Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 44
7. MARS 2009 LAUGARDAGUR4 ● fréttablaðið ● karlmenn og krabbamein
Páll Gíslason ásamt konu sinni, Arnfríði Gísladóttur, að loknu vel lukkuðu Reykjavík-
urmaraþoni. MYND/ÚR EINKASAFNI
Rannsóknir sýna að koma má í
veg fyrir þriðjung allra krabba-
meina með hollum lífsháttum.
„Krabbamein er ógnvekjandi orð
í eyrum margra og enn loðir við
sjúkdómsgreininguna ótti við
dauðadóm, en batahorfur hafa
gjörbreyst til hins betra á undan-
förnum áratugum varðandi marg-
ar tegundir krabbameina. Alltaf
skiptir samt mestu að greina mein-
ið nógu snemma,“ segir Guðrún
Agnarsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélags Íslands, sem út-
skrifaðist úr læknadeild Háskóla
Íslands vorið 1968.
„Þá var hvítblæði í börnum nær
undantekningarlaust dauðadóm-
ur, en nú læknast langflest þeirra
og verða albata. Miklar framfar-
ir hafa orðið bæði í greiningu og
meðferð krabbameina; þó er það
mismunandi eftir tegundum sjúk-
dóma.“
Guðrún segir batahorfur lungna-
krabbameins einna verstar, en sú
tegund er ein þriggja algengustu
krabbameina sem greinast hjá ís-
lenskum körlum. Hin eru blöðru-
hálskirtiskrabbamein, sem er
algengast, og krabbamein í ristli.
„Þetta er í annað sinn sem við
erum með átak vegna karla og
krabbameins, en í fyrra var áhersl-
an á að þekkja einkenni sjúkdóms-
ins. Það átak mældist með mestu
áhrifavirkni svipaðra átaka í Evr-
ópu sem sýndi sig í aukinni aðsókn
karla til þvagfæralækna og í Ráð-
gjafarþjónustu okkar. Nú viljum
við vekja karla til umhugsunar um
hvernig koma má í veg fyrir eitt
af hverjum þremur krabbamein-
um með því að bæta eða temja sér
góðan lífsstíl, hollt mataræði og
reglubundna hreyfingu.“
Að sögn Guðrúnar er körlum
enn ekki boðið upp á reglulega
hópleit að blöðruhálskirtilskrabba-
meini, líkt og lengi hefur verið
gert vegna krabbameins í brjóst-
um og leghálsi kvenna. „Enn eru
ekki til nógu áreiðanlegar aðferðir
til að leita að því krabbameini, en
hægt væri að bjóða bæði körlum
og konum í ákveðnum aldurshóp-
um upp á hópleit að ristilkrabba-
meini og slík skoðun getur skipt
miklu til að lækka bæði sjúkdóms-
og dánartíðni. Við vonumst til að
heilbrigðisyfirvöld setji slíka hóp-
leit á laggirnar sem fyrst og viljum
gjarnan taka þátt í henni,“ segir
Guðrún. „En karlar þurfa að vera
vakandi, þekkja einkenni krabba-
meina almennt og leita til lækna ef
ástæða er til,“ bætir hún við.
Samkvæmt Krabbameinsskrá
er einn af hverjum þremur Íslend-
inga líklegur til að greinast með
krabbamein á lífsleiðinni.
„Tíðni krabbameina er að auk-
ast hjá báðum kynjum og áfram-
haldandi aukningu er spáð. Megin-
ástæðan er sú að ævilengd okkar
eykst, en krabbamein er fyrst og
fremst sjúkdómur efri áranna,“
segir Guðrún. Hún bætir við að
krabbamein sé að einhverju leyti
lífsstílssjúkdómur.
„Um miðja síðustu öld var
magakrabbamein mjög algengt
á Íslandi, en eftir að þjóðin
eignaðist ísskápa og hóf neyslu
ferskari fæðu í stað reykts og
saltaðs matar, hrapaði tíðni þess.
Og bara sú eina aðgerð að allir
myndu hætta að reykja og enginn
byrja, mundi valda straumhvörf-
um í heilsufari þjóðarinnar. Reyk-
ingar eru lífsstíll, en sama á við
um áfengi, sólböð, mataræði og
hreyfingu. Þannig er það ýmis-
legt sem við getum gert þótt eng-
inn sé óhultur, en líkur á langlífi
og hreysti aukast til muna með
góðum lífsstíl.“ - þlg
Ekki alltaf dauðadómur
Páll Gíslason verkfræðingur
greindist með illkynja nýrna-
krabbamein árið 2002. Hann gekkst
undir skurðaðgerð þar sem annað
nýrað var fjarlægt og dvaldi í tíu
daga á spítala. „Ég gaf mér það
strax og ég var kominn heim að
sennilega yrði stór hluti af því að ná
fyrri þrótti að fara að hreyfa sig,“
segir Páll sem byrjaði að ganga
strax og hann gat. „Í fyrstu voru
það aðeins nokkur hundruð metr-
ar en brátt var ég farinn að ganga í
kringum Seltjarnarnesið, þar sem
ég á heima, á hverjum degi,“ segir
Páll sem fór á rjúpnaveiðar aðeins
nokkrum vikum eftir að hann var
skorinn. „Svo fór ég á skíði aðeins
þremur mánuðum eftir greining-
una við litla hrifningu læknisins,“
segir hann glettinn.
