Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók N ýverið kom út í Banda- ríkjunum myndin An Incovenient Truth, eða Óþægilegur sannleikur og verður hún tekin til sýninga á kvikmyndahá- tíðinni IIFF sem hefst 30. ágúst næstkomandi. Myndin hefur vakið mikla athygli og hörð við- brögð en í henni lýsir Al Gore, fyrrverandi varaforseti og forsetaframbjóðandi (2000), ára- langri baráttu sinni gegn meintri fáfræði og skammsýni annarra stjórnmálamanna og við- skiptajöfra. Gore er lýst sem hugsjónamanni sem verið hafi á undan sinni samtíð en ekki fengið hljómgrunn. Núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna er hins vegar fundið allt til for- áttu og hún sökuð um að stinga höfðinu í sand- inn þrátt fyrir að stærstu hörmungar mann- kynssögunnar bíði handan við næsta horn. Af pólitískum ástæðum eru menn því eðlilega á öndverðum meiði hvað varðar ágæti mynd- arinnar en framsetning Gores á vísindalegum gögnum hefur einnig verið gagnrýnd. Í myndinni byrjar Gore á því að teikna upp einfaldaða en skýra mynd af vandamálinu: gróðurhúsalofttegundir losna við brennslu olíu og kola, þær þykkja loftslagshjúp jarðar og gera það að verkum að þó svo að hiti sólarinnar sleppi inn á hann töluvert erfiðara með að kom- ast út. Sú samlíking, sem best hefur gengið að nota til útskýringar á þessu, er að líkja hjúpn- um við gler í gróðurhúsi. Nákvæmlega sama lögmál gildir jú í gróðurhúsi þar sem varmatap er hlutfallslega lítið miðað við þann hita sem sleppur inn. Ef litið er á hnöttinn í heild sinni, segir Gore, má gera ráð fyrir áframhaldandi al- mennri hlýnun. En hún mun ekki dreifast jafnt, heldur vex hitastigið á pólunum töluvert hraðar en í kringum miðbaug. Þetta er í samræmi við allar viðurkenndar rannsóknir á sviði loftslags- breytinga en á hinn bóginn eru til margar mis- munandi spár um hvaða afleiðingar þetta gæti haft í för með sér. Al Gore styðst við töluvert umdeilda hug- mynd í spádómum sínum. Hún gengur í meg- indráttum út á það að bráðnun Grænlandsjök- uls muni trufla eða jafnvel stöðva Golfstrauminn sem er ein meginforsenda fyrir lífi og siðmenningu í Evrópu – ekki síst á Ís- landi. Síðast þegar þessi straumur truflaðist, en það var einmitt í kjölfar þess að gríðarlega mik- ið ferskvatn rann úr jöklum Norður-Ameríku út í hafið, setti það af stað litla ísöld í Vestur- Evrópu og gerði stór landsvæði þar óbyggileg með öllu. Al Gore heldur því fram kenningu sem virðist við fyrstu sýn þversagnakennd: Þ.e.a.s. að hlýnun jarðar muni óbeint leiða til ís- aldar. Framtíð Íslands og norðurhvels jarðar Enn sem komið er hafa fæstir vísindamenn tek- ið undir þessar kenningu og margar aðrar hafa verið settar fram – en hafa skal í huga að þær útiloka ekki endilega hver aðra og einhver blanda af hlýnunar- og kólnunarskeiðum er allt- af möguleiki. Trausti Valsson, prófessor við Há- skóla Íslands, er þessa dagana að leggja loka- hönd á bókina How the world will change with global warming (Hvernig heimurinn mun breyt- ast að völdum hlýnunar jarðar) þar sem hann setur fram kenningar sínar um málið og varpar ljósi á eina mögulega framtíð jarðarbúa. Blaða- maður tók hann tali og spurði út í meginefn- istök bókarinnar. „Í bókinni leitast ég við að draga upp mynd af heiminum í heild sinni og þeim loftslagslegu áhrifum sem telja má líklegt að hækkandi hitastig á heimsvísu hafi í för með sér. Það að hitastig fer hækkandi er einfaldlega staðreynd og það er leitun að vísindamanni sem telur það ekki vera að einhverju leyti af manna- völdum. Síðan fer ég út í hvaða áhrif þessar breytingar geti haft á ýmsa „strúktúra“, t.d. munu skipasiglingar taka stakkaskiptum,“ seg- ir Trausti. Þegar