Morgunblaðið - 23.01.2006, Side 36
36 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Frönsk Kvikmyndahátíð
pride & prejudice kl. 5:30 - 8:05 og 10:40
Oliver twist kl. 5:30 - 8 og 10:30
Rumor has It kl. 8:15 og 10:15
the chronicles of Narnia kl. 5:30
KING KONG kl. 9 b.i. 12 ára
harry potter og Eldbikarinn kl. 6 b.i. 10 ára
*****
V.J.V. / topp5.is
****
S.V. / Mbl.
E.P.Ó. / kvikmyndir.com
****
Frá Óskarsverðlaunaleikstjóra
„AMERICAN BEAUTY“
Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og
Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
eee
H.J. MBL
DÖJ, Kvikmyndir.com
„Sam Mendez hefur sannað
sig áður og skilar hér
stórgóðri mynd.“
„...mjög vönduð og
metnaðarfull mynd...“
e e e e
VJV, Topp5.is
Byggð á sönnum orðrómi...
frá framleiðendum „Bridget Jones diary“
Byggð á sígildri skáldsögu Jane Austin
sem hefur komið út í íslenskri þýðingu.
S.V. / MBL
***
babúska - Le poupées Russes b.i. 12 ára kl. 5.30
Síðan Otar Fór - depois qu´Otar est parti kl. 8
Villigöltur - Les Égarés kl. 10
FRÖNSK KVIKmYNdAhÁtíð
babúska Síðan Otar fór Villigöltur
Byggð á sönnum atburðum...
svona nokkurn vegin.
eeeM.M.J. kvikmyndir.com
STÓRSKRÝTIN mynd, það er ekki
ljóst hverjum Cause toujours!, er
ætluð. Jacinthe (Abril) og Judith
(Perron) eru miðaldra húsmæður
sem hafa lítið fyrir stafni annað en
að slást við skorkvikindi, sjúga ryk
úr teppum, hnýsast í einkamál Léu
(Testud) vinkonu þeirra, liggja í sím-
anum og þvarga við kallana sína.
Síðan fer allt á annan endann
þegar Léa laðast að Emmanuel
(Debuisne), leyndardómsfullum,
heyrnarlausum náunga, sem fyllir
upp í hillur í stórverslun. Léa vill
vita meira um manninn, eltir hann út
í sveit, við heyrum að keðjusög er
gangsett og síðan víkur myndinni
aftur til Parísar
Vinkonurnar fyllast óttablandinni
forvitni þegar ekkert spyrst til Léu
og leggja upp í rannsóknarleið-
angur. Þegar þær eru horfnar,
ókyrrast karlarnir og halda á eftir
þeim.
Svar fransmanna við Desperate
Housewifes, með keðjusagarívafi og
píanóleik? Öllu frekar mislukkaður
grautur. Abril og Testud eru yf-
irleitt ágætar leikkonur en hafa ekki
erindi sem erfiði. Cause toujours!,
nær illa til áhorfandans, persón-
urnar fjarlægar og óhemju lítið
áhugavekjandi og efnið víðs fjarri
því að virka yfir höfuð. Hinn dul-
arfulli Emmanuel (leikinn af
franskri vasabrotsútgáfu af Nick
Nolte), sem allt snýst um, er ósann-
færandi og fáránlegur kjarni mynd-
arinnar. Því fer sem fer.
Aðþrengdar eiginkonur
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Frönsk
kvikmyndahátíð
Leikstóri: Jeanne Labrune. Leikarar: Vict-
oria Abril, Jean-Pierre Darroussin, Sylvie
Testud, Richard Debuisne. 87 mín.
Frakkland 2004
Talað fyrir daufum eyrum (Cause tou-
jours!) „Öllu frekar mislukkaður grautur,“ segir í dómnum um þessa mynd.Sæbjörn Valdimarsson
Á LAUGARDAGINN voru haldnir
risatónleikar á Nasa. Tilgangur
tónleikanna var að safna fé fyrir
Maritafræðsluna en það er fræðsla
um skaðsemi fíkniefna og er sam-
starfsverkefni Samhjálpar, Lög-
reglunnar í Reykjavík og Reykja-
víkurborgar.
Fræðslan hefur verið starfrækt í
átta ár og er fyrir nemendur 8. til
10. bekkjar í grunnskóla og for-
eldra þeirra.
Til þess að halda starfinu lifandi
var ákveðið að halda fjáröfl-
unartónleika sem heppnuðust ein-
staklega vel og voru vel sóttir af
unglingum þessa lands sem öðrum.
Þeir listamenn sem komu fram og
lögðu þessu mikilvæga starfi lið
voru: Ego, Jakobínarína, Dóri dna
og Silvía Nótt. Kynnir á tónleik-
unum var hinn sífyndni Jón Gnarr
og kitlaði hann margar hlátur-
taugarnar.
Tónleikar | Ego og Jakobínarína hristu upp í gestum á Nasa
Tónleikar til styrktar fíkniefnafræðslu
Bubbi, með hljómsveit sinni Egó, og Silvía Nótt voru meðal þeirra sem
komu fram á tónleikunum.
Þessar fínu stöllur voru mættar á Nasa. Frá vinstri eru það Margrét Guðmundsdóttir, Thelma Ingólfsdóttir,
Þuríður Davíðsdóttir, Inga Ragna og Fjóla Dís.
Morgunblaðið/Sverrir
Jakobínarína skemmti fólki á tónleikum Maritafræðslunnar á Nasa.