Morgunblaðið - 23.01.2006, Page 34

Morgunblaðið - 23.01.2006, Page 34
34 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ the fog Epískt meistarverk frá Ang Lee Fór beint á toppinn í bandaríkjunum! Þegar þokan skellur á…er enginn óhultur! mögnuð hrollvekja sem fær hárin til að rísa! THE FOG kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA BROKEBACK MOUNTAIN Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.45 MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5 og 10 CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 4, og 6 HOSTEL kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, og 8 B.I. 14 ÁRA DRAUMALANDIÐ kl. 4 THE FOG kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA HOSTEL kl. 10 B.I. 16 ÁRA CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 6 og 8 JUST FRIENDS kl. 6 VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM**** StórkoStleg Saga um áStir og átök byggð á hinni ógleymanlegu metSölubók eftir arthur golden 2golden globe tilnefningarbeSta leikkona Í aðalhlutVerki: Ziyi ZhangbeSta kVikmyndatónliSt: John WilliamS frá óSkarSVerðlauna- leikStJóra "ChiCago" beSta kVikmynda- tónliSt, John WilliamS GolDEN GlobE vERðlaUN Sími - 564 0000Sími - 462 3500 N ý t t í b í ó eeee MMJ Kvikmyndir.com „... ástarsaga eins og þær gerast bestar - hreinskilin, margbrotin og tilfinningarík...“ eeeee L.I.B. - Topp5.is „…langbesta mynd Ang Lee til þessa og sennilega besta mynd sem gerð var á síðasta ári.“ eeeee S.K. - DV „Mannbætandi Gullmoli“ „…Mynd sem þú verður að sjá [...] Magnþrungið listaverk sem mun fylgja áhorfandanum um ókomin ár“ eeeee S.V. MBL 4Golden Globe verðlaunm.a. besta mynd, besti leikstjóri og besta handrit MARGIR fylltust eftirvæntingu er það fréttist að Roman Polanski væri að hefjast handa við gerð nýrrar kvikmyndar, byggðri á Dickens- klassíkinni Oliver Twist. Hann hafði þá nýlokið við The Pianist, sitt lang- besta verk í áraraðir, og þján- ingasagan af veraldarvolki Olivers virtist henta leikstjóranum vel. Minnir í raun meira en lítið á sama tímabil í ævi leikstjórans, og hann lýsir eftirminnilega í ævisögunni, Roman by Polanski. Á bernskuár- um leikstjórans geisaði síðari heimsstyrjöldin, og Polanski, sem er af gyðingaættum, þvældist einn og vegalaus um afkima og útnára Póllands og Mið-Evrópu. Nasistar bundu enda á líf móður hans í Auschwitz, en sjálfur slapp hann undan böðlunum við illan leik og með góðra manna hjálp. Í stríðslok var Polanski aðeins 11 ára. Fáar, ef nokkrar bækur, hafa ver- ið kvikmyndaðar jafn oft og Oliver Twist, bíó- og sjónvarpsútgáfurnar eru komnar vel á þriðja tuginn. Myndin hans Polanskis er klippt og skorin og hefst þegar Oliver er fluttur af munaðarleysingjahælinu fyrir agabrotið fræga, að biðja um meiri graut í askinn sinn. Þaðan liggur leiðin til líkkistusmiðsins, þar sem hann býr við harðræði og jafn- vel verri kost en áður. Oliver grípur því fyrsta tækifærið og flýr úr vist- inni og heldur til Lundúna sem er langt handan við sjóndeildarhring- inn í augum 9 ára snáða. Er til Lundúna kemur er Oliver illa á sig kominn á allan hátt, lang- soltinn, skítugur, fötin hans í hengl- um og skógarmarnir löngu gat- slitnir eftir gönguna. Umkomuleysi hans er algjört þegar hann kynnist The Artful Dodger (Eden), götu- strák og vasaþjófi, lítið eitt eldri en Oliver og einn af mörgum drengjum í þjófagengi Fagins (Kingsley). Fagin er slóttugur refur sem kennir krökkunum öll þau bellibrögð sem duga til að ræna saklausa vegfar- endur. Fátækrahverfi Lundúna eru á þessum tíma sannkölluð svínastía þar sem fólk