Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.2006, Síða 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 18. mars 2006 | 3
V
íða í gömlum kirkjum í vest-
anverðri Evrópu má oft sjá sér-
kennilegt mannsandlit umvafið
laufi. Þetta mannsandlit er
venjulega skorið út í tré eða
höggvið í stein, oft á lítt áber-
andi stöðum í kirkjunum. Þetta andlit umvafið
laufi hefur verið þekkt frá ómunatíð en aldrei að
því er virðist hefur það haft nokkurt sérstakt
nafn. Það er ekki fyrr en
1939 að andlitið fær nafn
á ensku; ,,The Green
Man“ sem einfaldlega má
kalla græna manninn á íslensku. Á síðustu ára-
tugum hafa allmargar bækur og greinar verið
skrifaðar um græna manninn. Hann er til í ýms-
um tilbrigðum, í táknfræði kirkjunnar, í bygg-
ingarlist og skreytilist svo eitthvað sé nefnt.
Græni maðurinn er einnig skógarmaður, líklega
fyrirmynd Hróa hattar og eitt algengasta nafn á
breskum bjórkrám er sótt til hans. Á íslensku
hefur ekkert verið fjallað um þetta sérkennilega
og dularfulla andlit eða tákn, en finna má græna
manninn hérlendis á nokkrum stöðum ef vel er
að gáð.
Uppruni græna mannsins
Í raun er lítið vitað upprunalega merkingu
græna mannsins, enda margt á huldu um upp-
runa hans og merkingin breytileg frá einu
menningarsvæði til annars og frá einu tímabili
til annars. Þó er algengasta skýringin á græna
manninum sú að hann sé heiðið tákn um líf,
dauða og endurfæðingu. Hann minnir á hlut-
verk Freys í heiðinni goðafræði og á skylt við
fornra trú á heilög tré og skógarlunda. Sumir
telja græna manninn erkitýpu, sammannlega
undirvitund líkt eins og sálgreinirinn Carl Jung
lýsti, aðrir líta á græna manninn sem tákn lífs-
orkunnar. Nú hefur græni maðurinn orðið tákn
um áhuga fólks á verndun náttúru og leitar
mannsins að sjálfum sér í íhugun. Græni mað-
urinn er talinn sameiningartákn á milli heið-
innar fortíðar og kristins samtíma.
Heimildum ber ekki saman um uppruna
græna mannsins. Jafnvel er talið að hann hafi
fylgt mannkyninu frá upphafi vega og bent á að
græni maðurinn komi fram í Mesópótamíu á
þriðja árþúsundi fyrir Krists burð.1) Á fyrstu
öld eftir Krist kemur græni maðurinn fyrir í
skreytilist Rómverja á húsum og súlum um allt
rómverska ríkið frá Tyrklandi til Rínarfljóts. Á
Englandi, þar sem hann er algengur í kirkjum,
kemur hann ekki fram á sjónarsviðið fyrr en á
12. öld. Raunar er hefðin fyrir því að móta
mannshöfuð umvafið laufblöðum eldri í Evrópu
en frá tímum Rómverja. Benda má á að skreyti-
list Kelta byggist á flóknu kerfi sveiga og vafn-
inga sem minna á jarðargróða. Í elstu skreyti-
list Kelta má sjá í þessum formum höfuð manna
og dýra sem jafnvel geta hvort tveggja verið
dýra- eða mannsandlit. Það er þess vegna sem
uppruni græna mannsins er oft talinn meðal
Kelta. Í fornum handritum má einnig sjá
skreytingar, andlit án allra persónueinkenna
umvafin miklum gróðri. 2)
Græni maðurinn, stundum kallaður andlitið í
laufinu, skiptist nokkuð í fjóra flokka eftir gerð.
