Fréttablaðið - 07.03.2009, Síða 110
70 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
„Frá því ég flutti aftur til Banda-
ríkjanna hef ég unnið að þessu
verkefni linnulítið,“ segir heilsu-
ræktarfrömuðurinn Raul Rodriqu-
ez en nú stefnir í að hann fari með
líkamsræktarprógramm sitt og
heimspeki í amerískt sjónvarp.
Þættir hans, From Zero to Hero,
eru í burðarliðnum.
Rodriquez er mörgum Íslending-
um að góðu kunnur, var búsettur
á Íslandi um árabil og var einka-
þjálfari hjá Magnúsi Scheving
og Bjössa í World Class. Nokkra
athygli vakti að hann og skáksnill-
ingurinn Bobby Fischer bundust
miklum vináttuböndum meðan Fis-
cher entist aldur. Rodriquez fluttist
svo búferlum til Hollywood þar sem
hann hefur starfað sem einkaþjálf-
ari á hinni þekktu Gold Gym-lík-
amsræktarstöð. Hefur Fréttablaðið
greint frá afrekum hans en meðal
skjólstæðinga hans er frægðarfólk
á borð við Bevin Prince, David
Thewlis, Clay Adkins, Shawn Hat-
osy, Jeraldine Saunders og Fabio að
ógleymdum sjálfum Mike Tyson.
Listinn er langur.
„Ég hef þjálfað fjölda frægra
einstaklinga og hitti svo Jamie
Morse Heidegger sem meðal
annarra stofnaði Kiehls Cosmet-
ics í New York. Hún varð dolfall-
in, ekki bara á þekkingu minni
á heilsurækt og næringarfræði,
heldur ekki síður yfir samskipta-
hæfileikum mínum. Ég sagði henni
að ég hlyti að hafa lært talsvert í
10 þúsund einkatímum þar sem ég
þjálfaði heilbrigðasta fólk í heimi
– Íslendinga! Og þá tók boltinn að
rúlla,“ segir Rodriquez. Heidegger
spurði Raul hvort hann væri til í að
vinna að eigin sjónvarpsþætti og
skrifa bók og hún myndi nota sín
sambönd til að koma því á kopp-
inn. „Ég hef nú framleitt sýnis-
horn úr þættinum sem verður
sýnt fljótlega.“ Verkefnið er, eins
og áður sagði, undir nafninu Zero
to Hero, og hugmyndin er að gera
átta þætti sem verða jafnframt
aðgengilegir á net-
inu og þá 32 þar. „Hugmyndin er
að gera heilsurækt aðgengilega
öllum. Öllum sem ekki hafa efni á
að kaupa sér dýrum dómum einka-
þjálfara. Ef einhver hefur viljann,
þá þekki ég leiðina. Með Zero to
Hero í sjónvarpi ætla ég að veita
öllum aðgengi að reynslu minni
og menntun. Ég lít á mig sem eins
konar nútíma Hróa hött, sem tók
frá þeim ríku og færði hinum
fátæku. Til stendur að eiga við-
töl við marga af þeim mikla fjölda
frægra sem ég hef þjálfað. Og von-
andi verður það til að hvetja fólk
til dáða – að það geri eitthvað í
sínum málum. Því þetta er ekki
spurning um líkamlegan styrk
heldur andlegan, fyrst og fremst,“
segir Rodriquez sem nú stefnir að
því að verða sjónvarpssstjarna í
henni Hollywood. Það verkefni
tekur allan tíma hans og því veit
hann ekki hvenær hann kemur því
við að koma aftur til Íslands. En
segir að þar sé hjarta sitt.
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. spjall, 6. hljóm, 8. drulla, 9. dauði,
11. óreiða, 12. algjörlega, 14. langan,
16. tveir eins, 17. örn, 18. stilla, 20. til,
21. tala.
LÓÐRÉTT
1. nabbi, 3. frá, 4. þegn, 5. steinbogi,
7. afsökun, 10. tvöfalt, 13. jafnvel, 15.
nudda, 16. hrökk við, 19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rabb, 6. óm, 8. for, 9. lát,
11. rú, 12. alveg, 14. síðan, 16. bb, 17.
ari, 18. róa, 20. að, 21. átta.
LÓÐRÉTT: 1. bóla, 3. af, 4. borgara, 5.
brú, 7. málsbót, 10. tví, 13. eða, 15.
niða, 16. brá, 19. at.
