Fréttablaðið - 30.03.2009, Síða 30

Fréttablaðið - 30.03.2009, Síða 30
22 30. mars 2009 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. stagl, 6. í röð, 8. gums, 9. fugl, 11. slá, 12. vansæmd, 14. jurtaríki, 16. skammstöfun, 17. völlur, 18. fæða, 20. sjúkdómur, 21. útungun eggja. LÓÐRÉTT 1. elds, 3. bor, 4. vörurými, 5. fyr- irboði, 7. pergament, 10. grús, 13. form, 15. svara, 16. ris, 19. samtök. LAUSN LÁRÉTT: 2. tafs, 6. áb, 8. lap, 9. lóm, 11. rá, 12. skömm, 14. flóra, 16. þe, 17. tún, 18. ala, 20. ms, 21. klak. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. al, 4. farmrúm, 5. spá, 7. bókfell, 10. möl, 13. mót, 15. ansa, 16. þak, 19. aa. „Þetta er ekkert eins og í gamla daga. Ég þarf bara sjálfur að borga fyrir farið, ég næ að kaupa farseð- il og kannski styrkir pabbi mig,“ segir Ólafur Ólafsson, unnusti Jóhönnu Guðrúnar, Eurovision- fara Íslands. Eins og kom fram í Fréttablaðinu skömmu eftir sigur Jóhönnu hafði Ólafur mikinn hug á því að fylgja kærustunni sinni til Moskvu. En til þess að það verði að veruleika þurfa nokkrir hlutir að ganga upp. Ólafur stundar nám við Flensborgarskólann í Hafnafirði og er auk þess í fjarnámi í Versl- unarskólanum. „Ég þarf að færa prófin aðeins til í Versló, kannski um tvo daga og vona að stjórnend- ur skólans komi til móts við þær óskir,“ segir Ólafur. Þau Jóhanna Guðrún hafa verið saman í tæp tvö ár. Ólafur er staðráðinn í að sjá Jóhönnu á undanúrslitakvöld- inu sem verður á þriðjudeginum. „Mig langar alveg rosalega til að vera í Moskvu þegar hún stígur á stóra sviðið í fyrsta skipti. Og ef hún kemst alla leið í úrslitin þá verð ég auðvitað að vera þar líka,“ segir Ólafur En ef svo ólíklega fer að Ólafur kemst ekki til höfuðborgar Rúss- lands þarf Jóhanna ekkert að kvíða því að hún verði ein og yfirgefin. Því móðir hennar, Margrét Stein- dórsdóttir, verður henni til halds og traust. Margrét sagðist í sam- tali við Fréttablaðið vera ákaflega spennt fyrir ferðinni. Enda væri Moskva heillandi borg og þangað hefði hún ekki komið áður. „Maður á ekki beint leið um Moskvu á hverjum degi,“ segir Margrét sem hefur fylgt dóttur sinni eins og skugginn á nokkuð löngum ferli hennar. Margrét er ekki í nokkrum vafa um að dóttir hennar hafi allt til brunns að bera til að geta staðið sig vel í þessari hörðu keppni þrátt fyrir ungan aldur. „Ég held að Jóhanna sé yngsti keppand- inn miðað við það sem ég hef lesið á þessum Euro- vision-síðum en það ætti ekki að koma að sök, hún er svo sterkur persónu- leiki,“ segir Mar- grét sem hyggst fyrst og fremst vera í hlutverki „mömmunnar“ í þessari ferð. O g E u r o - vision-nirðirn- ir hafa mikið verið að spá og spekúlera í fram- lagi Íslendinga, Is it True? End- anleg útgáfa lagsins fór á Netið í gær og hefur fengið prýðilega dóma. Jóhönnu hefur verið spáð þriðja sætinu í forkeppninni af veðbönkum en í úrslitunum getur síðan allt gerst. „Mér skilst síðan að ein- hverjir hafi stillt laginu upp á móti framlagi Breta,“ segir Margrét en það er samið af söng- leikjakóngnum Andrew Lloyd Webber. freyrgigja@ frettabladid.is ÓLAFUR ÓLAFSSON: HLIÐRAR TIL PRÓFLESTRI FYRIR EUROVISION-FERÐ Kærasti Jóhönnu safnar fyrir farseðli til Moskvu SAMHENTAR Mæðgurnar Margrét og Jóhanna hafa farið víða saman og Margrét hefur stutt dyggilega við bakið á dóttur sinni. Hún verður við hlið hennar í Moskvu þegar Eurovision-keppnin fer þar fram. Ólafur, kærasti Jóhönnu, þarf sjálfur að greiða fyrir farseðilinn til Moskvu vilji hann sjá unnustu sína á stóra sviðinu. „Þetta er heljarinnar fyrirtæki, við höfum verið að ræða við þá að undan- förnu en nú er talað um að við þurfum að fara til Sviss, New York og London og ræða við forsvarsmenn fyrirtæk- isins þar,“ segir Magnús Scheving en tannkremsrisinn Colgate hefur áhuga á að fá Latabæjarpersónurnar á vörur sínar. Magnús segir að þetta sé allt á við- ræðustigi og því ekki útséð með fram- haldið en bætir því við að Colgate vanti einhverja þekkta fígúru til að auglýsa vöru sína. „Íþróttaálfurinn er náttúrulega mjög áhugasamur um tannhirðu barna, hann burstar tennurnar á hverj- um morgni í hverjum þætti og syngur meira að segja um mikilvægi þess að bursta tennurnar,“ segir Magnús og því ljóst að persónur þessa vinsæla sjónvarpsþáttar eru tilvaldar til að auglýsa tannkrem. „Og svo má náttúrulega