Fréttablaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 7. mars 2009 115
Áhugaverð og gagnleg
starfsemi í Rauðakrosshúsinu
Ókeypis
ráðgjöf
námskeið og
Allir velkomnir í Rauðakrosshúsið
Rauðakrosshúsið er miðstöð fyrir alla landsmenn þar sem einstaklingar og
fjölskyldur geta leitað stuðnings við að takast á við breyttar aðstæður, fengið
ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu - eða nýtt krafta sína
öðrum til gagns. Öll þjónusta og viðburðir eru gestum að kostnaðarlausu.
Sálrænn stuðningur
Á námskeiðinu verður fjallað um áhrif alvarlegra atburða á andlega líðan fólks og
viðbrögð þess í kjölfar slíkra atburða. Bent verður á hvað er mikilvægt fyrir fólk að
gera í þessu sambandi til þess að mæta vandanum á uppbyggilegan hátt. Þá verður
einnig farið yfir það hvernig best er að mæta börnunum í þeim aðstæðum sem nú
ríkja hér á landi.
Fagaðilar veita ráðgjöf
Í Rauðakrosshúsinu getur fólk sótt sér sálrænan stuðning hjá fagaðilum úr
áfallateymi Rauða krossins sér að kostnaðarlausu. Sérþjálfaðir sjálfboðaliðar
taka á móti fólki og aðstoða það við að finna úrræði við hæfi . Ýmsir aðrir
sérfræðingar veita ráðgjöf, m.a. frá samstarfsaðilum en þeir eru Fjármálastofa
heimilanna, Þjóðkirkjan og Öryrkjabandalag Íslands.
Félagsstarf og fræðsla
Rauðakrosshúsið er vettvangur fyrir ýmis konar félagsstarf og fræðslu (sjá
nánari dagskrá á heimasíðunni raudakrosshusid.is). Þar er aðstaða fyrir börn,
kaffihorn þar sem lesa má blöð og bækur, tölvuver, námskeið og ýmislegt fleira.
Gestir eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna og félagsskap annarra til að halda
uppi lifandi starfi í Rauðakrosshúsinu. Dagleg starfsemi er í höndum sjálfboðaliða.
Námskeið vikuna 9. - 13. mars
Götubörn í Windhoek í Namebíu
Kynning á niðurstöður meistararitgerðar í Þróunarfræðum um aðstæður götubarna
í Windhoek höfuðborgar Namibíu. Fjallað verður um rannsóknarspurningu
verkefnisins sem er: Eru götubörnin í Windhoek leiðtogar í sínu lífi eða eru þau
fórnarlömb aðstæðna?
Foreldrafærni
Kynning á lykilatriðum í foreldrafærni sem geta skipt sköpum ekki síst á óvissutímum.
Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þessara þátta í góðu uppeldi.
Endurlífgun
Oftast eru það vinir eða ættingjar sem fyrstir koma á vettvang þegar einhver slasast
eða veikist alvarlega? Stutt skyndihjálparnámskeið getur gert þér kleyft að bjarga
mannslífi þegar mínútur skipta máli. Á þessu stutta námskeiði verða nær eingöngu
verklegar æfingar. Allir þátttakendur fá að æfa endurlífgun (hjartahnoð og blástur)
og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Grundvallaratriði í ljósmyndun
Farið verður í þá þætti ljósmyndunar sem oftast “klikka” hjá fólki og nokkur einföld
og hagnýt ráð um ljósmyndun gefin sem geta gert góðar ljósmyndir en betri.
Létt spjalla og fyrirspurnir í lok kynningar.
Ráðgjafastofa um fjármál heimilana
Kynning á hlutverki og helstu verkefnum stofnunarinnar. Fyrirspurnir og spjall í lok
kynningar.
Borgartún 25 Sími: 5704000 www.raudakrosshusid.is Opið alla virka daga kl. 14-18