Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 79
LAUGARDAGUR 7. mars 2009
Skrá þarf þátttöku fyrir 10. mars á www.lydheilsustod.is/skraning - merkja Árnamessa.
(Málþingið er í boði Lýðheilsustöðvar og því þarf ekki að fylla út í reiti fyrir greiðanda.)
Rútur leggja af stað frá BSÍ kl. 9. Einnig er hægt að taka fundargesti upp í við bensínstöð N1 Ártúns-
höfða. Vinsamlegast skráið í athugasemdagluggann í skráningarforminu ef þið verðið ekki með í
rútunni frá BSÍ, og þá annaðhvort að þið komið ekki í rútuna, eða komið um borð á Ártúnshöfða.
Fundarstjóri: Helgi Seljan
12:00 HÁDEGISMATUR
13:00 Setning málþings
Helgi Seljan, fv. alþingismaður og fundarstjóri Árnamessu
13:10 Árni Helgason og bindindismálin: um frelsi, kærleik og betra samfélag
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar
13:30 Frjáls félagasamtök í forvörnum: staða og tækifæri
Árni Einarsson, uppeldisfræðingur
13:50 Staða áfengis í samfélaginu
Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur
14:10 Flott án fíknar: nútíma forvarnir
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi UMFÍ
14:30 Straumar og stefnur í áfengispólitík
Rafn M Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Lýðheilsustöð
14:50 KAFFIHLÉ OG SKÁKMÓT ÁRNAMESSU*
15:30 Panelumræður
Stjórnandi: Halldór Árnason, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneyti
16:15 Málþingi slitið
16:30 Rútuferð til baka
* Í tengslum við Árnamessu er haldið veglegt skákmót fyrir grunnskólanema
(sjá kynningu á skákmótinu: www.lydheilsustod.is )
ÁRNAMESSA, STYKKISHÓLMI
laugardaginn 14. mars 2009
Lýðheilsustöð boðar til málþings helgað Árna Helgasyni um stöðu áfengismála á Íslandi,
haldið í grunnskóla Stykkishólms, Borgarbraut 6, kl. 12-16:30
Þriðjudaginn 17. mars 2009 – kl. 09.00-17.00 í Háskólanum í Reykjavík.
Eþikos og Útflutningsráð Íslands bjóða upp á námskeið um innleiðingu samfélags-
ábyrgðar sem lið í því að byggja upp traust, orðstír og ábyrga samkeppnishæfni.
Þessar áherslur hafa aldrei verið mikilvægari en nú.
Leiðbeinandinn Steven A. Rochlin er eftirsóttur fyrirlesari og einn af fremstu
alþjóðlegu sérfræðingum á sviði samfélagsábyrgðar. Hann hefur skrifað bækur um
efnið, ráðlagt ríkisstjórnum víða um heim og fjölda fyrirtækja þ.á m. BP, BT, Cemex,
Chevron, JP Morgan Chase, Nestlé, Pfizer, SAP og Timberland.
SAMFÉLAGSÁBYRGÐ
Frá sýn til framkvæmdar
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
3
5
1
Námskeiðið er ætlað fulltrúum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem vilja innleiða
stjórnarhætti sem sýna ábyrgð gagnvart efnahag, samfélagi og umhverfi.
Þátttökugjald er 26.500 kr.
Skráning fer fram með tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is, eða í s. 511 4000.
Nánari upplýsingar veita Stefán E. Stefánsson hjá Eþikos, s. 599 6526, stefaneinar@ru.is
og Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði, s. 511 4000, inga@utflutningsrad.is.
Að námskeiðinu loknu munu þátttakendur:
Öðlast aukinn skilning á inntaki og vægi samfélags-
ábyrgðar á mörkuðum og á tímum fjárhagserfiðleika.
Þekkja hagnýtar leiðir til þess að byggja upp traust, orðstír
og samkeppnishæfni á grundvelli samfélagsábyrgðar.
Geta með markvissum hætti kynnt samfélagslegt hlutverk
fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum, hluthöfum og
hagsmunaaðilum.
Fá tækifæri til að byggja upp tengslanet sem styður við eflingu
samfélagsábyrgðar hérlendis.
„Manni fannst þetta nú allt í lagi þegar fyrstu skot árásirnar byrjuðu en núna
er maður farinn að líta í kringum sig. Þetta er orðið svo nálægt manni,“ segir
Steinunn Ósk Brynjarsdóttir hárgreiðslukona, sem býr og starfar á Norður-
brú í Kaupmannahöfn.
„Maður hjólar hratt og bara þar sem nóg er af ljósastaurum. Svo heyrir
maður á kúnnunum sem búa flestir í nágrenninu að þeir eru allir hræddir
við þetta.“
Fjölmargir Íslendingar ýmist búa
eða starfa á Norðurbrú, rótgrónu
hverfi nálægt miðbæ Kaupmanna-
hafnar þar sem skotárásirnar hafa
verið hvað tíðastar.
Steinunn starfar á hárgreiðslu-
stofunni Street Cut á Nørrebrogade.
Stofan er í eigu Dana, en þar
starfa sex Íslendingar og einn
Dani. Eigandinn rekur þrjár aðrar
hárgreiðslustofur í Kaupmannahöfn,
og starfa Íslendingar á þeim öllum,
en þó flestir á þeirri sem Steinunn
vinnur á.
Ástandið er ofarlega í hugum viðskiptavinanna, enda óþægilegt til þess
að hugsa að hverfið sem maður býr í sé orðið að einum helsta vettvangi
ofbeldisverka í landinu.
„Eldri konurnar sem búa einar segja okkur að þær fari ekki lengur út úr
húsi þegar dimmt er orðið,“ segir Steinunn.