Í fyrsta lagi þar sem andlitið verður að laufum. Í
öðru lagi andlit sem ælir eða spýtir út úr sér
trjágreinum eða laufi. Í þriðja lagi það sem kall-
ast ,,blóðsuguandlit þar sem augu og greinar
brjótast ekki aðeins út um munn heldur einnig
augu og eyru. Og í fjórða lagi sú gerð af græna
manninum sem margir kalla ,,Jack in the
Green“ sem kalla má upp á íslensku; Jóa í gras-
inu. Þar er andlit græna mannsins einfaldlega
umgirt laufblöðum. Ekki er þó hægt að segja að
það séu skýrar línur á milli þessara gerða
græna mannsins og til er að þessar fjórar gerðir
blandist saman. 3) William Anderson sem skrif-
aði allýtarlega bók um græna manninn telur að
aðeins megi tala um þrjár gerðir andlitanna. 4)
Sameiginlegur með öllum þessum andlitum er
samruni manns og jarðargróða, áminning um að
allt hold er hey. Græni maðurinn sýnir hringrás
lífsins, dauða, rotnun og síðan endurfæðingu
eða upprisu. Græni maðurinn er upphaflega
heiðið tákn sem varð hluti táknfræði og skreyti-
listar kirkjunnar. Hann varð að sameining-
artákni á milli heiðinnar fortíðar og kristins
samtíma. 5)
Laufásinn meðal talsmanna Krists
Laufás við Eyjafjörð er einn þekktasti kirkju-
staður norðanlands. Þar hefur verið kirkju-
staður frá upphafi kristni á Íslandi og þar hafa
einnig fundist kuml úr heiðnum sið. Í Laufási
hafa löngum setið, og svo er enn, vel menntaðir
hefðarklerkar, oft tengdir biskupum og bisk-
upssetrum landsins á einn eða annan hátt. Sjálf
jörðin er eftirsótt hlunnindajörð í fögru um-
hverfi Eyjafjarðar. Einn merkasti torfbær
landsins er í Laufási.
Kirkjan í Laufási, sú er nú stendur, er frá
árinu 1865 byggð að tilhlutan séra Björns Hall-
dórssonar sem þá sat staðinn. Meðal gripa í eigu
kirkjunnar er voldugur predikunarstóll í bar-
okkstíl með ártalinu 1698. Á stólnum eru fimm
hliðar. Á miðbiki stólsins eru fimm spjöld þar
sem eru mjög hátt útskornar myndir af guð-
spjallamönnunum fjórum ásamt Kristi í miðið.
Á þremur listum sem aðskilja útskornu mynd-
irnar eru síðan skorin út mannsandlit, umgirt
stílfærðu laufi. Einnig eru á neðsta hluta pre-
dikunarstólsins svipuð útskorin andlit. Alls eru
því útskornu andlitin átta. En talan átta er í
kristinni dulspeki tala endurnýjunar. Margir
skírnarfontar eru átthyrndir. Hér í félagsskap
guðspjallamannanna, talsmanna Krists, er
græni maðurinn kominn, listilega útskorinn.
Samkvæmt hefðinni sýna andlitin eða andlits-
grímurnar, ýmiskonar svipbrigði, engin tvö
andlit eru eins.
Víða erlendis má finna græna manninn út-
skorinn á predikunarstólum þannig að græni
maðurinn í Laufási, sem vel mætti nefna Lauf-
ásinn upp á íslensku, á sér hliðstæður. Það sem
hefur vakið athygli manna sem fjallað hafa um
græna manninn að hann er þar að finna á meðal
guðspjallamannanna sem nefndir hafa verið
talsmenn Krists, þeir sem vitnuðu um ævi hans
og störf og boðuðu endurkomu hans. Það hefur
verið notað sem dæmi um mikilvægi græna
mannsins hvert virðingarsæti hann hefur. Og á
predikunarstólnum í Laufási eru hvorki fleiri né
færri en átta andlit græna mannsins, Laufáss-
ins, sem horfa á til safnaðarins og minna á tilvist
sína.
Græni maðurinn, Laufásinn, á predik-
unarstólnum góða í Laufáskirkju er gerður af
slíku listfengi að kunnáttumaður hefur aug-
ljóslega verið þar að verki. Predikunarstóllinn
er gerður af manni sem nauðaþekkti hefðina á
bak við græna manninn. En hvort sá Lauf-
ásklerkur sem lætur smíða þennan predik-
unarstól hefur vitað um tilvist græna mannsins
og hlutverk hans í skreytilist og táknfræði
kirkjunnar er annar handleggur og verður
þeirri spurningu seint svarað.
Sá prestur sem sat Laufás á þeim tíma sem
predikunarstóllinn góði barst kirkjunni var sr.
