Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2009, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 30.03.2009, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 30. mars 2009 SÉRFERÐIRÚTIVIST Bára Ketilsdóttir er þjálf-ari fjallaklúbbsins Toppfara sem komst í hann krappan á Skessu- horni á laugardag. Hún segir hinn tólf manna hóp oft hafa lent í verri aðstæðum en þeim sem voru á fjallinu þennan dag. Hópurinn bað um aðstoð þegar kona úr hópnum rann niður 200 metra og slasaðist. Konan er á batavegi og losnaði af gjörgæslu í gær. Veður var afleitt á svæðinu, auk þess sem snjóflóðahætta var tölu- verð. Jón Gauti Jónsson fjallaleið- sögumaður fór með hópnum upp á fjallið og því voru þau í góðum höndum að mati Báru. „Við erum að ganga allt árið um kring við allar aðstæður. Við höfum oft verið í miklu erfiðari aðstæð- um heldur en þarna,“ segir hún. Eftir að kallað var á björgunar- sveitir gróf hópurinn sig í fönn, hélt hita á konunni sem slasaðist og mokaði sjó með fjórum skófl- um sem hann hafði meðferðis. Um fimm klukkustundir liðu þangað til hjálpin barst. „Þarna var lík- lega tíu stiga frost. Við bjuggum til stórt snjóhús og skiptumst á að halda henni heitri. Við pökkuðum henni vel inn og lágum sitt hvoru megin við hana. Aðrir voru að moka á meðan og aðrir að fá sér að borða,“ segir Bára. „Mér finnst það standa upp úr sem algjört þrekvirki að þessi hópur skyldi geta gert þetta. Bæði haldið henni heitri og í stöðugu ástandi og sjálf- um sér klukkustundum saman í brattri hlíð í svona mikilli hæð og í þessu veðri.“ Bára segist aldrei hafa verið hrædd um að finnast ekki. „Allir útivistarmenn og menn sem eru í björgunarsveitinni þekkja þetta svæði eins og lófann á sér. Þetta fer náttúrulega í reynslubankann. Við erum búin að margfara yfir þetta og það var ekki á neinn hátt eitthvað sem var rangt gert. Ísland er svona land með þetta veður og þennan snjó stóran hluta af árinu. Ef þú ætlar að ganga upp á fjöll eru þetta aðstæðurnar sem þú ert í.“ Klúbburinn Toppfarar hefur verið starfandi í tvö ár og gengur á fjöll allt árið um kring hvern ein- asta þriðjudag. Alls hefur klúbbur- inn klifið tæplega sextíu fjöll. - fb Toppfarar komust í hann krappan á Skessuhorni: Skiptust á að halda hita á slasaðri konu Á SKESSUHORNI Björgunarstarfsmenn komu fólkinu til bjargar eftir að það hafði beðið í fimm klukkustundir í miklum kulda.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.