Sjálf þurfti hún að flytja nýlega, og þá hittist svo á að daginn áður hafði
orðið skotárás í götunni sem hún flutti í, rétt hjá húsinu. „Þá varð ég svolítið
smeyk.“
Sumar götur í hverfinu eru þannig að fólk hættir sér ekkert þangað inn.
Ungir menn úr innflytjendaklíkunum standa þar á götuhornum með tal-
stöðvar og fylgjast með öllum mannaferðum.
„Ég fór þarna inn um daginn án þess að átta mig á því hvar ég væri fyrr
en ég sá þrjá unga menn með talstöðvar. Þá leist mér nú ekki á blikuna,“
sagði hún.
Viðskiptavinum hefur þó ekkert fækkað á hárgreiðslustofunni við
Nørrebrogade, enda gengur lífið að mestu sinn vanagang í hverfinu þrátt
fyrir þetta óvenjulega ástand.
„Kúnnarnir ræða kannski meira um kreppuna núna, og svo er vorið að
koma eftir mánuð hér í Kaupmannahöfn. Við hlökkum öll til.“
Aðalumræðuefnið á hárgreiðslustofunni
UMMERKI ÁRÁSANNA Skotgat á rúðu í
Frederiksberg. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
„Það ríkir algjört skelfingarástand á
Norðurbrú. Það hefur í raun verið
hræðilega erfitt ástand þarna meira
og minna í tvö ár,“ segir Teitur
Jónasson ljósmyndari í Kaupmanna-
höfn.
„Þetta er sama svæðið og varð
fyrir barðinu á látunum út af Ung-
dómshúsinu á sínum tíma. Þessar
innflytjendaklíkur nýttu sér það
ástand líka.“
Teitur þekkir borgina vel. Hann
var ljósmyndari á hálfíslenska
dagblaðinu Nyhedsavisen meðan
það kom út, en rekur nú eigið
ljósmyndafyrirtæki í Kaupmanna-
höfn undir nafninu Esja. Hann tekur
einnig að sér verkefni fyrir fjölmiðla-
fyrirtækið Berlingske, sem gefur út
fjölmörg dagblöð, tímarit, héraðs-
fréttablöð og vefmiðla í Danmörku.
„Ég tek kvöldvaktir fyrir þá svona
tvisvar til þrisvar í viku og er svo
kallaður út líka.“
Stundum er hann sendur á
vettvang þegar skotárás hefur orðið
einhvers staðar í borginni og þá er
ekki um annað að ræða en að nota
skothelt vesti í vinnunni.
Hann segir starfið hafa breyst
ótrúlega mikið á síðustu vikum.
Meira að segja helstu forgangsatriði
fréttaljósmyndarans þurfa að víkja.
„Áður fyrr keyrði ég bara inn í
þessi hverfi, reyndi að komast sem
fyrst á vettvang og ná myndum, en
eftir að þetta fór að magnast hafa
margir fjölmiðlamenn orðið fyrir
miklu aðkasti.“
Núna bíður Teitur því átekta þang-
að til lögreglan hefur náð tökum á
ástandinu. Þá fyrst hættir hann sér
á vettvang, og hann er ekki einn um
þetta.
„Ég veit til dæmis að á föstudag-
inn þegar Írakinn var myrtur, þá var
sjúkrabíll sendur á staðinn, en hann
beið í fimmtán mínútur fyrir utan
svæðið á með lögreglan fór inn og
tryggði svæðið.“
Síðasta helgi varð sú blóðugasta í
sögu þessara hörmulegu átaka milli
vélhjólamanna og innflytjendapilta,
síðan þau hófust fyrir rúmlega hálfu
ári. Írakinn, sem Teitur minntist
á, var myrtur á föstudagskvöld á
Norðurbrú. Á laugardag særðist
32 ára gamall Færeyingur lífs-
hættulega, einnig á Norðurbrú. Á
sunnudagskvöld var síðan annar
maður myrtur og þrjár manneskjur
særðust þegar gerð var skotárás
á kaffihús á Amagereyju, rétt hjá
höfuðstöðvum Vítisengla þar.
Um miðjan febrúar varð Teitur
fyrir því að veist var að honum í
starfi svo hann varð að forða sér
á hlaupum. Hann kom á vettvang
um svipað leyti og lögreglan eftir
skotárás á Korsgade.
„Ég ætlaði að fara að taka myndir
þegar tíu eða tuttugu manna hópur
kemur að og spyr hvað ég sé að
gera. Ég ætla að fara frá þeim en þá
koma þeir hlaupandi á eftir mér. Ég
komst svo naumlega inn í bílinn og
gaf í botn.“
Hann slapp í þetta skiptið, en
hefur síðan haft varann á. Lögreglan
hefur hvatt fólk til að halda ró sinni
ef það lendir í slíku, en væntanlega
er það enginn hægðarleikur þegar
lífið er í húfi.
„Í raun og veru brást ég við alveg
eins og þessi Færeyingur. Hann var
bara að fara á tónleika ásamt vini
sínum. Þeir voru að skima í kringum
sig í hverfinu og virtust eitthvað
grunsamlegir, þannig að þeir voru
stöðvaðir. Svo gefur bílstjórinn í og
þá er skotið á bílinn.“
Færeyingurinn sat í farþegasætinu
og varð fyrir skoti. Hann var fluttur
lífshættulega slasaður á sjúkrahús.
Þarf að nota skothelt vesti í vinnunni
ÍSLENSKUR FRÉTTALJÓSMYNDARI Í KAUPMANNAHÖFN Teitur Jónasson þekkir
borgina vel. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR