Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2006, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2006, Blaðsíða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. mars 2006 | 3 BASIC REQUIREMENTS: Aged 18+ with good English Language ability APPLICATION AND INFORMATION Email info@laban.org or call +44 (0)20 8691 8600 CREEKSIDE LONDON SE8 3DZ UK WWW.LABAN.ORG Programmes offered at Laban compliant with the national framework for higher education qualifications are validated by City University, London. Laban is committed to equality of opportunity. Laban is incorporated by Trinity Laban. Registered Charity 309998. Supported by Arts Council England with National Lottery funds. Design Laban 2005 Photo Merlin Hendy. Launch yourself into the world of professional dance, training in Contemporary Dance with a renowned teaching faculty, at Laban’s unique award-winning building in London, UK. Offering undergraduate and postgraduate programmes WWW.LABAN.ORG REYKJAVIK, ICELAND 11 -12 MARCH CONTACT Thordis Schram JSB Artschool of Dance Lagmuli 9 105 Reykjavik T 00 354 581 3730 E jsb@jsb.is For more details on our overseas auditions visit www.laban.org AUDITIONING FOR OUR 3 YEAR BA (HONS) DANCE THEATRE PROGRAMMME Interested in discussing postgraduate training opportunities at Laban? Please contact the administrator at your nearest venue, who can book you onto an information session with our programme leaders. Þ að hefur verið vel þess virði að fylgjast með bókmenntaumræð- unni í Lesbók Morgunblaðsins að undanförnu. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur hóf hana að þessu sinni með grein um útgáfu og sölu fræðirita og umfjöllun um þau. Að sögn hans er þar víða pottur brotinn. Í kjölfarið hafa margir lýst skoðunum sínum á ýmsum þáttum bókaútgáfu og bóksölu. Ég leyfi mér að bæta héðan að vestan örlitlu við þetta prógramm – af sjónarhóli smáútgef- andans. Vinsæl iðja Að skrifa og gefa út bækur er vinsæl iðja hér á landi og naumast verri en hvað annað sem menn taka sér fyrir hendur. Ritstarfa- og út- gáfugenin virðast atorkusöm hjá mörgum Ís- lendingum. Ekki veit ég til þess að nokkur maður hafi orðið ríkur á bókaútgáfu hérlendis. Þeir geta a.m.k. ekki verið margir. Mörg bókafélög og stór forlög hafa gegnum tíðina hætt starfsemi, södd lífdaga, eða farið á hausinn. Sama er með marga einyrkja á þessum akri. Líkja má bókaútgefendum við útgerð- armenn hér áður fyrr. Þeir voru að vísu „stór- varasamir menn“ upp til hópa, eins og kunn- ugt er, og ætluðu sér að græða. En löptu þeir ekki flestir dauðann úr skel þegar upp var staðið? Ég veit ekki betur. Að maður tali nú ekki um bæjarútgerðirnar! Margir hafa byrjað á bókaútgáfu og ætlað sér að hagnast en komist að því fullkeyptu. Hvers vegna eru menn þá að þessu? Sumir út- gefendur segja að þetta sé svo gaman og svo mikil lífsfylling því samfara að gefa út góða bók. Undirritaður er einn þeirra. Stundum hafa menn sagst vera hættir. En freisting- arnar leynast víða. Gott handrit dúmpar upp! Og er ekki sagt að menn eigi að fást við það sem þeir hafa ánægju af, svo framarlega sem það er ekki náunganum til óþurftar? Aðskiljanleg örlög bóka Sumar bækur seljast, aðrar ekki. Þannig er það og hefur alltaf verið og munu á því margar skýringar. Vestfirska forlagið hefur t.d. gefið út nokkrar mjög góðar bækur sem lítið hafa selst í bókaverslunum eða stórmörkuðum, þrátt fyrir býsna góða auglýsingu og beina og óbeina kynningu. Meðal þeirra er Höfundar- saga mín eftir Þorstein Antonsson, sem er einn af okkar þekktari höfundum. Hún hreyfð- ist ekki, þrátt fyrir að hafa fengið mjög góða dóma. Qupersímán, endurminningar græn- lensks galdramanns eftir Otto Sandgreen, sem Ingibjörg Vigdís Friðbjörnsdóttir þýddi mjög laglega úr dönsku, liggur í stöflum hjá forlag- inu. Þá bók, sem einnig fékk mjög góða dóma, má vel kalla fræðirit um okkar næstu ná- granna á austurströnd Grænlands, sem við vit- um nánast ekkert um. Ekki síst má hér nefna verkið Úr verbúðum í víking austan hafs og vestan í tveimur bind- um, eftir Vestfirðinginn Ólaf Guðmundsson frá Breiðavík, sem er meðal vönduðustu og best skrifuðu endurminninga síðari ára. Höf- undurinn er einn af frumkvöðlum fisksölumála okkar Íslendinga, maður sem var í innsta hring hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Þarna er margt sem aldrei hefur verið sagt frá áður og síst í opinberu afmælisriti samtak- anna. Vestfirska forlagið lagði allan sinn metn- að í þá útgáfu en dugði ekki til. Þannig mætti áfram telja og gætu margir um vitnað. Jólaþrýstingurinn Margir hafa fjallað um útgáfutíma bóka hér á landi og jólabókaflóðið margfræga. Fróðir menn segja að siðurinn að nota bækur til jóla- gjafa hafi færst í aukana í seinni heimsstyrjöld og eftir hana. Það er hið besta mál og enn í