Geir Magnússon (1698-1737) Hann var í Laufási
frá 1689 til æviloka eða í 47 ár. Sr. Geir sem
hafði lokið guðfræðiprófi í Kaupmannahöfn var
þekktur húmanisti, átti allgott bókasafn og að
hans frumkvæði voru gerð sum bestu listaverk í
lok 17. aldar og í upphafi þeirrar 18. á Norður-
landi. Listelskari maður hefur ekki búið í Lauf-
ási seinni aldir, nema ef vera skyldi Björn Hall-
dórsson. 6) segir Hörður Ágústsson
listfræðingur um sr. Geir.
Sr. Björn Halldórsson telur predikunarstól-
inn útlenda smíð.
Um þennan predikunarstól hefur verið nokk-
uð fjallað. Árið 1868 skrifaði sr. Björn Hall-
dórsson (1823-1882) í Laufási skýrslu um gripi í
eigu Laufáskirkju og sendi til Þjóðminjasafns-
ins. Þar segir hann meðal annars: ,,Heyrt hef ég
þau ummæli, að Illugi nokkur Jónsson, bóndi í
Nesi um aldamótin 1700, hinn mesti þjóðhagi og
skurðmaður, hafi gjört þennan predikunarstól
með hans umbúnaði og ýmislegt fleira viðhafn-
arsmíð í Laufáskirkju. En líklegra þykir mér
þó, að útlenskt verk sé á stólnum og dreg ég það
meðal annars af því, að smiðsins er alls eigi get-
ið í biskupsvísitasíunni 1701, en þar er predik-
unarstóllinn, og himninum uppi yfir fyrst lýst,
og Illugi einn meðal þeirra, er skrifað hafa undir
vísitasíuna. 7) Skáldið, presturinn, smiðurinn og
listamaðurinn, sr. Björn Halldórsson sem oft
hafði talað til sóknarbarna sinna úr stólnum
góða áttaði sig á því að stóllinn sá var ekki gerð-
ur af íslenskum höndum.
Græni maðurinn eignaður
íslenskum manni
Ekki nægðu ummæli sr. Björns Halldórssonar
um uppruna predikunarstólsins í Laufáskirkju
þáverandi þjóðminjaverði, Matthíasi Þórð-
arsyni þegar hann var á yfirreið um landið árið
1912 og kom í Laufáskirkju. Hann lýsir stólnum
í mörgum orðum, segir m.a. ,,...á brúnunum eru
breiðir útskornir listar með afskræmdum and-
litum. Að ofanverðu eru stafirnir GMS (þ.e. séra
Geir Magnússon) og neðantil er ártalið 1698.
Predikunarstóll þessi er að ýmsu leyti merk-
isgripur, myndirnar sumar, einkum andlitin á
brúnunum allvel gerð. 8) Þjóðminjavörður taldi
predikunarstólinn í Laufáskirkju íslenskan,
gerðan af sama manni og predikunarstóllinn í
Draflastaðakirkju í Fnjóskadal.
Í nýlega útkominni bók, Mynd á þili, íslenskir
myndlistarmenn á 16., 17. og 18. öld eftir Þóru
Kristjánsdóttur list- og sagnfræðing er fjallað
um predikunarstólinn í Laufáskirkju. Þar full-
yrðir Þóra Kristjánsdóttir og vitnar þar til
Harðar Ágústssonar listfræðings að predik-
unarstóllinn í Laufáskirkju sé eftir Illuga Jóns-
son, bónda og snikkara í Nesi í Höfðahverfi
þann sem sr. Björn Halldórsson Laufásklerkur
hafði talið að ekki hefði smíðað stólinn. Rök
þeirra listfræðinganna eru þau að Illugi snikk-
ari hafi hugsanlega haft aðgang að fornu ís-
lenska miðaldaskinnhandriti sem kallað hefur
verið Íslenska teiknibókin. En þar er að finna
ýmsar myndir sem eiga að hafa verið Illuga
uppspretta hugmynda að ,,þeim sérkennilegu
kynjadýrum og afkáralegu skreyti“, svo notuð
séu orð Þóru en þessi andlit eru augljóslega
græni maðurinn. 9) Röksemdir Þóru Kristjáns-
dóttur er ekki annað en hugleiðingar og vanga-
veltur og breytir litlu þótt hún þakki Herði
Ágústssyni sérstaklega fyrir hugmyndina um
að Illugi sé smiðurinn. M.a. segir Þóra að
,,Hörður Ágústsson gælir við þá hugmynd að
Illugi hafi ef til vill fengið teiknibókina góðu hjá
Hólmfríði Sigurðardóttur...“ 10) Það er alveg
óvíst að Illugi Jónsson snikkari í Nesi hafi
nokkru sinni barið íslensku teiknibókina augum
og hafi svo verið þá er víst að þaðan hefur hann
ekki fengið hugmyndina að græna manninum,
enda eru andlitin í teiknibókinni með allt öðrum
hætti en andlitin á predikunarstólnum. Þóra
Kristjánsdóttir list- og sagnfræðingur þekkir
greinilega ekki hefðina á bak við græna mann-
inn og leitar því langt yfir skammt í útskýr-
ingum sínum, segir að það sé ,,verðugt verk-
efni“ að leita eftir áhrifum þessara gömlu
teikninga á list hans. Þau sérkennilegu kynja-
dýr og afkáralegu skreyti, sem mönnum hefur
fundist einkenna stíl Illuga og vera angi af síð-
barokkstíl samtímamanna hans úti í Evrópu,
gætu verið ættuð úr teiknibókinni og umbreytt
af Illuga. 11) Það hefði verið eðlilegra að andlit-
in í teiknibókinni hefðu fyrst verið borin saman
við útskurðinn á predikunarstólnum og þá hefði
komið í ljós að það er ekkert skylt með græna
manninum og teikningunum í teiknibókinni.
