Morgunblaðið - 23.01.2006, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● SPARISJÓÐUR Kópavogs skilaði
238 milljóna króna hagnaði eftir
skatta á síðasta ári, samanborið við
134 milljóna króna hagnað á árinu
2004. Er það aukning um tæp 78%
milli ára. Fyrir skatta nam hagnaður-
inn 263 milljónum, samanborið við
163 milljónir árið áður. Hreinar vaxta-
tekjur jukust um 8,1% frá fyrra ári og
voru 421 milljón króna.
Heildareignir sjóðsins námu
17.067 milljónum króna í árslok
2005 og höfðu þá aukist um 57% á
árinu. Eiginfjárhlutfallið er 14,1% og
jókst það um 2,1% milli ára. Arðsemi
eigin fjár jókst einnig milli ára og var
það 36,5% samanborið við 22,1% á
árinu 2004. Innlán námu 8.150 millj-
ónum króna í lok ársins 2005 sem er
24% aukning frá fyrra ári. Eigið fé nam
878 milljónum króna í lok ársins
2005, eykst um 19,7% á árinu.
Hagnaður SPK
jókst um 78%
● HAGNAÐUR Sparisjóðsins í Kefla-
vík fyrir árið 2005 nam 1.150 millj-
ónum króna eftir skatta samanborið
við 409 milljónir króna árið áður og
er það aukning um 181,2% milli ára.
Gengishagnaður jókst töluvert milli
ára eða um 735 milljónir króna sem
nemur 131% aukningu milli ára.
Hreinar vaxtatekjur námu 875,8
milljónum króna og jukust þær um
18,1% milli ára. Er þetta besta af-
koma í sögu sparisjóðsins, segir í til-
kynningu.
Heildareignir sjóðsins jukust um
21% á milli ára og nema þær nú
31.777 milljónum króna. Eiginfjár-
hlutfallið er 12,56% og jókst það um
0,14 prósentustig milli ára. Arðsemi
eigin fjár jókst einnig milli ára, var
42,9% á árinu 2005 en 17,3% árið
áður. Heildarinnlán í sjóðnum ásamt
lántöku námu í lok ársins 2005
24.924 milljónum króna og er það
aukning um 32,4% milli ára.
Besta afkoma Spari-
sjóðs Keflavíkur
● NÝHERJI skilaði 76,5 milljóna
króna hagnaði eftir skatta á síðasta
ári og er það aukning um tæplega
54% frá árinu 2004.
Hagnaður Nýherja
ásamt dótturfélögum
fyrir fjármagnsgjöld og
afskriftir, EBITDA, nam
232,7 milljónum
króna en var 268,7 milljónir króna
árið áður.
Heildareignir félagsins nema
3.968 milljónum króna en þær voru
2.864 milljónir króna. Eiginfjárhlut-
fallið er 34,5% og dróst saman um
9,6% milli ára. Tekjur Nýherja á árinu
2005 námu 6.293 milljónum króna,
en voru 5.470 milljónir króna árið áð-
ur og er tekjuaukning því 15% milli
ára.
Í tilkynningu með uppgjörinu segir
að árið 2005 hafi verið ár marghátt-
aðra breytinga og nýjunga í starf-
semi félagsins.
Hagnaður
Nýherja eykst
milli ára
● SLÁTURFÉLAG Íslands, SS, hefur
sent afkomuviðvörun á Kauphöll Ís-
lands þar sem rekstraruppgjör fyrir
árið 2005 mun sýna betri afkomu en
reiknað hafði verið með. Er þá miðað
við afkomu liðinna ára og sex mán-
aða uppgjörs síðasta árs.
Góð afkoma er rakin til umtals-
verðs hagnaðar af sölu hlutabréfa,
ásamt hagræðingu í rekstri, hag-
stæðum fjármagnsliðum og bættum
rekstri dótturfélaga. SS mun birta
afkomu ársins 2005 hinn 24. febr-
úar næstkomandi.
Afkoma SS betri en
reiknað var með
SKELJUNGUR varð hlutskarpast-
ur í nýstárlegu útboði sem fram fór
fyrir helgi í olíuviðskipti við Alcan í
Straumsvík. Útboðið fór fram á net-
inu og á einum og hálfum tíma bár-
ust 40 tilboð frá olíufélögunum.
Að sögn Hrannars Péturssonar,
upplýsingafulltrúa Alcan, var hart
barist á lokasprettinum milli Skelj-
ungs og Olís og að lokum átti fyrr-
nefnda félagið lægsta boð. Eftir er
að ganga frá samningum um við-
skiptin.
Hrannar segir Alcan hafa sparað
400 þúsund dollara, um 24 milljónir
króna, miðað við fyrsta boð og síðan
þá upphæð sem var niðurstaðan á
endanum.
Hann upplýsir ekki hver sú upp-
hæð var en um var að ræða útboð á
6.000 tonnum af svartolíu og 450
tonnum af vélaolíu, með samningi til
eins árs.