talið berst að siglingaleiðum tekur Trausti fram stafla af skýrslum og hnattlíkan sem hann notar til að benda á þær löngu sigl- ingaleiðir sem stærri flutningaskip þurfa í dag að fara til að ferja varning á milli heimsálfa. „Risaskip dagsins í dag komast ekki í gegnum Panamaskurðinn og þurfa því að sigla óralanga leið í kringum heilu heimsálfurnar til að komast á áfangastað. Það er ljóst að ef hafís heldur áfram að bráðna á þeim hraða sem við sjáum í dag mun ekki líða á löngu þar til Norðvest- urhliðið svokallaða opnast og hægt verður að sigla beint yfir Norðurskautshafið. Þetta mun gjörbreyta öllum siglingasamgöngum og flutn- ingaleiðum, enda verður um u.þ.b. fimm til níu þúsund kílómetra sparnað að ræða. Við getum, sem sagt, búist við því að skipaumferð fram hjá Íslandsströndum stóraukist og verði orðin tölu- verð innan tveggja áratuga; en því fylgja bæði tækifæri og hættur. Íslenska Landhelgisgæslan þarf að fjárfesta í mjög kostnaðarsömum tækja- búnaði til að geta aðstoðað skipverja í hættu stadda,í skipum af þeirri stærðargráðu sem bú- ast má við að fari að sigla um landhelgi okkar. Svo geta þessi skip haft alls kyns hættulegan varning innanborðs. Tækifærin felast hins veg- ar í umskipun og almennri þjónustu við þessi mörgu og gríðarstóru skip. Ég var einmitt á ráðstefnu á Akureyri í janúar síðastliðnum um þessi tækifæri og möguleg sóknarfæri Íslands í þessum málum. Úr annarri en tengdri átt má svo minnast á að með aukinni bráðnun jökla eykst raforkuframleiðsla vatnsaflsvirkjana og af því er að sjálfsögðu hægt að hafa tekjur.“ Orka er auðvitað ein eftirsóttasta markaðs- vara í heimi en það vill svo heppilega til að á þeim ísilögðu svæðum, sem talið er að muni þiðna á næstu áratugum, er einnig að finna miklar olíubirgðir. „Það er talið að um tuttugu prósent olíubirgða heimsins liggi á þessum svæðum. Vegna ástandsins í Miðausturlöndum eru Bandaríkjamenn farnir að setja mikla fjár- muni í að leggja drög að innkomu olíufyrirtækja sinna á þetta svæði. Þau landsvæði sem þarna eru að opnast eru örugg hvað varðar hryðju- verk og auk þess eru þau mörg þúsund kíló- metrum nær Norður-Ameríku. Olíuskip eru nú þegar farin að sigla með fram Íslandsströndum og það hafa alls sautján skip, hundrað þúsund tonn hvert, farið hér fram hjá á allra síðustu ár- um. Ef við tökum gasflutninga með í reikning- inn tel ég að innan átta ára verði umferðin um hafsvæðið í kringum Ísland allt að eitt þúsund stærðarinnar eldsneytisflutningaskip á ári.“ Hvað verður um alla hina? Í ljósi þessara upplýsinga mætti draga þá álykt- un að loftslagsbreytingar af mannavöldum væru í rauninni hið besta mál fyrir Íslendinga og aðrar norðlægar þjóðir. Trausti komst þó fljótlega að því að erlendir kollegar hans höfðu mestan áhuga á þeim hugsanlegu hörmungum sem þær breytingar, sem Trausti spáir, gætu leitt af sér. „Ég var að flytja erindi um þessi mál á ráðstefnu um daginn. Þegar kom að því að svara spurningum kom í ljós að þarna inni voru allir lafhræddir við þessa framtíðarsýn. Ástæðan er fyrst og fremst sú að ef núverandi þróun heldur áfram munu vissulega skapast mörg tækifæri á norðurhveli – á suðurhveli er einfaldlega ekki mikill landmassi – en hins veg- ar gæti stór hluti heimsins í kringum miðju jarðar orðið óbyggilegur. Þar býr þorri mann- kyns í dag og pólitískar og efnahagslegar afleið- ingar stærstu fólksflutninga mannkynssög- unnar valda mönnum auðvitað áhyggjum. Í dag má sjá að ákveðnar dýrategundir og flóra er farin að flytja sig til í leit að æskilegri lífsskil- yrðum. Gera má ráð fyrir að mannskepnan hegði sér eins þegar uppskerubrestur og þurrk- ar fara að verða daglegt brauð við miðbaug. Áveitukerfi eru nú þegar farin að bregðast á fjölbýlum svæðum og gríðarmiklar ár, t.d. í Kína, hafa nánast þornað upp. Ofan á allt annað munu fátækari lönd síðan sökkva í sæ eftir því sem yfirborð sjávar hækkar. Ríkari samfélög undir sjávarmáli hafa hins vegar yfir að ráða fjármunum og tækni sem mun gera þeim kleift að halda landi sínu að öllu eða mestu leyti.