Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 102
62 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HESTAR Þriðja mótið í Meistara-
deild VÍS fór fram á fimmtudags-
kvöldið en þá var keppt í slak-
taumatölti.
Eyjólfur Þorsteinsson hefur
farið mikinn í Meistaradeildinni
í vetur og var enn í toppformi á
fimmtudag. Hann hreppti efsta
sætið á Ósk frá Þingnesi.
Hinrik Bragason varð annar
á Hnokka frá Fellskoti. Bylgja
Gauksdóttir og Ösp frá Enni
hrepptu bronsið.
Eyjólfur er langefstur í stiga-
keppninni með 29 stig en Sigurð-
ur Sigurðarson kemur næstur
með 19 stig. - hbg
Meistaradeild VÍS:
Eyjólfur er
óstöðvandi
HEITUR Eyjólfur fer á kostum í Meistara-
deild VÍS. MYND/ÖRN KARLSSON
Búlgarska úrvalsdeildin hófst aftur í gær-
kvöldi eftir þriggja mánaða vetrarfrí en CSKA
Sofia, lið Garðars Gunnlaugssonar, leikur
sinn fyrsta leik eftir frí í dag.
Garðar hefur þó átt fremur erfitt upp-
dráttar þrátt fyrir að vera í byrjunarliðinu og
skoraði í síðasta leik CSKA fyrir frí.
„Ég reyndi að nota fríið til að jafna mig á
meiðslum en það tókst ekki þó svo að ég
hafi farið í sprautumeðferð. Ég kom meidd-
ur til baka úr fríinu og var ekki tekið vel í
það,” sagði Garðar við Fréttablaðið.
„Fyrstu sex vikurnar af undirbúningnum
fóru því í að ná mér góðum af þeim og hef
ég nú ekki fundið fyrir meiðslum í náranum
í tvær vikur. En ég er ekki í jafn góðu formi
og hinir strákarnir sem hafa verið að púla
síðan í janúar.”
Garðar verður ekki í leikmannahópnum í
dag eins og hann bjóst reyndar við sjálf-
ur. „Ég er ekki búinn að vera í myndinni
síðan ég kom til baka. Þetta verður bar-
átta og ekkert að gera nema bíta á jaxlinn
og halda áfram.”
Nýlega voru eigendaskipti hjá
félaginu og því ákveðið að skipta
um þjálfara sem var gert í fyrradag.
Gamli búlgarski landsliðsmaðurinn
Luposlav Penev tók við liðinu.
„Hann spilaði lengi á Spáni með
Valencia, Atletico Madrid og Celta
Vigo. Ég held að hann eigi meira
en 100 mörk í spænsku úrvals-
deildinni en þetta er hans
fyrsta starf sem aðalþjálfari.
Mér líst vel á hann en það
er slæmt að vera ekki upp á
sitt besta til að ég geti sýnt
honum hvað í mér býr,” sagði Garðar.
Honum líkar þó lífið vel í Búlgaríu
en ætlar að endurskoða sín mál ef ekki
birtir til.
„Það er sama hvar í heiminum
maður er – ef maður er ekki að
spila þá er maður óánægður.
Maturinn og vínið bragðast
bara ekki eins vel,” sagði hann í
léttum dúr.
„Ég og umboðsmaðurinn
ætlum að fara yfir stöðuna í
apríl. Ef ég verð enn fyrir utan
hópinn þá fer ég væntanlega að
hugsa mér til hreyfings. Ég hef
engan áhuga á því að sitja bara á
afturendanum og hirða launin.”
GARÐAR GUNNLAUGSSON: BÚLGARSKA ÚRVALSDEILDIN BYRJAR AFTUR EFTIR VETRARFRÍ
Vetrarfríið búið en Garðar er enn í kuldanum
> Hugur Baldurs stefnir í KR
Miðjumaðurinn Baldur Sigurðsson hefur ákveðið að
reyna að ná samningum við KR en honum leist best á KR
af þeim þremur liðum sem reyndu hvað
harðast að fá hann. Hin tvö voru Valur og
FH. „Ég hitti KR-ingana í fyrramálið [í dag]
og vonandi náum við samningum,“ segir
Baldur sem hefur ekkert rætt peninga-
mál við félögin enda vildi hann taka
ákvörðun sína á faglegum forsend-
um. „Mér leist rosalega vel á allt hjá
KR. Ég tel mig geta bætt mig sem
knattspyrnumann þar og vonandi
komist aftur út í kjölfarið.“
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í fótbolta heldur áfram að
stríða bestu knattspyrnulandslið-
um heims á Algarve-bikarnum. Í
gær munaði afar litlu að liðið næði
jafntefli gegn Ólympíumeisturum
Bandaríkjanna sem eru í 1. sæti á
styrkleikalista FIFA.
Natasha Kai tryggði bandaríska
liðinu sigurinn á 90. mínútu leiks-
ins og íslensku stelpurnar sátu
eftir, sáttar með frammistöðuna en
svekktar að hafa ekki náð að halda
út allan leikinn.