Páll hafði stundum verið að gutla
við að hlaupa áður en hann greind-
ist og hljóp fyrsta sumarið eftir
uppskurðinn tíu kílómetra. „Það
var þó ekki fyrr en fjórum árum
síðar sem vinkona mín sló því fram
í hálfkæringi hvort við ættum
ekki að hlaupa saman í maraþon-
inu í New York,“ segir Páll sem þá
ákvað að halda upp á að fimm ár
væru liðin frá greiningu með því
að hlaupa maraþon bæði í New
York og Kaupmannahöfn. En oft er
miðað við að fólk teljist úr áhættu
eftir fimm ár.
Páll hefur ekki slegið slöku við;
á síðasta ári hljóp hann fimm erfið
hlaup og í ár verða þau tvö eða þrjú,
en meðal annars er stefnan sett á
Laugaveginn í júní.
En hefur hann breytt einhverju
öðru í lífi sínu? „Ja, ég hugsa að-
eins meira um hvað ég læt ofan í
mig. Svo tek ég ekki lyf nema til-
neyddur eftir þetta.“
Páll fer í reglulegt eftirlit en svo
virðist sem læknarnir hafi náð öllu
krabbameininu í fyrstu atrennu.
„Þegar maður fær krabbamein
er best að það greinist snemma
og að hægt sé að skera það allt í
burtu. Það var mitt lán að hægt
var að taka nýrað og krabba-
meinið í heilu lagi,“ segir hann og
áréttir að fjölskyldan sé ótrúlega
mikilvæg þegar farið sé í gegnum
slíka reynslu. „Ég hefði ekki kom-
ist í gegnum þetta nema með hjálp
hennar.“ - sg
Hélt upp á fimm ár án
krabba með maraþoni
„Við höfum ályktað svo að hérlend-
is ætti að bjóða upp á hópleit að
krabbameini í blöðruhálskirtli, en
læknum á Norðurlöndum þykir það
ekki ráðlagt þar sem aðferðin er
ekki nógu áreiðanleg. Bandarísku
læknasamtökin hafa í langan tíma
ráðlagt skimun fyrir PSA í blóði,
sem blöðruhálskirtill gefur frá sér
ef krabbamein er komið í hann, og
hefur tíðni nýgengis vestra lækkað
mikið á liðnum árum,“ segir Oddur
Benediktsson, prófessor í tölvunar-
fræði og formaður Krabbameins-
félagsins Framfarar, sem stofnað
var 2007 (sjá www.framfor.is).
Um mitt ár gefur Framför, í fé-
lagi við JPV, út bókina Cooking
with foods that fight cancer, þar
sem farið er vel í nýjustu athugan-
ir á fæði sem heftir tilurð og við-
gang krabbameins.
„Eftir að ég greindist sjálf-
ur með sjúkdóminn fór ég að at-
huga hvað skrifað hefði verið um
orsakir hans. Fljótlega kom í ljós
að hæsta tíðni á heimsvísu er á
Norðurlöndunum; þar sem Íslend-
ingar eru næstefstir í röðinni á eftir
Norðmönnum. Við höfum leitað
svara við ástæðum þessa, en engin
svör fást, utan hvað mjólkurneysla
ásamt fituneyslu er há í þessum
löndum, samanborið við Miðjarðar-
hafsþjóðir sem hafa helmingi lægri
tíðni, en þar er mataræði og lífs-
máti allt annar. Í Kína er tíðnin
afar lítil, enda mjólkurneysla nær
engin, og meira framboð fæðuteg-
unda sem hefta tilurð og viðgang
hormónabundinna kirtlakrabba-
meina, eins og blöðruhálskirtils-
og brjóstakrabbameina.“ - þlg
Næsthæst tíðni meðal Íslendinga
Prófessor Oddur Benediktsson stofnaði Krabbameinsfélagið Framför í félagi við aðra
sem greinst höfðu með sjúkdóminn veturinn 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Guðrún Agnarsdóttir er forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Hún segir batahorfur
krabbameinssjúkra hafa stórbatnað á liðnum áratugum. Hér er hún með bindi átaks-
ins, sem sýnir einkennisliti þriggja algengustu krabbameina í körlum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Haukur Bergsteinsson greindist
með blöðruhálskirtilskrabbamein
árið 2005. Hann var þá nýlega
byrjaður að skokka, 69 ára gamall.
„Ég tók þátt í sex vikna skokknám-
skeiði í vinnunni og hefði líklega
gefið skokkið upp á bátinn ef ég
hefði ekki greinst,“ segir Hauk-
ur sem ákvað að halda áfram að
hreyfa sig þrátt fyrir veikindin
og geislameðferð. „Maður fór að
meta það betur að geta verið úti að
hlaupa og naut þess betur,“ segir
Haukur.
Haukur byrjaði að stunda sjó-
sund síðastliðið sumar og hefur í
vetur farið tvisvar í viku í sjóinn.
„Nú er opið þrisvar í viku og þá fer
ég líka þrisvar,“ segir hann glað-
lega og stefnir á að þreyja Viðeyj-
arsund í sumar.
Haukur breytti einnig matar-
æði sínu eftir að hann greindist.
„Ég finn að ég er léttari á mér ef
ég borða meira grænmeti. Ég er
ekki hættur að borða kjöt en hef
minnkað það mikið,” segir Haukur
sem fór á Hvannadalshnúk þegar
hann var sjötugur og árið eftir á
Heklu. „Síðasta sumar ætlaði ég
á Fimmvörðuháls en það datt upp
fyrir, en ég stefni ótrauður á það í
sumar,“ segir Haukur sem tók blóð-
þrýstingslyf í mörg ár áður en hann
greindist en gat hætt á þeim eftir
að hann byrjaði að skokka. - sg
Metur betur útiveru
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA
Haukur Bergsteinsson
sprettur úr spori.