Það er augljóst að í Laufáskirkju er græni mað-
urinn lifandi kominn, frábært dæmi um slíka
hefð frá þeim blómatíma hans í Vestur-Evrópu.
Þess má að lokum geta að Laufáskirkja var
helguð Pétri postula í kaþólskum sið á Íslandi.
En bent hefur verið á að græni maðurinn er
einna algengastur í kirkjum sem einmitt voru
helgaðar Pétri postula og í kirkjum allra heil-
agra. 12) Í Hítardalskirkju þar sem sér-
kennilegt andlit höggvið í stein hefur fundist og
fræðimenn hafa ekki fundið skýringu á gæti
mjög vel verið andlit græna mannsins, en í
Hítardal var allra heilagra kirkja í kaþólskum
sið.13)
Heimildaskrá/ tilvísanaskrá:
1. Mike Harding. A little Book of the Green Man. Aurum
Press. London, 1998. Bls 12.
2. Jeremy Harte. The Green Man. Jarrold Publishing, Nor-
wich, 2001.
3. Mike Harding. A Little Book of the Green Man.
4. William Anderson. Green Man. The Archetype of our One-
ness with the Earth. Campassbooks. HarperCollins Publishers.
London 1990. Bls. 88.
5. Sama heimild. Bls. 133.
6. Hörður Ágústsson. Laufás við Eyjafjörð. Staðurinn. Hið ís-
lenska bókmenntafélag. 2004. Bls. 62.
7. Þóra Kristjánsdóttir. Mynd á þili. Íslenskir myndlistarmenn
á 16., 17. og 18. öld.
Jpv útgáfa og Þjóðminjasafn Íslands. Reykjavík 2005. Bls. 80.
8. Sama heimild. Bls 78.
9. Sama heimild. Bls. 82.
10. Sama heimild. Bls. 82.
11. Sama heimild. Bls. 82.
12. Mike Harding. Slóðin er: http://www.mikeharding.co.uk/
greenman/charts.html
13. Anne og David Owen, Wilmcote, Stratford-upon-Avon,
Bretlandi, félagar í ,,The Company of the Green Man ,veittu
greinarhöfundi ýmsar ábendingar um efni er varðar græna
manninn.
Græni maðurinn í
Laufáskirkju
Hann hefur verið kallaður Græni maðurinn
eða andlitið í laufinu. Hér er hann hnyttilega
kallaður Laufásinn. Útskorin andlit á prédik-
unarstólnum í Laufási í Eyjafirði benda til
tengsla við heiðni, fornar hugmyndir um
hringrás náttúrunnar, líf og dauða.
Eftir Karl Smára
Hreinsson
karlsmari@simnet.is
Höfundur er magister og leiðsögumaður.
Andlit í laufi Hér sést græni maðurinn betur á
predikunarstólnum í Laufási.
Laufásinn Græni maðurinn er skorinn út í lóð-
réttu stafina undir efri og neðri brík predik-
unarstólsins, alls 8 andlit.
Græni maðurinn Skorinn út í áttstrendan stein-
skírnarfont í St. Lawrence church í Evesham í
Worcesterskíri á Englandi.