Stoltur en líka svekktur
„Það var alveg grátlegt hvað við
vorum nálægt þessu því þá hefðum
við verið að fara að spila úrslita-
leik við Danmörku um að komast
í úrslitaleikinn á mótinu. Svona er
boltinn,“ sagði Sigurður Ragnar
Eyjólfsson landsliðsþjálfari sem
hrósaði stelpunum fyrir frammi-
stöðuna og sagði þær hafa spilað
betur en þegar þær unnu 3-1 sigur
á Noregi á miðvikudaginn.
„Þetta var frábær leikur hjá lið-
inu. Ég sagði við stelpurnar eftir
leikinn að þetta væri besti leik-
urinn sem þær hefðu spilað undir
minni stjórn. Ég er mjög stoltur af
liðinu en auðvitað er svekkjandi að
fá á sig mark í restina. Þær fundu
engar lausnir til að brjóta okkur
niður því liðið var svo vel skipulagt
og allar að vinna fyrir hver aðra
og loka svæðum. Þær fóru allar í
tæklingarnar og návígin,“ segir
Sigurður Ragnar.
Komu sjálfum sér á óvart
„Það var ekki eins og við höfum
pakkað í vörn,“ segir Sigurður. „Ég
held að við höfum komið sjálfum
okkur svolítið á óvart hversu góðar
við vorum á móti svona sterku liði.
Þessi leikur veitir okkur sjálfs-
traust því þetta á að heita besta lið
í heimi og við vorum hársbreidd
frá því að gera jafntefli við þær.“
Sara Björk Gunnarsdóttir og Sif
Atladóttir fóru báðar meiddar af
velli í fyrri hálfleik og það er óvíst
með þátttöku þeirra í næsta leik.
Sigurður Ragnar sagði brotið á
Söru hafa verið fólskulegt og hefði
auðveldlega getað slasað hana illa.
„Hún fór í ökklann á henni á meðan
Sara steig í fótinn og það var bara
mjög gróft brot,” sagði Sigurður
Ragnar.
Guðbjörg Gunnarsdóttir lék mjög
vel í markinu og er langt komin
með að eigna sér markvarðarstöð-
una í landsliðinu. „Hún þurfti að
verja langskot en þetta voru góð
skot því þær eru með öfluga skot-
menn. Hún lék óaðfinnanlega í
markinu og átti frábæran leik. Hún
greip vel inn í og tók fyrirgjafir á
hæsta punkti og var örugg í spörk-
unum fram,“ sagði Sigurður Ragn-
ar.
Mæta Dönum í næsta leik
Næsti leikur Íslands á mótinu er
gegn Danmörku á mánudaginn.
Bandaríska liðið er búið að tryggja
sér sigur í riðlinum og þar með
sæti í úrslitaleiknum en sigurveg-
ari leiksins á mánudaginn kemst í
bronsleikinn. Íslenska liðinu nægir
reyndar jafntefli þar sem stelpurn-
ar okkar eru með betri markatölu.
„Það er stefnan hjá okkur að
komast í bronsleikinn. Danmörk
er með hörkulið. Þeir sem horfðu á
leik Bandaríkjanna og Danmerkur
töluðu um að Danmörk hefði verið
betri aðilinn þótt liðið hafi tapað 2-
0,“ segir Sigurður. „Þær sköpuðu
sér mörg færi, eru með mjög spil-
andi lið og er líka lið í fremstu röð
í heiminum.
„Þetta mót er frábær reynsla
fyrir okkur og ég held að við getum
tekið margt mjög jákvætt út úr
þessu inn í næstu leiki og svo loka-
keppnina,“ sagði Sigurður Ragnar
að lokum.
ooj@frettabladid.is
Besti leikurinn undir minni stjórn
Stelpurnar okkar voru ótrúlega nálægt því að ná jafntefli gegn besta landsliði heims í öðrum leik liðsins á
Algarve-bikarnum í gær. Ísland spilar úrslitaleik við Danmörku um að komast í bronsleikinn.
ÖRUGG Í MARKINU Guðbjörg Gunnarsdóttir sést hér búin að grípa boltann eftir fyrirgjöf bandaríska liðsins í leiknum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Algarve-bikarinn í fótbolta
Ísland-Bandaríkin 0-1
Danmörk-Noregur 2-0
STAÐAN Í B-RIÐLI
Bandaríkin 2 2 0 0 3-0 6
Ísland 2 1 0 1 3-2 3
Danmörk 2 1 0 1 2-2 3
Noregur 2 0 0 2 1-5 0
A-RIÐILL
Svíþjóð-Finnland 1-0
Þýskaland-Kína 3-0
Stig: Þýskaland 6, Svíþjóð 4, Kína 1, Finnland 0.