Að sögn Hrannars hefur Alcan
beitt þessari aðferð áður í öðrum
verkþáttum með góðum árangri en í
fyrsta sinn var þetta gert með olíu-
viðskipti.
Félögin gátu á hverjum tíma út-
boðsins séð á netinu hvaðan besta til-
boð kom, en ekki frá hverjum, og
reynt þá að bjóða lægra. Fyrirfram
átti útboðið að taka 20 mínútur en ef
fleiri og lægri tilboð komu fram-
lengdist tíminn um þrjár mínútur í
senn.
„Þetta er gott verkfæri til að ná
enn betri árangri í innkaupum, sem
er að sjálfsögðu mjög mikilvægt fyr-
ir okkur. Á undanförnum misserum
hafa ýmis systurfyrirtæki okkar ver-
ið að þreifa sig áfram með þetta
kerfi. Það er markmið Alcan að bæta
árangurinn á öllum sviðum og þetta
er ekki undanskilið,“ segir Hrannar,
aðspurður hvernig þessi útboðsað-
ferð kom til.
Linda Björk Gunnlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Skeljungs, segir niðurstöð-
una ánægjulega en Skeljungur hefur
til þessa verið með Alcan í viðskipt-
um. Linda segir þetta einn stærsta
viðskiptasamning félagsins. Útboðs-
aðferðin sé sannarlega nýstárleg og
spennandi en spurning hvort hún
henti við öll viðskipti. Í ljós eigi eftir
að koma hvort fleiri stórir viðskipta-
vinir beiti sömu aðferð.
Alcan sparaði 24
milljónir í olíuútboði
Eftir harða baráttu olíufélaganna á
netinu átti Skeljungur lægsta boð
Olíuviðskipti Alcan í Straumsvík stóð fyrir útboði á netinu meðal olíufélaganna og börðust þau hart um olíu-
viðskipti upp á tæp 6.500 tonn og samning til eins árs. Á endanum var það Skeljungur sem átti lægsta boð.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SVO VIRÐIST sem íslenskum eig-
endum Magasin du Nord í Kaup-
mannahöfn sé að takast að snúa
við rekstri stórverslunarinnar en
sala Magasin fyrir jólin jókst um
7% en bæði 2004 og 2003 hafði
jólaverslunin dregist saman frá
fyrra ári. Þá hefur salan gengið
vel það sem af er janúar og er um
8% meiri en gert hafði verið ráð
fyrir í rekstraráætlunum en vöxt-
urinn í sölu hefur verið mestur í
fatnaði, eða meira en 30%.
Þetta kemur fram í viðtali
Børsen við Jón Björnsson, fram-
kvæmdastjóra Magasin du Nord.
Hann segist gera ráð fyrir að
Magasin muni skila hagnaði fyrir
afskriftir og fjárfestingar en að
heildarniðurstaða verði þó nei-
kvæð í ár og á næsta ári.
Þannig nefnir hann að Magasin
sé að skipta út um 80% af tölvu-
kerfi sínu og eins eigi að fjárfesta
fyrir um 800 milljónir í nýjum
innréttingum eða fyrir um 250
milljónir á næstu fjórum árum.
„Það hefði átt að vera búið að
gera þetta fyrir mörgum árum.
Kaupmannahöfn á að eiga stór-
verslun á heimsmælikvarða.
Borgin er fimmta stærsta ráð-
stefnuborg heimsins. Nú hækkum
við staðlana,“ segir Jón við
Børsen.
Magasin du Nord
á réttri leið
ENN liggur ekki fyrir hvort Orkla
Media er til sölu eða ekki, hvort eig-
endur félagsins eru bara að leita að
hentugum samstarfsaðila. Orðrómur
er um að Media og A-pressen, sem
m.a gefur út nokkur staðarblöð í
Noregi og á meirihluta í einum átta
staðbundnum sjónvarpsstöðvum,
hafi áhuga á samvinnu eða samruna
félaganna. Eigendur A-pressen eru
Telenor og LO. Þetta kemur fram í
frétt Dagens Næringsliv en þar er
bent á að með sameiningu fyrirtækj-
anna tveggja geti þau betur staðist
samkeppni við fjölmiðlarisann
Schibsted og bætt rekstrarforsend-
ur umtalsvert.
Orkla Media, A-pressen, Telenor
og LO eru nú sögð reyna að fá
menntamálaráðherra Noregs, Trond
Giske, til að fjarlægja helsta þrösk-
uldinn, þ.e. bann við eignatengslum í
norsku fjölmiðlalöggjöfinni.
Dagsbrún hefur verið nefnd sem
hugsanlegur kaupandi að Orkla
Media ásamt með Bonnier, Avishus-
et Dagbladet, Sanoma og Bertels-
mann í Þýskalandi. Giske hefur stað-
fest að hann hafi átt fundi með Stein
Erik Hagen, stærsta eigenda og
stjórnarmanni í Orkla Media, og
stjórnarformanni og einum stærsta
eigenda Avishuset Dagbladet fyrir
jólin.
Óvissa um Orkla Media
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
Fréttir
í tölvupósti