Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 48
Hugmyndina að samtökunum átti
barnasálfræðingurinn Dr. Doris
Allen árið 1946 þegar heimurinn
var í sárum eftir seinni heimstyrj-
öldina. Dr. Allen fannst ekki rétt
að miða hugmyndir um friðarupp-
byggingu eingöngu við fullorðna
heldur ætti að innræta umburðar-
lyndi gagnvart ólíkri menningu
þjóða strax á barnsaldri. Árið 1951
voru fyrstu sumarbúðir barna frá
mismunandi löndum haldnar.
„Við höfum starfað hátt í 30
ár á Íslandi og sent yfir eittþús-
und einstaklinga í sumarbúðir til
útlanda,“ segir Ástbjörg Ýr Gunn-
arsdóttir en hún heldur utan um
sumarbúðirnar ásamt Eddu Hall-
dórsdóttur, formanni samtakanna
á Íslandi.
„Við sendum hópa af ellefu ára
krökkum um allan heim. Einn
hópur samanstendur af tveimur
stelpum og tveimur strákum og
svo fararstjóra. Í ár erum við að
senda til meðal annars til Noregs,
Bandaríkjanna og Portúgal.“
Búðirnar standa í fjórar vikur
og í viðkomandi landi gistir hóp-
urinn í skóla ásamt tólf öðrum
hópum frá mismunandi löndum.
Ásta útskýrir að á þessum aldri
séu krakkar móttækilegastir fyrir
utanaðkomandi áhrifum og því sé
þetta besti aldurinn til að koma í
veg fyrir fordóma.
„Þarna kynnast þau menningu
ólíkra þjóða sem er markmið sam-
takanna. Krakkarnir fara í leiki
og er meðal annars rætt við þau
um stríð í heiminum. Hver þjóð
hefur svo kynningarkvöld á sinni
menningu. Krakkarnir héðan fara
til dæmis með nammi frá Íslandi,
setja upp skemmtiatriði og dreifa
bæklingum. Einnig fara hóparnir
í kynnisferðir um landið sem búð-
irnar eru í og gista inni á heimili
eina helgi, tvö og tvö saman frá
sitthvoru landinu,“ útskýrir Ásta.
Samtökin standa einnig fyrir
tveggja vikna skiptiprógrammi
fyrir unglinga á aldrinum 12 til
13 ára til Ítalíu. Krakkarnir fara
út í 10 manna hóp og er skipt niður
á heimili. Dagskrá er fyrir allan
hópinn fyrri vikuna en þá koma
ítölsku unglingarnir til Íslands
og gista hjá vinum sínum í viku.
Ásta segir reynsluna sem krakk-
arnir öðlist í sumarbúðunum ein-
staka og vinatengslin sem mynd-
ast milli krakkanna eitthvað sem
þau búi að alla æfi. „Foreldrarn-
ir fá allt annað barn heim en það
sem þau sendu út.“
Nánari upplýsingar er að finna
á www.cisv.org en einnig er hægt
að sækja um á tölvupósti til cisv@
cisv.is. heida@frettabladid.is
Ómetanleg upplifun
Samtökin CISV eru alþjóðleg samtök sem senda ungmenni í sumarbúðir um allan heim. Markmið sam-
takanna er að vinna gegn fordómum gagnvart menningu annarra þjóða og stuðla þannig að friði.
Krakkarnir í hnútaleik þar sem reynir á samvinnu. MYND/ÚR EINKASAFNI
Hópmynd af krökkum í sumarbúðum á vegum CISV samtakanna. MYND/ÚR EINKASAFNIN
ASK.HI.IS er vefsvæði Alþjóðaskrifstofu háskólastigs-
ins. Þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um nám
erlendis, stúdentaskipti, styrki og tungumálanámskeið.
www.tskoli.is
Næstu námskeið
Íslenskt hönnunarferli
Vinnustofa með handverkshefðina sem
leiðarvísir að vistvænni hönnun.
Karl Aspelund fatahönnuður.
Tími: 18. mars.
Námskeiðsgjald: 3.500 kr.
Grjóthleðslur 1 – náttúrugrjót
Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem vinna við
eða hafa áhuga á grjóthleðslum úr náttúru-
grjóti.
Tími: 25. - 27. mars.
Námskeiðsgjald: 42.000 kr.
Smáskipanámskeið (12 m)
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var
nefnt 30rl réttindanám (pungapróf).
Tími: 15. apríl og í fjarnámi frá 4. apríl.
Námskeiðsgjald: 105.000 kr.