neytir allra bragða til að þrauka af. Oliver hefur ýmislegt fram yfir aðra í þjófahópnum, hann er heið- arlegur, fallegur strákur með gott hjartalag og stefnir ómeðvitað hærra. Hann samrýmist ekki þjófa- genginu þótt hann sjái í Fagin e.k. föðurímynd sem hann hefur ekki upplifað fyrr. Hann er lélegt þjófs- efni og kemst því fljótlega undir manna hendur, sem verður til þess að Oliver er tekinn inn á heimili hjá góðu fólki, þar sem hann er með- höndlaður sem einn af fjölskyld- unni. Þorpararnir ná drengnum aft- ur og öll sund virðast lokuð en Oliver á einn vin í raun í mannsorp- inu. Sagan er talsvert breytt og stytt, eins og gengur. Polanski hefur ein- faldað hana, dregið úr ævintýra- bjarmanum og fækkað persónum. Sá Oliver sem við áhorfendum blas- ir er þokkalega túlkaður af nýlið- anum Clark, hann hefur drengileg- an svip og sker sig úr hyskinu. Lögð er rík áhersla á að koma til skila því óbrúanlega bili sem ríkti á milli fá- tækra og ríkra á hörmungartímum fyrri hluta 19. aldar. Sögurnar hans Dickens eru hvassar ádeilur á þjóð- félag sem stýrt var samkvæmt regl- unni að fátæklingar væru óalandi undirmálsfólk sem aldrei yrði að mönnum. Fátækt þess stafaði fyrst og fremst af ættleysi og með- fæddum aumingjaskap, andlegum sem líkamlegum. Útlit Olivers Twist er fullkomlega sannfærandi, ómennin, örlagavaldar Olivers, eru hver öðrum ótótlegri og spretta fullsköpuð af síðum bók- arinnar; Herra Bumble, Frú Sower- berry, Bill Sykes, Fagin. Eden er sýnu bestur leikaranna, Foreman (Layer Cake) gerir ómenninu Sykes fín skil en það má setja spurning- armerki við túlkun stórleikarans Kingsleys (einu stjörnunnar í mynd- inni), sem Fagin. Hann gerir sjálf- sagt það sem fyrir hann er lagt með miklum tilþrifum, e.t.v. of miklum. Persónan er fast grópuð í vitund lesenda bókarinnar, Fagin var fyrsti gyðingurinn sem mörg barns- sálin kynntist og hún málaði kyn- stofninn vægast sagt ófögrum litum sem sátu lengi í undirmeðvitund- inni. Gyðingurinn Polanski sleppir að geta þjóðflokksins og er það vel. Þrátt fyrir óaðfinnanlegt útlit og sannfærandi lýsingu á himinhróp- andi óréttlætinu sem ríkti í þjóð- félaginu í faglega gerðri mynd, er hún samt sem áður undarlega blóð- lítil. Hún hvetur þó vonandi ungt fólk til að lesa bókina, en slíkar at- hafnir eru reyndar lítið inni í dag. Oliver eftir Polanski er ekki það stórvirki sem maður vonaði en engu að síður á margan hátt áhugaverð og vönduð. Reyndar geldur hún samanburðarins í hugum þeirra sem séð hafa snilldar kvikmynda- gerð Davids Lean frá 1949. Óliver eftir Polanski „Þrátt fyrir óaðfinnanlegt útlit og sannfærandi lýsingu á himinhrópandi óréttlætinu sem ríkti í þjóðfélaginu í fag- lega gerðri mynd er hún samt sem áður undarlega blóðlítil,“ segir Sæbjörn m.a. í dómnum. KVIKMYNDIR Sambíóin og Háskólabíó Leikstjóri: Roman Polanski. Aðalleikarar: Barney Clark, Ben Kingsley, Harry Eden, Jamie Foreman, Edward Hardwicke. 130 mín. Bretland/Tékkland/Frakkland/ Ítalía 2005. Oliver Twist  Sæbjörn Valdimarsson STEFÁN Karl Stefánsson leikari sem margir þekkja í hlutverki Glanna glæps í Latabæ heimsótti, í seinustu viku, nemendur í fimmta bekk í barnaskóla Bunce- ton í Missouri í Bandaríkjunum. Þar sagði Stefán börnunum með- al annars frá reynslu sinni af ein- elti. Auk þess sem hann fræddi þau um hugsjónina að baki Regn- bogabörnum. Greint er frá þessu í The Boonville Daily News sl. föstudag.Hér er Stefán með nokkrum bandarískum börnum í Bunceton að loknum fyrirlestri. Fræðir bandarísk börn um einelti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.