„Ég er ofboðslega glöð í dag,“ segir
Helga Margrét Reykdal hjá við-
burðafyrirtækinu True North.
Í gær var kynntur aðgerðapakki
ríkisstjórnarinnar. Þar er að finna
stjórnarfrumvarp þar sem lagt
verður til að hækka endurgreiðslu
framleiðslukostnaðar til handa
þeim erlendu kvikmyndagerðar-
mönnum sem kjósa að skjóta kvik-
myndir sínar á Íslandi. Ráð er fyrir
gert að þeir fái tuttugu prósenta
endurgreiðslu í stað fjórtán áður
– rétt eins og bæði Helga Margrét
og Baltasar Kormákur hafa lagt
til við ráðuneytið. Fram hefur
komið að risavaxið verkefni
Baltasars, Víkingr, sem gróft
áætlað er mynd upp á fimm
milljarða, verður tekið hér á
landi og á Írlandi.
Írar hafa verið
klókir í að laða
til sín alls kyns
starfsemi með
því að bjóða
28 prósenta
endurgreiðslu.
Ef frumvarpið
verður afgreitt
eykur þetta
líkurnar verulega á því að kvik-
myndatökumenn
Baltasars og
hinir banda-
rísku fram-
leiðendur
myndar-
innar muni
dvelja hér
miklu
lengur en
annars.
Það hefur
jákvæð
áhrif á True North sem tekið
hefur að sér að annast alla þjón-
ustu og undirbúning myndarinn-
ar. „Já, og ekki bara okkur. Held-
ur hefur þetta víðtæk áhrif og
er virðisaukandi fyrir til dæmis
ferðaþjónustu og byggingariðn-
aðinn,“ segir Helga Margrét. Hún
segir jafnframt að þetta muni hafa
í för með sér að fleiri kvikmynda-
verkefni komi til landsins og eru
á borðinu hjá True North fjöldi
fyrirspurna, sem komnar eru mis-
langt, þess efnis. Um leið og frum-
varpið hefur verið afgreitt munu
skilaboð frá True North fara um
heim allan í gegnum þar til gerða
kanala. „Kvikmyndagerðarmenn
fagna í dag,“ segir Helga Margrét.
- jbg
Kvikmyndagerðarmenn fagna ákaft
BALTASAR KOR-
MÁKUR Hækkun
endurgreiðslunnar
þýðir að miklu stærri
hluti myndarinnar
Víkingr verður tekinn
á Íslandi.
HELGA MARGRÉT Stjórnarfrumvarp gerir
ráð fyrir hækkun endurgreiðslu fram-
leiðslukostnaðar til erlendra kvikmynda-
framleiðenda sem mun þýða aukin
verkefni fyrir greinina hér á landi.
RAUL RODRIQUEZ: SJÓNVARSPÞÆTTIR Í HOLLYWOOD Í BURÐARLIÐNUM
HRÓI HÖTTUR HEILSUNNAR
„Þetta eru bara hrein og bein skemmdarverk.
Við áttum von á vörunum okkar eftir tvær
vikur þegar okkur er tilkynnt að samstarf-
inu sé samstundis rift,“ segir Ásta Kristjáns-
dóttir, einn af eigendum tískuvörumerkisins
E-label. Frönsk verksmiðja, sem framleiða
átti nýja fatalínu E-label, tilkynnti Ástu að
fyrirtækið væri hætt við að framleiða fatn-
að þeirra. Ásta segir að hún hafi komist að
því að ástæða riftunarinnar væri sú að Svava
Johansen, eigandi tískukeðjunnar NTC, sem
hefur haft fatnað sinn í framleiðslu hjá fyrir-
tækinu í nokkur ár, hafi hringt út og hótað að
draga viðskipti sín til baka nema verksmiðjan
hætti við framleiðslu fyrir E-Label.