fullu gildi. Spurningin er þó sú, hvort endilega þurfi að hrúga öllum þessum hundruðum titla á verslunarborðin nokkrum dögum fyrir jól. Til þess að reyna að minnka þennan jóla- þrýsting hefur Vestfirska forlagið gefið út bækur á öllum tímum árs. Þannig var bókin Saga Fjalla-Eyvindar eftir vestfirska fræði- manninn Guðmund Guðna Guðmundsson, eina heildstæða frásögnin sem til er af þeim Fjalla- Eyvindi og Höllu, gefin út fyrir páska eitt árið, að vísu endurprentun eftir 35 ár frá frumút- gáfu. Einnig barna- og unglingabókin Hanna María á héraðsskóla eftir Strandakonuna Magneu frá Kleifum, sem er einnig fyrir full- orðna eins og allar góðar barnabækur. Þessar bækur báðar seldust þokkalega, þ.e. skiluðu nokkurn veginn útgáfukostnaði. En þegar flóðið nálgaðist lentu þær sums staðar undir borðum. Það er hættan þegar bækur koma út fyrri hluta árs. Margir útgefendur segja að seljist bók ekki fyrir jólin, þá seljist hún ekki nema í einhvers konar nauðungarsölu fyrir spottprís. Þetta er þumalputtareglan. Hluti sumra bókaupplaga fer óhjákvæmilega í endurvinnslu. Hér höfum við vandamál bókaútgefandans í hnotskurn. Margir bóksalar farnir á hausinn Nú er svo komið, að velflestir gömlu, góðu, klassísku bóksalarnir eru ýmist farnir á haus- inn eða búnir að loka. Margir telja að það sé stórmörkuðunum að kenna. Það má vel til sanns vegar færa ef menn vilja. En samkeppn- in lætur ekki að sér hæða. Það verður víst ekki bæði sleppt og haldið. Fyrir nýliðin jól fékk Vestfirska forlagið vinsamlega ábendingu frá Samkeppnisstofn- un, eftir kvörtun sem þangað hafði borist frá verslun á Ísafirði, að ekki mætti neita viðkom- andi um að hafa Bækurnar að vestan til sölu. Það varðaði við fákeppnis- og samkeppnislög. Til skýringar skal þess getið, að Vestfirska forlagið hafði fram að þessu eingöngu haldið sig við feðgana í Bókhlöðunni á Ísafirði varð- andi dreifingu og sölu bóka sinna þar. En nú er sem sagt orðin breyting þar á samkvæmt lögum og paragröffum, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Nú má selja bækur í hvaða verslun sem er, jafnvel bakaríum ef rétt er skilið, og útgefandinn raunar skyldaður til að afhenda þær hverjum sem er til sölu! Til fróðleiks og gamans skal einnig sagt frá því hér, að ekki minnkaði umsetningin hjá þeim Bókhlöðufeðgum á Ísafirði á bókum Vestfirska forlagsins að heldur, þó að þær væru einnig til sölu við góðan orðstír í Bónusi og Office One þar á staðnum. Svona er lífið! Félag íslenskra bókaútgefenda Jón Þorvarðarson, rithöfundur og útgefandi, skrifar athyglisverða grein í Lesbók um dag- inn. Þar segir hann m.a. að smælingjarnir eigi ekki greiðan aðgang inn í Félag íslenskra bókaútgefenda. Þeir komi að lokuðum dyrum. Ég hef aðra sögu að segja. Vestfirska for- laginu var að fyrra bragði boðin innganga. Boðið var þegið og hafa samskiptin við fram- kvæmdastjóra félagsins, Benedikt Kristjáns- son, verið eins góð og á verður kosið. Tekið var fram að fjórar útgáfubækur á ári væri viðmið- unin fyrir inntöku nýrra félaga, ef rétt er mun- að. Jón Þorvarðarson nefnir Íslensku bók- menntaverðlaunin í sinni ágætu grein og finn- ur þeim ýmislegt til foráttu. Að mínum dómi mætti gjarnan leggja þau niður í núverandi mynd, sem og ýmis önnur verðlaun í okkar verðlaunasjúka samfélagi. Hérlendis fá menn oft verðlaun bara fyrir að mæta á staðinn, ef svo mætti segja. Með nokkrum ólíkindum má telja hrikalega frásögn smáútgefandans Jóns Þorvarðarsonar af samskiptum hans við Menningarsjóð vegna fræðibókar um stærðfræði eftir hann sjálfan, þá einu sem hér hefur komið út um sögu þess- arar undirstöðugreinar. Bók sú fékk frábæra dóma, ef rétt er munað. Skulu vera einhverjir maðkar í mysunni hjá Menningarsjóði? Niðurlag Í upphafi þessara orða voru fræðibækur nefndar. Sumir höfundar slíkra bóka segja sín- ar farir ekki sléttar. Með tilkomu netsins er landslagið hins vegar að breytast. Nú er spurningin þessi: Teygja fræðimenn, náms- menn og aðrir fróðleiksfúsir sig í bókina uppi í hillu eða fara þeir einfaldlega á netið? Svarið virðist liggja í augum uppi. Þó virð- ast margs konar bækur aðrar halda velli, þó svo að hitt sé ljóst, sem margir hafa bent á, að titlar eru allt of margir í íslenskri bókaútgáfu, bækurnar koma út á of skömmum tíma og upplögin eru oft á tíðum of stór. Hljóð úr horni að vestan „Ekki veit ég til þess að nokkur maður hafi orðið ríkur á bókaútgáfu hérlendis,“ segir greinarhöfundur sem blandar sér í umræður sem fram hafa farið í Lesbók um bækur, bókaútgáfu og bókmenntaverðlaun í vetur. Morgunblaðið/Árni SæbergBókaútgáfa „… titlar eru allt of margir í íslenskri bókaútgáfu, bækurnar koma út á of skömmum tíma og upplögin eru oft á tíðum of stór.“ Eftir Hallgrím Sveinsson jons@snerpa.is Höfundur er bókaútgefandi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.