ekki gleyma því að Latibær var einu sinni styrkt- ur af Tannlæknafélaginu á Íslandi,“ skýtur Magnús að. Og Latibær heldur áfram að heilla heimsbyggðina upp úr skónum. Nýverið var staddur hér á landi viðskiptaútvarpsmað- urinn Peter Day sem starfar hjá BBC World Service. Day þessi er ákaflega virtur í sínu fagi og hann var agndofa yfir þeim árangri sem Latibær hefur náð á heimsvísu. „Honum fannst magnað að sjá fyrirtæki eins og Lata- bæ sem hefði samfélags- lega ábyrgð blómstra. Það væri dálítið á skjön við það sem áður þekktist,“ segir Magnús en Day lýsti meðal a n n a r s y f i r áhuga sínum á að gera heimildarmynd um Latabæjarfyrirbærið íslenska. - fgg Latibær á tannkremstúpur „Myndin er á lokastigi og verð- ur sýnd á laugardagskvöld fyrir páska,“ segir Egill Eðvarðsson en mynd hans um sögufræga píla- grímsför FTT og Hljóma til Liver- pool er komin á dagskrá Ríkissjón- varpsins. Um hundrað manna hópur fór sérstaka afmælisför til Liver- pool síðasta sumar á Bítlaslóðir. Meðal annars var farið á tónleika Pauls McCartney og fylgst með því þegar Hljómar stigu á svið í hinum sögufræga Cavern-klúbbi – 44 árum eftir að þeir tóku þar frægt „gigg“. Skipuð nákvæmlega þeim sem komu þar fram fyrir 44 árum: Gunnari, Rúnari Júlíussyni, Eggerti Kristinssyni og Erlingi Björnssyni. Það gigg markar í raun upphaf gríðarlegra vinsælda Hljóma á Íslandi, Myndin heitir Sveitapiltsins draumur og er tileinkuð minn- ingu Rúnars Júlíussonar sem Egill segir sér ljúft og skylt. „Þetta snertir marga fallega strengi í brjóstum. Ferðin, upplifunin og svo Rúnars þáttur í þessu. Hann fer þarna sína hinstu för og allir fylgja honum. En menn voru ánægðir með þennan hóp sem fylgdi Hljómum. Ferðin hófst í Keflavík og endar þar.“ Elsa María Jakobsdóttir er umsjónarmaður en tökumaður er Jón Páll Pálsson. Rætt er við ferðalanga en meginefnið eru viðtöl við Hljómana sem rifja upp fyrstu árin. Og hver sér þetta sínum augum. „Eins og Gunni segir svo ágætlega þá eru til fjór- ar ólíkar útgáfur á hvernig Hljóm- ar urðu til. Elli segir eitt og Rúnar annað, Eggert með þriðju ver- sjónina og Gunni ypptir öxlum og segir: það eru margar útgáfur af þessu,“ segir Egill. - jbg Sveitapiltsins draumur á dagskrá fyrir páska TÖKULIÐ Á BÍTLASLÓÐ Mynd Egils Eðvarðssonar um rómaða pílagrímsför Hljóma og aðdáenda þeirra er nú á lokastigi. FRÉTTABLAÐIÐ/JAKOB „Hún hefur alltaf verið afskap- lega hugmyndarík og dugleg og ég er auðvitað mjög ánægð með hana. Hún hefur alltaf verið að búa eitthvað til, teikna eitthvað og byggja frá hún fæddist. Og ég er nú þegar búin að panta hjá henni stól.“ Anna Sigríður Arnþórsdóttir, móðir Andreu Tryggvadóttur, sem komst í úrslit í þekktri danskri húsgagnakeppni með umhverfisvæna hugmynd að stól. Í SÓKN Magnús og Latibær hafa ekki lagt árar í bát held- ur eru í viðræðum við tannkrems- risann Colgate um samstarf. 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM FISKI Í DAG ýsuflök, lúðusneiðar laxaflök, fiskréttir hörpuskel, humar, rauðmagi og margt fleira. HUGSUM UM HEILSUNA OG BORÐUM FISK. Félag hljómplötuframleiðanda stendur fyrir kosningu á hundrað bestu plötum allra tíma á Íslandi í samvinnu við Tónlist.is og Rás 2. Hægt er að kjósa á milli fjögur hundruð platna, þar á meðal eru fjórar frá hljómsveitinni Todmobile sem gerði garðinn frægan á tíunda áratugnum. Er það svo sem ekki í frásögur færandi nema það að í stjórn Félags hljómplötuframleið- anda er einmitt bassa- leikari Todmobile, Eiður Arnarsson. Todmobile er þó hvergi nærri atkvæðamest á listanum og til að mynda eiga Stuð- menn, Sálin og Ný dönsk þar sex plötur hver. Halldór Bragason, blúsmaður númer eitt á Íslandi, hefur í nægu að snúast í kringum heimsókn Pinetops Perkins, blúsarans aldraða. Eins og greint hefur verið frá vildi kappinn sérstakt reyk- ingaherbergi og lifir víst eingöngu á McDonald‘s-hamborgurum en hefur látið af þeirri iðju sinni að drekka heila koníaksflösku yfir daginn. Nú ætla kokkarnir á Vox að reiða fram sérstaka hamborgaramáltíð handa Pinetop en hún samanstend- ur víst af tveimur tvöföldum hamborgur- um, tveimur eplabökum og miðstærð af Sprite. - fb/fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Svein Harald Öygard. 2 Bolungarvík. 3 Margrét Ingibjörg Halldórsdóttir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.