Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 67
LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
„Við studdum Krabbameinsfélag
Íslands í fyrra, þrátt fyrir að
taka ekki beint þátt í herferð-
inni Karlmenn og krabbamein,
og hlutum góðar viðtökur. Apó-
tekin og viðskiptavinirnir voru
mjög ánægðir með þetta framtak
hjá okkur. Við ákváðum því að
gera þetta með meiri stæl í ár og
þannig undirstrika sameiginleg
markmið Krabbameinsfélagsins
og Nicotinell í baráttunni gegn
reykingum,“ útskýrir Brynjúlf-
ur Guðmundsson, sölu og mark-
aðsstjóri fyrirtækisins Artasan
sem er með umboðssölu á Nicoti-
nelli lyfjum, svo sem tyggigúmm-
íi, munnsogstöflum og plástrum.
Rannsóknir sýna að með því að
nota Nicotinelli vörur geta reyk-
ingamenn tvöfaldað möguleika
sína á að hætta tóbaksreykingum
til frambúðar.
Í fyrra runnu 20 krónur af
hverjum seldum Nicotinelli
pakka beint til Krabbameinsfé-
lags Íslands. Í ár ætla forsvars-
menn fyrirtækisins að bæta um
betur, með því að láta 100 krónur
af hverjum seldum pakka renna
til félagsins, og gildir þá einu um
hvernig vöru er að ræða eða hvar
hún er keypt. „Það skiptir engu
máli hvort þú kaupir Nicotinelli
tyggigúmmí, munnsogstöflur eða
plástra, í litlum eða stórum um-
búðum, í apóteki eða almennum
verslunum; Alltaf renna hundrað
krónur af hverjum pakka til fé-
lagsins,“ bendir Brynjúlfur á og
bætir við að 460.000 krónur safn-
ast hafi safnast í fyrra, en nú sé
stefnt að því að safna einni og
hálfri milljón íslenskra króna.
Að mati Brynjúlfs er mjög mik-
ilvægt að benda á skaðsemi reyk-
inga og ekki síst um þessar mund-
ir. Því þótt honum sé ekki kunnugt
um að tilfellum lungnakrabba-
meins hafi fjölgað að undanförnu
viti hann hins vegar til þess að
tóbakssala hafi aukist í efnahags-
kreppunni. „Við erum að reyna að
spyrna gegn þeirri þróun með því
að fá fólk til að hætta reykingum
með eða án hjálpar Nicotinell.
Við skulum muna að landlæknir
hefur lýst því yfir að reykingar
séu helsta heilsuvandamál 21. ald-
arinnar, enda ekki að ósekju þar
sem einn Íslendingur deyr á dag
af völdum reykinga.“
- rve
Hjá Frumherja fá bílar árvissa
og nákvæma ástandsskoðun,
en best færi á að eins væri með
líkama og sál.
„Það þarf auðvitað að skoða okkur
karlana eins og bílana og blessað-
ar konurnar, en hingað til hefur
vakning verið mest í sambandi
við kvennakrabbamein. Því fögn-
um við karlar þessu ágæta átaki
því ekki virðist vanþörf á að vekja
okkur aðeins,“ segir Helgi Harðar-
son, skoðunarmaður hjá Frum-
herja, sem er einn af styrktar-
aðilum átaksins Karlar og krabba-
mein. Hann bætir við að ungum
mönnum sé heilsubrestur síst í
huga, en menn verði meðvitaðri
um hverfulleika lífsins eftir því
sem þeir verða eldri. Því væri gott
að geta farið til læknis í almenna
skoðun og fengið staðfest að kropp-
urinn væri í pottþéttu standi.
„Oftast er það nú óvart sem
krabbamein uppgötvast hjá körl-
um, en ég hef á tilfinningunni að
menn séu að verða samviskusam-
ari gagnvart eigin kroppi við þessa
vakningu. Auðvitað væri réttast að
geta gengið að árvissri læknisskoð-
un, rétt eins og okkur er fyrirskip-
að að fara með bílinn okkar í ár-
lega skoðun þegar hann nær viss-
um árafjölda. Líkaminn hlýtur að
vega þyngra en bíllinn og eftir því
sem við eldumst verður nauðsyn-
legra að kíkja á ástandið,“ segir
Helgi sem býður viðskiptavinum
Frumherja að kaupa strikamerki í
þremur verðflokkum til stuðnings
Krabbameinsfélaginu.
„Hér er alltaf mikið rennerí og
meirihlutinn karlar að koma með
bílana í skoðun. Flestir fara milli-
veginn og kaupa strikamerki á 500
krónur, en margt smátt gerir eitt
stórt. Okkur Frumherjafólki finnst
góð tilfinning að veita fjölskyldum
öryggi með því að yfirfara ástand
bifreiða þeirra, og ekki síst að
safna fjármunum fyrir Krabba-
meinsfélagið og leggja málefninu
lið.“ - þlg
Ástandsskoðun líkamans
mikilvæg, eins og bílsins
Brynjúlfur segir rannsóknir sýna að með notkun nikótínvara geti einstaklingur tvö-
faldað möguleikana á að hætta reykingum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gerum þetta með stæl
Helgi Harðarson starfar sem skoðunarmaður hjá Frumherja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ıwww.itr.is sími 411 5000
Góð hreyfing
er lykillinn að góðri heilsu
Kynntu þér forvarnir gegn krabbam
eini á
karlmennogkrabbamein.is