Morgunblaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 22. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ævistarfið fór í útboð Sæmundur í Borgarnesi hefur keyrt rútur í 50 ár | Minn staður Fasteignir | Fiskifélagshúsið verður hótel  Samkeppni um hönn- un húsa á Selfossi Íþróttir | Bikarmeistararnir unnu í Hólminum  Eiður Smári á skotskónum  Ólafur hefur áhyggjur af vörninni Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi föstudaginn 27. janúar á Hótel Nordica. Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning á www.sa.is Fasteignir og Íþróttir í dag Lissabon. AFP, AP. | Anibal Cavaco Silva var í gær kjörinn forseti Portúgal en forsetakosningar voru haldnar í land- inu um daginn. Þegar búið var að telja næstum öll at- kvæði í gærkvöldi var ljóst að Cavaco Silva hafði tryggt sér meirihluta atkvæða, hafði hlotið alls 50,6% allra greiddra atkvæða, sem þýðir að hann hlaut tilskilinn meirihluta til að ná kjöri strax í fyrstu umferð, en vaxandi líkur höfðu verið taldar á því fyrir helgi að önnur umferð myndi þurfa að fara fram. Sigur Cavaco Silva merkir að hægrimaður verður for- seti Portúgals í fyrsta skipti frá því að lýðræði komst á í landinu 1974. Fimm aðrir voru í framboði í forsetakosn- ingunum, næstur á eftir Cavaco Silva kom sósíalistinn Manuel Alegre, þingmaður og þekkt skáld, með 20,7% atkvæða. Cavaco Silva er 66 ára og var for- sætisráðherra Portúgals á árunum 1985–1995 en í stjórnartíð hans ríkti umtalsverður og stöðugur hagvöxtur. Hann fór fram sem óháður í kosning- unum nú en naut stuðnings Jafnaðar- mannaflokksins, sem telst hægri flokkur í portúgölskum stjórnmálum. Forseti Portúgals hefur lítil form- leg völd en getur þó leyst upp þing, boðað þingkosningar og skipað forsætisráðherra á grundvelli kosningaúrslita. Cavaco Silva vann í Portúgal Anibal Cavaco Silva LITIR hafsins eru kannski kaldir en það virtist hlýtt á milli Kristófers Jónssonar, skipverja á Ísaki AK, og þessa væna golþorsks, sem veidd- ist á Forunum út af Akranesi. Félagarnir á Ísaki hafa verið fengsælir að undanförnu en ekki hefur gefið á sjó alla daga. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Koss í kalsaveðri um borð í Ísaki AK EVO Morales, leiðtogi kóka- ræktenda og indíána, sór í gær embættiseið sem forseti Bólivíu. Ýmsir erlendir fyrirmenn voru viðstaddir athöfnina, þ.á m. Fel- ipe, krónprins Spánar, Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, Javier Solana, fulltrúi Evrópusambandsins, og Hugo Chavez, forseti Venesúela, en hann kallaði Morales „sendiboða frá Guði“. „Ég vil segja ykkur, bræður mínir af þjóð indíána, að 500 ára barátta okkar hefur ekki verið til einskis,“ sagði Morales í ræðu sem hann hélt við þetta tækifæri. „Núna tökum við við og ráðum ferðinni næstu 500 árin. Við ætl- um að binda enda á óréttlætið og ójafnréttið.“ Á myndinni sést hvar Morales, sem er 46 ára gamall, kemur út úr þinghúsinu í La Paz í gær eft- ir að hafa tekið við embætti for- seta. Morales tekinn við embætti AP ÍSLENSKA verður hvergi töluð eftir 100 ár, ef fram fer sem horfir. Þetta er mat Páls Valssonar útgáfustjóra hjá Eddu útgáfu hf., en hann var með- al fyrirlesara á fjölsóttri ráðstefnu um stöðu málsins í Norræna húsinu í gær. Sagði Páll að sá vandi tungunnar sem t.a.m. Fjölnismenn stóðu frammi fyrir á sínum tíma væri dvergvaxinn í samanburði við þá hættu sem nú steðjar að tungunni. Of mikil áhersla á smáatriði Að mati Páls hefur of mikilli orku verið eytt í smáatriði á borð við það að leiðrétta þágufallssýki og amast við slettum á sama tíma og stökkbreyting sé að verða í þróun tungumálsins. „Sjálfar undirstöður tungumálsins eru að bresta. Beygingakerfið er í uppnámi og setn- ingafræðilegur grundvöllur líka. Svo virðist sem tilfinning fólks fyrir uppbygg- ingu eðlilegra og einfaldra setninga sé á mjög hröðu undanhaldi,“ sagði Páll og benti á að kynslóðabilið í tungutaki væri meira nú en nokkru sinni og ungling- ar t.d. að einangrast í eigin málheimi. Þannig flytjist orðaforði og orðfæri ekki lengur milli kynslóða, sem sé, að mati Páls, stóralvarlegt ef fólk vilji halda íslenskunni lifandi. „Lykillinn að allri okkar fortíð er tungumálið. Ef við missum það er slit- inn þráður sem ekki verður hnýttur aftur. Það tjón er óafturkræft. En það er misskilningur að slíkt tjón sé einkamál okkar Íslendinga. Glatist ís- lenskan sem þjóðtunga hverfur um leið merkilegt framlag þessarar þjóð- ar til bókmennta og menningar heimsins. Og hvað er þá orðið okkar starf?“ Andri Snær Magnason gerði orð og merkingu þeirra að umtalsefni. „Tungumál er ekki skraut, spurn- ing um rétt mál eða rangt, heldur er það fyrst og fremst grundvöllur sam- skipta, farvegur minninga, reynslu og gilda. Tungumálið er mælikvarði á umhverfi og reynsluheim. Sá sem skilur ekki orð sem elsta kynslóðin notar hefur þar af leiðandi ekki átt samskipti við kynslóðina sem notar orðin. Hafi orð fallið úr gildi er líklegt að samhliða orðinu hafi þekking, reynsla og minning þeirra ekki flust milli kynslóða.“ Undirstöður tungu- málsins að bresta Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Páll Valsson  Tungumálið er | 20 London. AFP. | Nú er það svart: rannsóknir breska vísindamannsins Cliff Arnall sýna að dagurinn í dag er sá mæðulegasti á árinu. Arnall kennir heilsusálfræði við háskól- ann í Cardiff. Hann segist hafa sett upp reiknilíkan þar sem tekið er tillit til ólíkra þátta, niðurstaðan sé sú að sá mánudagur sem fellur næst 24. janúar ár hvert sé öm- urlegasti dagur ársins. Fólk sé þá með í huga að hafa þurft að snúa aftur til vinnu eftir jólin, reikningar vegna hátíðahald- anna séu farnir að íþyngja fólki verulega, það sé farið að leggjast á sinni manna að þurfa að halda þau áramótaheit sem sett voru og svo spili auðvitað drungalegt veð- ur rullu fyrir þá sem búi á norðurslóðum. Rannsóknir Arnalls byggjast m.a. á við- tölum hans við mörg hundruð manns. En erum við eitthvað betur sett, að vita að dagurinn í dag er sá ömurlegasti á árinu? Auðvitað, segir Arnall. Þegar menn séu meðvitaðir um drungann eigi þeir auð- veldara með að bregðast við honum. „Þú getur notað vitneskjuna sem tilefni til að gera breytingar. Hún getur hvatt fólk áfram,“ segir hann. Og svo má auðvitað hugga sig við það að þegar ömurlegasti dagur ársins er liðinn þá kemur hann ekki aftur í bráð! Ömurlegasti dagur ársins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.