Iceland Express deild karla
Grindavík-FSu 107-85 (53-40)
Stig Grindavíkur: Nick Bradford 20, Arnar Freyr
Jónsson 18 (9 stoðs.), Brenton Birmingham
17, Þorleifur Ólafsson 12, Páll Axel Vilbergsson
12, Helgi Jónas Guðfinnsson 7, Páll Kristinsson 7,
Guðlaugur Eyjólfsson 6, Þorsteinn Finnbogason
4, Björn Brynjólfsson 4
Stig FSu: Sævar Sigurmundsson 25, Árni Ragn
arsson 22 (14 frák.), Björgvin Valentínusson 10,
Tyler Dunaway 8, Vésteinn Sveinsson 6, Hilmar
Guðjónsson 5, Chris Caird 5, Kjartan Kárason 3,
Orri Jónsson 1.
Skallagrímur-KR 62-97 (34-50)
Stigahæstir: Landon Quick 23 (9 stoðs.), Igor
Beljanski 21, Arnar Snorrason 10 - Jakob Örn Sig
urðarson 27 (6 stoðs., hitti úr 11 af 11 skotum),
Jason Dourisseau 12, Skarphéðinn Ingason 10,
Helgi Már Magnússon 10, Brynjar Björnsson 9,
Fannar Ólafsson 8, Darri Hilmarsson 7.
KR er deildarmeistari í fyrsta sinn síðan 1990.
Tindastóll-Keflavík 63-91 (25-44)
Stigahæstir: Friðrik Hreinsson 17, Alphonso Pugh
10 - Hörður Axel Vilhjálmsson 30 (hitti úr 9 af
11 skotum), Gunnar Einarsson 13, Jón Norðdal
Hafsteinsson 13, Sigurður Þorsteinsson 10.
1. deild karla í körfubolta
Valur-Hamar 82-80 (framlenging)
KFÍ-Haukar 67-81
Þór Þorl. Fjölnir 64-94
Hamar tókst ekki að tryggja sér sæti í Iceland
Express deild karla en liðið vantar aðeins
einn sigur til að tryggja sér sigur í 1. deild.
ÚRSLITN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar áttu
ekki í teljandi vandræðum með
FSu í leik liðanna í Grindavík í
gærkvöldi. Heimamenn höfðu for-
ystu frá fyrstu mínútu og stungu
af í síðari hálfleiknum.
Leikurinn byrjaði mjög fjörlega
og létu liðin það ekki á sig fá þótt
örfáir áhorfendur hefðu séð sér
fært að mæta í Röstina. Grinda-
vík beitti stífri pressuvörn og
keyrði upp hraðann og forskotið
jókst jafnt og þétt.
Heimamenn höfðu yfir 29-15
eftir fyrsta leikhluta og undir lok
annars leikhluta vaknaði Brenton
Birmingham til lífsins og skoraði
ellefu stig á stuttum tíma. Stað-
an í hálfleik 53-40 og hefði staða
gestanna eflaust verið verri ef
barátta þeirra hefði ekki skilað
þeim ellefu sóknarfráköstum í
hálfleiknum.
Um miðbik þriðja leikhlutans
má segja að úrslit leiksins hafi
ráðist, en þá tóku Grindvíking-
ar litla rispu undir forystu
Nick Bradford og juku
forskot sitt upp fyrir
tuttugu stigin í stöð-
unni 67-46. Grind-
víkingar höfðu yfir
84-59 eftir þriðja leik-
hluta og því var fjórði
leikhlutinn aðeins
formsatriði fyrir þá
gulklæddu.
„Þetta var bara
fínt hjá okkur og
öruggt allan tím-
ann. Við vorum
fyrst og fremst
að slípa okkur
fyrir úrslita-
keppnina
og leyfð -
um öllum
að spila,“
sagði Frið-
rik Ragn-
arsson þjálf-
ari Grindavíkur.
Það væri ósanngjarnt að taka
einstaka leikmenn út í sterkri liðs-
heild Grindavíkurliðsins í þessum
leik en Árni Ragnarsson og Sævar
Sigurmundsson voru atkvæða-
mestir hjá FSu. Það var gaman að
sjá að gestirnir börðust eins og
ljón allt til loka þrátt fyrir mót-
lætið. 107-85.
„Þetta var bara lélegt. Við
komum hérna inn og höfðum engu
að tapa, en mér finnst ekki gott
að ungt og sprækt lið sé að koma
hérna inn svona flatt þegar það
hefur engu að tapa. Aðall FSu liðs-
ins hefur alltaf verið froðufellandi
barátta. Ég bara skil þetta ekki,“
sagði Brynjar Karl Sigurðsson,
þjálfari FSu. -bb
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur eftir sannfærandi sigur liðsins á FSu í Iceland Express deildinni í gær.
Vorum að slípa okkur fyrir úrslitakeppnina
18 STIG OG 9
STOÐSEND-
INGAR
Arnar Freyr
Jónsson lék
vel með
Grindavík í
gær. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/STEFÁN