Fréttablaðið - 07.03.2009, Síða 71
LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 11karlmenn og krabbamein ● fréttablaðið ●
Gagnlegt
gegn
krabbameini
SÖLUSTAÐIR STYRKTARMIÐA
Styrktarmiðar að upphæð 250, 500
og 1.000 krónur, eru til sölu hjá
öllum samstarfsaðilum átaksins,
þ.á.m. öllum helstu matvöruversl-
unum landsins.
Samstarfsaðilar Krabbameins-
félagsins og söluaðilar eru: Bónus,
Krónan, Nettó, Samkaup, Nóatún,
Hagkaup, 11-11, Kjarval, Penninn,
Eymundsson, Frumherji, Íslands-
póstur, Herragarðurinn og ÍTR/
sundlaugar Reykjavíkur.
HERRABINDI OG SLAUFUR
Jafnframt eru til sölu þrílit herra-
bindi í öllum verslunum Herra-
garðsins til stuðnings átakinu.
Þau kosta 4.990 krónur og tákna
litirnir - blár, hvítur og fjólublár
– þrjú algengustu krabbamein hjá
körlum.
Sérhannaðar slaufur til styrktar
átakinu eru einnig boðnar fyrir-
tækjum í landinu til kaups á 1.000
krónur stykkið og hefur fyrir-
tækjasvið Pennans veg og vanda
að sölu þeirra.
Ágóði af átakinu fer til fræðslu
og ráðgjafar við krabbameins-
sjúklinga og aðstandendur þeirra.
STYRKTARAÐILAR ÁTAKSINS
Alcoa Fjarðaál er aðalstyrktaraðili
átaksins Karlmenn og krabbamein.
Aðrir styrktaraðilar eru Margt
smátt, Nicotinell og Sölufélag
garðyrkjumanna. Lýðheilsustöð er
einnig stuðningsaðili átaksins.
Sölustaðir og
styrktaraðilar
Steinar, talsmaður átaksins Karlmenn og
krabbamein, hefur verið önnum kafinn á sam-
skiptavefnum Facebook og hefur nú þegar safnað
á sjötta þúsund vina. Steinar hvetur alla Face book-
meðlimi til að heimsækja síðu átaksins og styðja
við gott málefni. Þar er einnig hægt að fylgjast
með framgangi átaksins, leita sér upplýsinga og
taka þátt í umræðu um karlmenn og krabbamein.
Þá er hægt að leita sér upplýsinga á heimasíðu
átaksins, www.karlmennogkrabbamein.is, sem og á
heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is.
Steinar á
Facebook
Matur sem veitir vörn
gegn krabbameini:
● Hvítlaukur
● Laukur
● Gulrætur
● Kál
● Spínat
● Soja
● Hörfræ
● Tómatar
● Tómat-
púrra
● Svartur pipar
● Bláber, brómber, hindber
● Vínber
● Dökkt súkkulaði (70%)
● Appelsínu/sítrónusafi
● Grænt te
● Baunir
● Gróft korn
● VISSIR ÞÚ AÐ:
■ 3% allra núlifandi íslenskra karla hafa einhvern tímann greinst með
krabbamein.
■ Neysla áfengis eykur hættuna á sumum tegundum krabbameins. Því
mun meira áfengi, þeim mun meiri áhætta.
■ Tíðni illkynja húðkrabbameina hefur stóraukist á undanförn-
um áratug. Helsta orsökin er sólbruni.
■ Dagleg hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna og getur
komið í veg fyrir sum krabbamein.
■ Ofþyngd eykur hættuna á krabbameinum af ýmsu tagi.
■ Það eru tvöfalt meiri líkur á að reykingamenn deyi úr
krabbameinum en þeir sem ekki reykja.
■ Yfir 90% allra krabbameina í lungum má rekja til reykinga og reykinga-
menn eru líka í aukinni hættu fyrir öðrum krabbameinum.
■ Á hverjum degi deyr einn Íslendingur vegna reykinga.