Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 51
LAUGARDAGUR 7. mars 2009 5
„Okkur langar til að brjóta upp
þetta þunga skap sem hrjáð hefur
Íslendinga síðan kreppan skall á,
um leið og við sjáum tækifæri til
að láta gott af okkur leiða,“ segir
Sigurður Páll Sigurðsson, kenn-
ari og myndlistarmaður, sem
ásamt Sunnefu Burgess lífskúnst-
ner hefur skipulagt æðislegt fjöl-
skyldugaman í Bláfjöllum frá
klukkan 17 til 22 í kvöld. Allur
ágóði af miðasölu skíðasvæðisins
mun renna óskiptur til Breiðra
brosa, sem eru samtök aðstand-
enda barna með skarð í vör.
„Við ákváðum strax að styrkja
börn í einhverri mynd og þegar
starfsmaður Bláfjalla benti okkur
á Breið bros, sem aldrei hafa hlot-
ið slíkan styrk, vorum við viss um
að gera rétt með því að leyfa þeim
börnum að njóta góðs af.“
Sú nýlunda skapast í Bláfjöllum
þegar kvöldar að opið verður til
22, en alla jafna er skíðasvæðinu
lokað klukkan 17 um helgar. „Laug-
ardagskvöld eru sparikvöld vik-
unnar því þá gefast tækifæri fyrir
fjölskyldur og vini að gera eitthvað
sérstakt saman. Skíðaferð samein-
ar útivist, hollustu, fjölskyldusport
og skemmtan og með því að hafa
skíðasvæðið lifandi með uppák-
omum að kvöldi til skapast eft-
irsóknarverð
stemning
sem marg-
ir þekkja
úr Ölpun-
um, en
víst er að margir þurfa að neita
sér um árlega skíðaferð til útlanda
í ástandinu nú,“ segir Siggi Palli,
og víst verður margt til að gleðja
gesti Bláfjalla í
kvöld.
Á svæðinu
mun DJ Áki
Pain leika tón-
list úr ýmsum
áttum við lyfturnar
og við lyftuhúsin verð-
ur selt kakó og piparkökur,
ásamt kjötsúpu og samlokum í
veitingaskála. Þá verður Brettafé-
lagið með sýningu, Þorsteinn
Guðmundsson grínisti
kynnir tískusýningu frá
Brimi, byrjendum býðst skíða-
kennsla og Ölgerðin gefur gestum
hressandi Mountain Dew.
„Rúsínan í pylsuendanum verða
útitónleikar Dr. Spock sem loka
dagskránni, en það er einsdæmi
að hljómsveit stígi á ísi lagt svið í
kolsvörtum kvöldfaðmi íslenskra
fjalla. Þá mun vafalaust valda
geðshræringu og þjóðerniskennd
þegar öll ljós verða slökkt klukk-
an 21 og 40 manna blysför fer
skíðandi niður brekkurnar undir
íslenskum þjóðlögum. Ef skyggn-
ið verður gott mun bjarminn líka
sjást alla leið til Reykjavíkur.“
Boðið verður upp á fríar rútu-
ferðir frá BSÍ klukkan 16.30 og
18.30 og til baka úr Bláfjöllum
klukkan 22. Landsmenn eru hvatt-
ir til að þjappa sér saman og taka
þátt í gleðinni. thordis@frettabladid.is
Fjölskyldupartí í fjöllum
Það verður sannkölluð Alpastemning í Bláfjöllum í kvöld þegar Dr. Spock heldur þar útitónleika og
skíðafólki verður skemmt með tískusýningu, brettafjöri, kjötsúpu, kakói, þjóðsöngvum og blysför.
Sunnefa Burgess lífskúnstner og Sigurður Páll Sigurðsson, kennari og myndlistar-
maður, eru hugmyndasmiðir að skemmtan kvöldsins í Bláfjöllum, en hvatinn að
fjörinu var að þjappa þjóðinni saman á glaðri stundu um leið og góðu málefni væri
lagt lið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Meðal þess sem hægt er
að sjá í Bláfjöllum í kvöld er
sýning Brettafélagsins.
Þjóðbúningadagur verður hald-
inn í Þjóðminjasafni Íslands í
dag.
Gestir Þjóðminjasafnsins eru
hvattir til að mæta á þjóðbúningi
í dag til að sýna sig og sjá aðra.
Nýbúar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir á þjóðbúningi síns heima-
lands og skemmtilegt að fjöl-
breytnin verði sem mest.
Athyglisvert getur verið fyrir
alla þá sem eru áhugasamir
um þjóðbúninga að koma og
sjá margbreytileika bún-
inganna. Aðstaða verður
til myndatöku fyrir þá
sem vilja mynda fólk í
mismunandi þjóðbún-
ingum.
Allir
sem
mæta
í safnið í
búningi fá
frítt inn. - eö
Frítt inn fyrir
þá þjóðlegu
Gestir eru hvattir til að mæta í þjóð-
búningi.
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
Kolaportið er OPIÐ
laugardaga og
sunnudaga
frá kl. 1100-1700
SÉRFERÐIR
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...