“ Spurður um hinn fyrrnefnda hlutfallslega mun á hækkun hitastigs eftir heimssvæðum svarar Trausti: „Þó svo að hitastigið við mið- baug hækki hlutfallslega hægar en hjá okkur munar mun meira um hverja gráðu fyrir þá sem þar búa. Það er í sjálfu sér ekkert að því fyrir okkur að fá tíu gráðu hækkun. Það gæti jafnvel verið til mikilla bóta fyrir landbúnað og vakið almenna ánægju landsmanna. Hins vegar geta tvær eða þrjár gráður, til eða frá, gjöreyðilagt samfélög sem lifa nú þegar við háan hita og vatnsskort. Einnig má búast við flóðum og óveðri þar sem loftslagsbreytingum af þessu tagi fylgja oft öfgar í báðar áttir. Vandinn er sá að þótt mörg dýr eigi auðvelt með að flytja sig um set, eins og ég sagði áðan, þá er mannlegt samfélag einfaldlega þannig gert að þjóðern- ishyggja og annað gerir stórfellda fólksflutn- inga erfiða og áhættusama. Stjórnmálafræði er ekki mitt fag og auðvitað er talsverð spenna á milli margra mismunandi menningarheima – en persónulega get ég ekki hugsað mér skemmtilegra umhverfi en fjöl- menningarsamfélag. Kannski er ég bara bjart- sýnismaður? Ég vil þó benda á að þau svæði, sem munu opnast upp í kjölfar hlýnunar, eru mjög strjálbýl. Þannig að plássleysi ætti í sjálfu sér ekki að verða vandamál. Það gæti þó farið fyrir brjóstið á einhverjum ef fólk byrjaði að flæða yfir landamæri þeirra í þeim mæli að það myndi þynna út eða jafnvel drepa þjóðark- arakter þeirra sem voru þar fyrir. Tvær til þrjár milljónir innflytjenda við þessar aðstæður er ekkert sérlega mikill fjöldi ef litið er á heim- inn í heild. En ef svo margir settust til dæmis að hér á landi myndu Íslendingar fljótt verða mikill minnihlutahópur og þá yrði erfitt að segja til um framtíð máls og menningar. Það mætti ímynda sér litlar Íslendingabyggðir hér og þar á landinu, t.d. í Búðardal, líkt og nú til dags eru litlir kjarnar af útlendingasamfélögum að myndast úti á landi. Efnahagslega held ég að þetta væri bara fínt fyrir landið en það eru að sjálfsögðu ekki allir sáttir við þá tilhugsun að hér verði ekki töluð íslenska í framtíðinni.“ Getur hlýnun orsakað ísöld? Trausti gefur ekki mikið fyrir þá kenningu Als Gore og annarra að bráðnun Grænlandsjökuls muni trufla Golfstrauminn og gera það að verk- um að íshella leggist yfir Evrópu. „Þetta er nú frekar furðulegur málflutningur – að halda því fram að jörðin sé að hlýna hratt en láta það svo út úr sér í næstu setningu að það muni leiða til ísaldar. Hver eru skilaboðin hjá honum? Það vill svo til að landmassi Grænlands liggur í skeifu og opnast út til vesturs. Þar að auki er landið kúpt en ekki flatt eins sá hluti Norður-Ameríku sem fylltist af vatni sem síðan braut sér leið til hafs og truflaði Golfstrauminn. Vatnið lekur smám saman niður af Grænlandsjökli á löngum tíma og það getur aldrei myndast stór pollur. Sú kenning hefur vissulega verið á lofti að þetta ferskvatn gæti samt haft áhrif á saltan straum- inn. Í nokkur ár hafa þó farið fram reglulegar mælingar á seltustigi og öðrum breytum og þessir kenningasmiðir hafa enn engar tölur máli sínu til stuðnings. Það þarf að mæla svona nokkuð í hundrað ár eða lengur áður en hægt er að segja eitthvað af eða á. Við vitum afskaplega lítið um sögu hafstrauma og þess vegna gætum við í framtíðinni fengið hvort sem væri minna eða meira af þessum heitu straumum. Þeir hreyfast vissulega til en það er erfitt að spá fyr- ir um þetta. Veðurmælingar hafa hins vegar staðið yfir í meira en öld og þau gögn er mun betra að vinna með.