athygli á
þessum góða málstað,“ segir
Pétur Ormslev, fyrrverandi lands-
liðsmaður, sem dæmdi leikinn en
hann hefur sjálfur háð baráttu
við krabbamein. „Hreyfing og
hollt mataræði getur skipt sköp-
um, ekki bara hvað krabbamein
varðar heldur einnig almenna
heilsu og vellíðan, og því vildum
við nota þetta tækifæri til að sýna
ungu mönnunum hvað við gömlu
karlarnir gætum!“
Það vantaði ekki tilþrifin í
Vodafone-höllinni að Hlíðarenda
en leikar fóru þannig að ungu
mennirnir höfðu sigur með þrem
mörkum gegn einu, þó svo að
gömlu kempurnar legðu allt í leik-
inn og spiluðu berir að ofan með
þrílitt herrabindi átaksins!
Krabbameinsfélagið færir Pétri
Ormslev og leikmönnum beggja
liða bestu þakkir fyrir aðstoðina
en liðin skipuðu:
Flautað til leiks!
Hér eru samankomin liðin sem spiluðu í Vodafone-höllinni. MYND/ÞÖK
Engin skipulögð allsherjar-
hópleit hefur verið á Íslandi
að krabbameini hjá körlum
en lengi hefur verið leitað
að krabbameini í leghálsi og
brjóstum kvenna.
Undirbúningur að leit að ristil-
krabbameini, bæði hjá körlum og
konum, hefur staðið yfir í nokk-
ur ár hérlendis, þar sem meðal
annars hefur verið lagt mat á
gildi slíkrar hópleitar, en engar
ákvarðanir liggja þó fyrir um
hvort eða hvenær af þeim geti
orðið.
JÁKVÆTT GILDI HÓPLEITAR VEGNA
RISTILKRABBAMEINS
Tíðni ristilkrabbameins fer vax-
andi og margar rannsóknir sýna
fram á jákvætt gildi skipulegrar
hópleitar og hafa ýmsir sérfræð-
ingar og áhugamenn sem starfa
á þessu sviði leitað til Krabba-
meinsfélags Íslands með sam-
starf í huga.
Hópleit kostar hins vegar tals-
verða fjármuni og er óljóst í
augnablikinu hvort vilji er fyrir
því af hálfu stjórnvalda að fara af
stað með slíka starfsemi við þær
erfiðu fjárhagslegu aðstæður sem
við búum nú við.
Við hópleit að krabbameini í
ristli væri leitað að blóði í hægð-
um og þeir sem greindust með
blóð í hægðum færu síðan í rist-
ilspeglun, til frekari greiningar
og meðferðar.
ALLSHERJARHÓPLEIT EKKI RAUNHÆF
ENN SEM KOMIÐ ER
Tvær aðrar tegundir krabba-
meina eru gjarnan einnig nefndar
þegar hópleitir berast í tal. Ann-
ars vegar krabbamein í blöðru-
hálskirtli og hins vegar í lungum.
Rannsóknir eru þó enn of misvís-
andi um gildi slíkra hópleita og
því er erfitt að mæla með skipu-
legri hópleit á þessu stigi.
Hvað framtíðin ber í skauti
sér skal ósagt látið. Sífellt verður
til ný þekking sem getur breytt
áherslum í meðferð og greiningu
krabbameina, eins og annarra
sjúkdóma.
Sigríður Snæbjörnsdóttir
formaður Krabbameinsfélags Íslands
Staða hópleitar að krabbameini
„Margar rannsóknir sýna fram á jákvætt gildi hópleita og hafa ýmsir sérfræðingar og
áhugamenn sem starfa á þessu sviði leitað til Krabbameinsfélags Íslands með sam-
starf í huga,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands.
MYND/ELLERT
Árlega greinast 655 karlmenn
með krabbamein á Íslandi. Flest-
ir með krabbamein í blöðruháls-
kirtli, eða 197, þvínæst 66 með
lungnakrabbamein, 54 með ristil-
krabbamein, 49 með krabbamein í
þvagvegum og blöðru, og 22 með
magakrabbamein. Að sögn Höllu
Skúladóttur, yfirlæknis í lyf-
lækningum krabbameina á Land-
spítalanum, eiga þessar tegund-
ir krabbameins flestar sameigin-
legt að þær má greina tímanlega
og fyrirbyggja að miklu leyti með
réttum aðferðum.
„Íslendingar hafa tileinkað sér
vestræna lífshætti sem hvetja til
kyrrsetu og neyslu á óhollustu,
sem stuðlar að þyngd-
araukningu og offitu.
Ekki nóg með að það
auki líkur á krabba-
meini og dragi úr
batahorfum þeirra
sem greinast, held-
ur aukast líkur á
æða- og hjartasjúk-
dómum.“ Halla
segir að því
verði karlar að
halda sér í kjörþyngd með því að
hreyfa sig og huga að mataræðinu.
„Rannsóknir sýna að með daglegri
neyslu um 500 gramma af ávöxt-
um og grænmetis má jafnvel helm-
inga líkur á að krabbamein mynd-
ist.“ Hún minnist á reykingar í því
samhengi. „Íslenskir karlmenn
hafa verið duglegir að hætta, nú
reykja um 18 prósent fullorðinna
karla, en þegar mest lét reyktu
yfir 50 prósent að staðaldri. Ég
er oft spurð að því hvort sé ekki
of seint að hætta ef maður hefur
reykt fram að sextugu. Það er öðru
nær, líkur á lungnakrabbameini
nærri helmingast þó að hætt sé svo
seint, ef hætt er fyrir þrítugt eru
líkur á að fá lungnakrabbamein
hverfandi.
Því miður láta karla heilsu-
tengd málefni sitja á hakan-
um. En karlar þurfa að læra
að bregðast við einkenn-
um sínum, það getur skipt
sköpum.“ - rve
Algeng krabbamein
Halla segir reglulega
læknisskoðun mikil-
væga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útgefandi: Krabbameinsfélag Íslands Heimilisfang: Skógarhlíð 8, 105
Reykjavík Vefsíður: www.krabb.is og www.karlmennogkrabbamein.is
Netfang: krabb@krabb.is Ritstjóri: Gústaf Gústafsson Ábyrgðarmaður:
Guðrún Agnarsdóttir Forsíða: ÞÖK Auglýsingar: Fréttablaðið/Hlynur Þór
Steingrímsson s. 512 5339
40+
Bjarni Sigurðsson
Ólafur Jóhannesson
Arnór Guðjohnsen
Ólafur Þórðarson
Þorgrímur Þráinsson
Arnar Gunnlaugsson
Rúnar Kristinsson
Pétur Pétursson
Dómari: Pétur Ormslev
A+B landslið
Daði Lárusson
Davíð Þór Viðarsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Gunnar Már Guðmundsson
Heiðar Geir Júlíusson
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Haukur Ingi Guðnason
Tryggvi Guðmundsson
Hjálmar Þórarinsson
Guðmundur Kristjánsson
Helgi Sigurðsson
Þórður Ingason