Svava Johansen sagði í samtali við Frétta-
blaðið að NTC hefði haft samstarfssamning
við umrædda verksmiðju í mörg ár. „Verk-
smiðjan er lítið fjölskyldufyrirtæki sem við
gerðum samning við um að vera í einka-
kúnnasambandi við hvað Ísland snertir. Við
vildum ekki lenda í því að í kringum okkur
væru vörur úr eins efnum og lit. Mér skilst
síðan að einn fyrrverandi starfsmanna
minna, sem nýverið keypti sig inn í E-Label,
hafi haft samband við verksmiðjuna sem
áleit að E-Label væri einungis að selja fatnað
„on-line“. Þessi starfsmaður var þarna að
nota trúnaðarupplýsingar frá fyrirtækinu
um hverja við erum í samstarfi við,“ segir
Svava og bætir við að þegar eigendur verk-
smiðjunnar hafi áttað sig á að þetta væri
íslensk búð hafi þeir dregið sig til baka.
Ásta segir það af og frá að trúnað-
arupplýsingar hafi verið notaðar.
Verksmiðjan úti hafi vitað að um
íslenskan markað væri að ræða.
Heba Björk Hallgrímsdóttir, með-
eigandi E-Label, segist eiga tölvu-
pósta því til staðfestingar. „Þetta
eru erfiðir tímar þar sem manni
finnst að fólk ætti að standa
saman en ekki skemma fyrir.
Íslenskir hönnuðir deila oft
verksmiðjum og Gunni hjá And-
ersen & Lauth bauð fram verk-
smiðjuna sína í Kína núna.“ Svava
tekur undir að nauðsynlegt sé að
standa saman. „Fólk má hins vegar
ekki fara bak við borðið og róta til hjá
hvert öðru.“
- jma
Tískudrottningar í harðvítugum deilum
Elva Rósa Skúladóttir
Aldur: Tuttugu og ellefu ára.
Starf: Hönnuður hjá útivistarmerk-
inu Cintamani.
Fjölskylda: Maki og barn.
Foreldrar: Skúli J. Björnsson og
Anna S. Garðarsdóttir, eigendur
Sportís ehf.
Búseta: 104 Reykjavík.
Stjörnumerki: Fiskur.
Elva Rósa er yfirhönnuður hjá Cintamani-
merkinu sem danska krónprinsessan
Mary Donaldson klæðist.
Aðeins eru eftir fjórir
þættir af Spaugstofunni
en ætlunin var að þetta
yrði þeirra allra síðasti
vetur. Hins vegar gefa
áhorfstölur það til
kynna að þjóðin sé
hvergi nærri orðin
leið á spaugurun-
um sem tróna á
toppnum. Fréttablaðið greindi frá
því fyrir nokkru að hugsanlega
væru þeir hættir við að hætta. Þór-
hallur Gunnarsson hefur þó ekki
gengið til samninga við hópinn
enn sem komið er og eftir því sem
næst verður komist eru Pálmi Guð-
mundsson og Stöð 2 þess albúin
að grípa gæsina ef hún gefst.
Eftir að Málefnin lognuðust út
af er einhver mesta ljónagryfja
netsins Barnaland. Nú gengur í
gegnum hreinsunareld mikinn þar
Hilmir Snær Guðnason leikari
eftir að Séð og heyrt greindi frá
því að hann eigi von á barni með
ungum viðskiptafræðingi. Annar
sem þekkir það vel að vera tekinn
til bæna af hinum tannhvössum
kvensum sem fara
mikinn á Barnalandi
er söngvarinn Magni
Ásgeirsson en honum
voru ekki vandaðar
kveðjurnar þegar
hann skildi um
stundarsakir við
konu sína í kjölfar
Rockstar-þátt-
anna.
Það var fríður hópur tónlistar-
manna sem flaug til Bandaríkjanna
um miðjan dag í gær. Fyrir hópnum
fór Magnús Kjartansson en með í
för voru þau Tryggvi Hüb-
ner og Sigríður Bein-
teinsdóttir. Þríeykið
var bókað til að spila
á Íslendingaskemmtun
í Los Angeles í kvöld
og annarri Íslendinga-
gleði í San Francisco
að viku liðinni.
- jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
E-LABEL-VÖRURNAR Í HÆTTU Ásta
Kristjánsdóttir, eigandi E-Label, er ekki
ánægð með að Svava Johansen hafi
komið í veg fyrir framleiðslu nýju fatalín-
unnar. Svava segir að E-Label hafi notað
sér trúnaðarupplýsingar frá NTC.
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
RAUL RODRQUEZ STEFNIR HÁTT Einkaþjálfarinn, sem hefur tekið
Hollywood með trompi og þjálfað her frægðarfólks, stefnir í
sjónvarpið og er kominn í samband við fjársterka aðila.