“ Þar sem hlýnun jarðar virðist vera mælanleg staðreynd og sumar mögulegar afleiðingar þeirrar þróunar hljóma vægast sagt ógnvæn- lega, fýsir blaðamann að vita hvað sé verið að gera í málinu. „Kyoto-sáttmálinn frægi, sem átti að stuðla að minni útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda í framtíðinni, gerði ekki fyrirhugað gagn þar sem þau lönd, sem menga mest, voru einfaldlega ekki aðilar að honum. Þar að auki hafa þau lönd, sem skrifuðu undir sáttmálann, í raun hrakið mengandi iðnað úr landi og til þriðja heimsins þar sem mengunarvarnir og löggjöf hvað varðar losun hættulegra efna og lofttegunda er almennt mun slakari. Nettóá- hrifin eru því í besta falli engin.“ Að lokum beindi blaðamaður talinu aftur að hugsanlegum fólksflutningsvandamálum fram- tíðarinnar og spurði Trausta hvernig hann, sem leikmaður á sviði félagsfræði og stjórn- málafræði, teldi líklegt að þau mál myndu þróast í framtíðinni. „Eins og ég nefndi munu loftslagsbreytingar næstu áratuga verða lang- bestar fyrir okkur hérna fyrir norðan og gera má ráð fyrir að mikill fjöldi fólks vilji flytjast hingað búferlum. Við vorum búnir að ræða praktísk vandamál á slíku flakki og þá stað- reynd að ekki mun öllum lítast á blikuna fyrst um sinn. En mikilvægt er að hafa í huga sið- ferðislegar skyldur okkar í þessu máli. Er okk- ur stætt á því að sitja hérna í vellystingum, efst á hnettinum, á meðan stór hluti heimsbyggð- arinnar brennur í vítiseldum rétt fyrir sunnan okkur? Áður en þeirri spurningu er svarað mætti líka hafa í huga þá staðreynd að stærsti hluti þeirrar mengunar, sem veldur þessum breytingum, hefur einmitt komið frá norð- urhveli jarðar frá tímum iðnbyltingarinnar.“ Ef heimsbyggðin færir sig um set Gangi spár Trausta Valssonar og annarra eftir er ljóst að eitt stærsta vandamál sem komandi kynslóðir munu standa frammi fyrir er hvernig haga skuli stærstu fólksflutningum sögunnar. Stjórnmálakerfi heimsins, eins og við þekkjum það í dag, gæti gjörbreyst ef heilu stórþjóðirnar leggjast af og erfitt er að gera sér í hugarlund þann heim sem tæki við eftir slíkar breytingar á uppbyggingu þjóðríkja og samruna svo margra ólíkra menningarheima. Eins og staðan er í dag er þróunin sú að vestræn ríki á norðurhveli jarðar eru í sífellt auknum mæli að loka landa- mærum sínum fyrir aðkomufólki að sunnan og austan. Því er sumum eðlilega spurn hvort nokkurn tíma verði hægt að leysa svona stór- mál með friðsamlegum hætti. Blaðamaður tók Jón Orm Halldórsson, stjórnmálafræðing og dósent við Háskólann í Reykjavík, tali og spurði hann út í fólksflutn- Heimur hlýnandi fer Loftslagsbreytingar hafa verið mikið til um- ræðu undanfarin ár og í dag ætti hvert mannsbarn að hafa í það minnsta óljósa til- finningu fyrir því hvað gróðurhúsaráhrif eru. Áframhaldandi hlýnun jarðar gæti haft afdrifarík áhrif á lífkerfi og mannlegt sam- félag en málið er stórpólitískt og ekki eru all- ir sammála um í hvað stefnir eða til hvaða ráða sé best að grípa til að forðast stórslys í framtíðinni. Hér er farið yfir helstu rök vís- indamanna og stjórnmálamanna í þessum efnum og kallað eftir viðbrögðum við vænt- anlegri bók Trausta Valssonar háskólapró- fessors en hún fjallar einmitt um hugs- anlegar afleiðingar núverandi hlýindaskeiðs á jörðina og þá sem hana byggja. Trausti Valsson Innan hundrað ára verður stór hl Eftir Gunnar Hrafn Jónsson gunnarh@gmail.com

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.