Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Page 1
Laugardagur 26. 8. 2006 81. árg. lesbók SPAGETTÍAUSTRI MURAKAMIS „SÁ DAGUR SEM ÉG FÆ NÝJA BÓK EFTIR HANN Í HENDURNAR ER FULLKOMINN DAGUR FYRIR MURAKAMI“ Er Peter Handke óboðlegur höfundur vegna skoðana sinna? » 6 Eftir Jón Karl Helgason tjonbarl@hotmail.com N ú í vikunni birtust í Morgunblaðinu ljósmyndir af „náttúruspjöllum“ í gíg Hverfjalls í Mývatnssveit; orð- um og myndum sem gerð eru með því að raða ljósu, lausu grjóti á svartan gígbotninn. Í viðtali við yf- irlandvörð á svæðinu, Elvu Guð- mundsdóttur, kemur fram að ferða- menn hafi um margra ára skeið skilið þarna eftir einhver læsileg ummerki um heimsóknir sínar. Hún viðurkennir að þau elstu séu „orðn- ar menningarlegar minjar“, en finnst að þetta hafi færst svo í aukana á síðari árum að til óheilla horfi. Þykir Elvu sérstaklega „ljótt þegar það er verið að skrifa ást- arjátningar og þetta fer að verða eins og veggjakrot“ og fullyrðir að meirihluti ferðamanna telji þetta hvíta lesmál „lýti á svæðinu“. Hins vegar hafi landeigendur Hverfjalls ekki gefið leyfi til að það sé fjar- lægt. Einn þeirra, Leifur Hall- grímsson, svarar fyrir þá ákvörðun á síðum Morgunblaðsins. Hann tel- ur að þetta athæfi hafi ekki aukist og segir að eins og þetta hafi verið síðustu árin pirri þetta þá ekki neitt. Leifur lætur þess einnig getið að landeigendur hafi sjálfir sett upp- hafsstafi sína þarna þegar þeir voru „ungir menn“ og lofar að það verði tekið á málinu ef „þetta fer úr bönd- unum“. Daginn eftir þessa umfjöllun var fjallað um málið í leiðara Morg- unblaðsins undir yfirskriftinni „Krotað á náttúruna“. Var vakin at- hygli á að Hverfjall væri „einn stærsti og formfegursti gjóskugígur í heiminum“, enda væri staðurinn á náttúruminjaskrá. Furðaði leið- arahöfundur sig á tregðu landeig- anda til að leyfa að skrifin í gígnum yrðu fjarlægð en minnti jafnframt á að „skemmdarverk“ sem þessi hefðu tíðkast lengi; „þeir sem aka um Svínahraun geta séð dæmi um hvernig skemmdarvargar hafa rifið mosa úr fjallshlíðum til að mynda stafi og orð. Það eru skemmdir, sem enn sjást áratugum síðar.“ Í nið- urlagi leiðarans er loks rætt um það sem uppeldislegt atriði að foreldrar útskýrðu fyrir börnum sínum „að svona umgangist fólk ekki merkar náttúruminjar. Eða getur það verið að fullorðið, viti borið fólk kroti á steina og fjöll?“ Umræðan um þetta efni er for- vitnileg, af ýmsum ástæðum. Út frá sögulegum forsendum má velta fyr- ir sér hve háum aldri tjáning af þessu tagi þurfi að ná til að teljast menningarlegar minjar, fremur en náttúruspjöll. Með vissum hætti er steinskriftin í Hverfjalli nútímaleg útgáfa af bergristum og rúnaristum fyrri alda, sem flestar hafa tryggt sér eilíft líf á minjaskrám. Út frá fagurfræðilegum forsendum má velta fyrir sér hve listræn tjáning af þessu tagi þurfi að vera til að teljast umhverfislistaverk fremur en skemmdarverk. Hver er til dæmis munurinn á steinskriftinni í Hver- fjalli og steinsúlunum sem banda- ríski listamaðurinn Richard Serra reisti í náttúruperlunni Viðey um árið? Út frá félagsfræðilegum for- sendum má velta fyrir sér hve Kilroy við Kárahnjúka Minjar? Á „krotið“ á Hverfjalli eftir að teljast merkilegar minjar? AP Oprah Slétt ásjóna sjónvarpskonunnar hylur sársaukafulla fortíð. » 4 F yrir skömmu vakti það mikla athygli á Englandi þegar Josephine Rooney, sem er 69 ára gamall eft- irlaunaþegi, var dæmd til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að neita að greiða fasteignagjöldin sín, en hún skuldaði bæjarfélag- inu í Derby City tæp 800 pund. Josephine var orðin þreytt á því að bæjarráðið skyldi ekki bregðast við sífelldum umkvört- unum út af vændi og eitur- lyfjavanda í nágrenni við heimili hennar. Svo að ástæðurnar fyrir ákvörðun hennar færu ekki á milli mála lagði hún í hverjum mánuði upphæðina sem hún skuldaði bæjarfélaginu inn á sér- stakan reikning sem hún hreyfði ekki við. Þegar dómur féll í mál- inu var Josephine dæmd til að greiða skuld sína við bæjarfélagið eða vera fangelsuð ella. Josephine sat aðeins inni í eina nótt. Velgjörðarmaður greiddi skuld hennar að fullu en þegar Josephine var leyst úr haldi sagði hún: „Það fékk afskaplega mikið á mig þegar mér var sagt að fast- eignagjöldin mín hefðu verið greidd. Ég lagði á það ríka áherslu að ég hefði lagt pen- ingana inn á bankabók. Sá sem gerir svona lagað hlýtur að vera á bandi bæjarráðsins.“ Josephine vissi sem var að full- trúarnir í bæjarráðinu högnuðust helst á því að hún sæti inni í sem skemmstan tíma. Með því að greiða skuld hennar taldi hún velgjörðarmaðurinn hafa brotið á „rétti“ sínum til þess að brjóta lögin í mótmælaskyni eins þver- sagnakennt og það kann að hljóma. Ég kem aftur! En hún hefur ákveðið að láta þetta mótlæti ekki buga sig: „Jafnvel þótt ég bíði ósigur hef ég ekki brugðist í kristilegum skilningi orðsins vegna þess að ég hef gert allt sem ég gat. Ég sagði fangelsisstjóranum að þetta endaði ekki hér og ég kæmi bráð- um aftur.“ Guðni Elísson fjallar um þegn- lega óhlýðni í Fjölmiðlapistlinum í dag. »2 Þegnleg óhlýðni Josephine Telur brotið á „rétti“ sínum til þess að brjóta lögin í mótmælaskyni » 3 Hver er munurinn á „krotinu“ í Hverfjalli og risavöxnu „stíflu-veggjakrotinu“ sem brátt verður lokið við á hálendinu?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.