Morgunblaðið - 23.01.2006, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 23.01.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 37 frá framleiðendum „Bridget Jones diary“ Byggð á sígildri skáldsögu Jane Austin sem hefur komið út í íslenskri þýðingu. 2tilnefningAr til golden gloBeBesta myndin.fyrir besta leik: Keira Knightley UpplifðU stórfenglegasta ævintýri allra tíma. kvikmyndir.is *** m.m.j / KVIKMYNDIR.COM **** S.V / MBL SAmbíó ÁLFAbAKKA SAmbíó KRINGLUNNI SAmbíó AKUREYRI SAmbíó KEFLAVíK RUmOR hAS It kl. 8 - 10 bORthERS GRImm b.i. 12 kl. 8 - 10:20 dOmINO kl. 8 - 10:15 b.i. 16 JARhEAd kl. 8 - 10:15 b.i. 16 pRIdE ANd pREJUdIcE kl. 5:20 - 8 - 10:40 pRIdE ANd pREJUdIcE Lúxus VIp kl. 8 - 10:40 OLIVER tWISt kl. 5 - 8 - 10:40 b.i. 12 ára. JARhEAd kl. 8 - 10:40 b.i. 16 ára. RUmOR hAS It kl. 3:50 - 6 - 8:10 dOmINO kl. 10:40 b.i. 16 ára. chRONIcLES OF NARNIA kl. 5 chRONIcLES OF NARNIA Lúxus VIp kl. 5 KING KONG kl. 6 - 9:30 b.i. 12 ára. Litli Kjúllin m/ísl. tali kl. 3:50 Byggð á sönnum orðrómi. OLIVER tWISt kl. 6 - 9 b.i. 12 ára. chRONIcLES OF NARNIA kl. 6 - 9 dOmINO kl. 6 b.i. 16 ára. KING KONG kl. 8:15 b.i. 12 ára. eeeM.M.J. kvikmyndir.com SÖGUSVIÐ kvikmyndarinnar Villigötur er Frakkland árið 1940. Þjóðverjar hafa gert innrás og París er við það að falla. Íbúarnir streyma suður á bóginn, á flótta undan stríði sem ekki verður flúið. Þetta verður ljóst í magnþrungnu atriði þar sem þýskar orustuflug- vélar gera árásir á varnarlausa flóttamennina. Meðal þeirra er Odile (Emmanuelle Béart) en hún flýr inn í skóginn ásamt tveimur börnum sínum, þrettán ára syni og sjö ára dóttur, og tæplega tví- tugum karlmanni, Yvan (Gaspard Ulliel), sem reynist vel þegar kemur að því að lifa af í óbyggð- um. Af honum stafar þó óljós ógn og Odile reynist ófær um að treysta honum fullkomlega, enda þótt hann reynist á stundum sann- kallaður bjargvættur. Fjölskyldan og Yvan finna yfirgefið óðalsbýli þar sem þau koma sér fyrir í all- nokkrum vellystingum og að því er virðist í órafjarlægð frá stríð- inu. Ránsferðir eru farnar um vín- kjallarann og Yvan er duglegur veiðimaður. Þarna dvelst fjöl- skyldan og Yvan dögum og vikum saman og myndin lýsir, á afar nostursamlegan hátt, flóknu sam- skiptamynstri sem þróast milli þessara ólíku einstaklinga. Hinn þrettán ára gamli sonur Odine tekur Yvan í hálfgerða guðatölu en það er Yvan sjálfur sem er helsta ráðgáta myndarinnar. Hérna er það auga André Téchiné fyrir smáatriðum sem skiptir mestu máli. Sagan er að mörgu leyti einföld en Yvan er langt í frá einföld persóna. Þegar hann fyrst brýst inn í húsið fylgjumst við með honum skera á símalínur áður en hann hleypir fjölskyldunni inn og hvílir þetta tiltekna atvik yfir frásögninni sem á eftir kemur. Stafar Odine og börnunum hætta af Yvan? Spurningunni er í raun ekki svarað fyrr en undir lokin. Þetta er afskaplega haganlega unnin kvikmynd, fallega tekin og afar vel leikin. Hér er um að ræða mynd sem gengur upp þar sem svo margir misstíga sig: hið sögu- lega er sett fram í gegnum hið persónulega á lifandi og sannfær- andi hátt. „Sögusvið kvikmyndarinnar Villigötur er Frakkland árið 1940. Þjóðverjar hafa gert innrás og París er við það að falla,“ segir um myndina Les égarés. Fjölskylda á flótta KVIKMYNDIR Háskólabíó – Frönsk kvik- myndahátíð Leikstjórn: André Téchiné. Aðalhlutverk: Emmanuelle Béart, Gaspard Ulliel, Grégoire Leprince-Ringuet, Clémence Meyer. Frakkland/Bretland, 95 mínútur. Villigötur / Les égarés  Heiða Jóhannsdóttir UM síðustu helgi opnuðu fimm íslenskir myndlistar- menn sýningu hér í Berlín. Allir eiga þeir það sammerkt að vera búsettir í Berlín, sumir í námi en aðrir sem starfandi listamenn. Listamennirnir eru þau Elín Hans- dóttir, Darri Lorenzen, Guðmundur Thoroddsen, Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Baldur Geir Braga- son. Sýningin fer fram á Fräulein Smillas, kaffihúsi/ galleríi á Pappelallee í Prenzlauer Berg-hverfinu. Kaffi- húsið er sambland af mörgu; er gallerí, kaffihús og verslun, en þar er að finna gamlar bækur, plötur og ýmsa muni sem eru allir til sölu. Uppákomur eru þar reglulega, 8 millimetra myndum er varpað á veggina, upplestrar eru haldnir o.s.frv. Verk Íslendingana eru af margvíslegum toga; skúlpt- úrar, málverk, hönnun og límbandsverk. Á opnun sýningarinnar var auk þess haldin einslags Íslandskynning. Boðið var upp á íslenskan mat (harð- fisk, flatkökur með hangikjöti og lakkrís t.d.) og ljóð eft- ir þrjú íslensk samtímaskáld voru lesin upp en hægt var að nálgast lauslegar þýðingar á ljóðunum á þar til gerð- um dreifimiðum. Þá hélt Andrés Ingi Jónsson, einn af umsjónarmönnum Félags Íslendinga í Berlín (FÍBer) stutta og grínaktuga tölu um „eðli“ Íslendinga. Íslenskri dægurtónlist var enn fremur hlaðið inn á spilastokk (ipod) og kenndi þar margvíslegra grasa en auk Múm, Sigur Rósar og Bjarkar er þar einnig að finna íslenskt rapp og minna þekkta, en frambærilega, jaðartónlist. Þessi tónlist ómar enn í kaffihúsinu fyrir gesti og gangandi. Þá var stuttmyndin augnablik sem Karsten Liske gerði í samstarfi við Ernu Ómarsdóttur sýnd. Opnunin var gríðarvel sótt, mikið var um Íslendinga sem búsettir eru í Berlín og einnig var talsvert af for- vitnum heimamönnum. Þess má þá geta að Elín Hansdóttir opnaði nokkru áður aðra sýningu í REC-galleríinu, sem er í Mitte- hverfinu. Myndlist | Íslensk menning af margvíslegum toga Fimm íslenskir mynd- listarmenn sýna í Berlín Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Guðmundur Thoroddsen og Darri Lorenzen eru tveir af þeim listamönnum sem sýna í Berlín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.