Morgunblaðið - 14.02.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RÓSTUR Á HAÍTÍ
Einn maður týndi lífi í átökum í
Port-Au-Prince, höfuðborg Haítí, í
gær sem brutust út eftir að stuðn-
ingsmenn forsetaframbjóðandans
Rene Preval tóku völdin í miðborg-
inni og helltu úr skálum reiði sinnar
vegna bráðabirgðakosningaúrslita
sem tilkynnt voru í gær. Stuðnings-
menn Prevals eru reiðir því að úr-
slitin sýndu að Preval hafði ekki náð
að tryggja sér forsetaembættið í
fyrstu umferð.
1% halli á LSH
Tekjuhalli á rekstri Landspítalans
var 1% á síðasta ári samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri. Rekstrargjöld
nema um 30 milljörðum króna. Heil-
brigðisráðherra segir árangur hafa
náðst í rekstri spítalans og að nið-
urstaðan sé ánægjuleg. Biðlistar eft-
ir flestum aðgerðum hafa styst og
t.d. bíða 16% færri nú eftir skurð-
aðgerðum en fyrir ári.
Sjötta ríkasta landið
Ísland er komið í sjötta sæti yfir
ríkustu lönd heimsins samkvæmt
nýjum lista OECD þar sem gengið
er út frá vergri þjóðarframleiðslu á
mann að teknu tilliti til kaupmáttar í
viðkomandi landi. Er Ísland með
23% hærri tekjur á mann árið 2005
með tilliti til kaupmáttar en með-
altalið í OECD-ríkjunum.
Frá síðustu mælingu hafa Íslend-
ingar farið fram úr Dönum og eru
komnir þétt upp að Svisslendingum.
Hætt komnir
Tveir 12 ára drengir voru hætt
komnir þegar gat kom á gúmmíbát
þeirra er þeir sigldu á ís á miðju
Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði á laug-
ardag, og þurfti móðir annars þeirra
að synda út í ískalt vatnið til bjargar.
Allt fór þó vel en vegfarandi kom
þeim til aðstoðar og hringdi á Neyð-
arlínuna.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 24
Fréttaskýring 8 Umræðan 24/26
Úr verinu 12 Bréf 25
Viðskipti 14 Minningar 27/29
Erlent 16/16 Myndasögur 32
Heima 17 Víkverji 32
Akureyri 18 Velvakandi 33
Austurland 18 Staður og stund 34
Suðurnes 19 Leikhús 36
Landið 19 Bíó/ 38/41
Menning 20 Ljósvakamiðlar 42
Daglegt líf 21 Veður 43
Forystugrein 22 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
: !
%
18. febrúar 2006
CHRISTIAN Gundtoft, stjórnandi danska þátt-
arins Forsvundne danskere, eða Týndir Danir, er
nú staddur hér á landi ásamt myndatökumann-
inum Peter Wath, en þeir
rannsaka hvarf Danans René
Michael Bodilsen, en síðast
spurðist til hans hér á landi ár-
ið 2004. Í samtali við Morgun-
blaðið sagði Christian að þátt-
urinn hefði á undanförnum
árum tekið að sér að leita uppi
Dani sem horfið hafa erlendis
þar sem danska lögreglan leit-
ar ekki út fyrir landsteinana.
Spurður um málið sem þeir
vinna að núna sagði Christian
að René þessi hefði yfirgefið konu sína og börn í
Vejle í Danmörku og tekið saman við fatafellu.
„Þau hófu búskap og stuttu síðar fluttu þau til Ís-
lands þar sem hún stundaði nektardans á Bóhem.
Þetta var í byrjun maí árið 2004 og er vitað að þau
hafi búið hjá plötusnúði skemmtistaðarins sem
kallaður var Sibbi. Stúlkan fór aftur til Danmerk-
ur en René dvaldi hér í viku til viðbótar en ekki er
vitað hvar hann dvaldi áður en hann flutti út frá
Sibba. Það sem við vitum hins vegar er það að
hann var í sambandi við tvo íslenska menn og er
líklegt að þeir hafi ætlað út í viðskipti af einhverju
tagi. Í byrjun júní kemur hann aftur til Danmerk-
ur en þá hafði samband hans við fatafelluna farið
út um þúfur. Á þeim tímapunkti er ljóst að hann
skuldaði bæði henni og öðrum Dönum peninga.
René fór aftur til Íslands til að heimta fé sem hann
hafði þénað í þessum meintu viðskiptum með
óþekktu mönnunum tveimur auk þess sem hann
ætlaði með þeim í einhvers konar ferð um landið.
Líklegt að René sé í London
René var hér í viku og gisti hann á gistiheim-
ilinu 101 við Laugaveg. Við ræddum við Jack, eig-
anda gistiheimilisins, og hann fann René í skrám
sínum þó svo að hann hafi ekki munað eftir honum
sjálfur. Jack kannaðist heldur ekki við neina pen-
inga því að René hafði sagt við fólk í Danmörku að
peningarnir væru geymdir í öryggishólfi á gisti-
heimilinu, en þar er ekkert slíkt hólf. Við vitum,
eftir að hafa fengið farþegalista frá lögreglunni í
Reykjavík, að hann flaug frá Keflavíkurflugvelli til
Stansted í Lundúnum 8 dögum eftir að hann kom
til landsins frá Danmörku. Hann gisti fyrstu þrjár
næturnar á gistiheimilinu en hvar var hann hina
fimm dagana?“ Christian benti á að ef einhver
hefði viljað skaða René hér á landi, jafnvel myrða
hann, hefði verið auðvelt að leiða rannsóknaraðila
á ranga slóð, m.a. með því að fá annan aðila til að
ferðast til Lundúna með vegabréf hans.
Ekki viðriðinn glæpastarfsemi
Spurður um bakgrunn René sagði Christian að
hann hefði verið atvinnulaus í nokkur ár. Ekki er
talið að hann hafi tengst glæpastarfsemi á beinan
hátt og hann var með hreina sakaskrá. Christian
benti þó á að René hefði á sínum tíma verið líf-
vörður fatafellunnar sem hann hafði verið í tygjum
við og er það alkunna að mikil tengsl eru á milli
glæpastarfsemi og nektardansstaða í Danmörku.
Að sögn Christian hefur hann rætt við nokkurn
fjölda manna hér á landi vegna rannsóknarinnar,
þeirra á meðal lögregluna, eiganda gistiheimilisins
og plötusnúðinn á Bóhem. Hann taldi það þó mik-
ilvægast að hafa uppi á óþekktu mönnunum tveim-
ur sem talið er að René hafi verið í viðskiptum við,
en líklegast væri að þeir hefðu einhverja vitneskju
um afdrif René. Því hefði hann ákveðið að snúa sér
til fjölmiðla og óska eftir aðstoð almennings.
René er 37 ára, 186 sentímetrar á hæð, ljós-
hærður með brotna framtönn og lítið ör á vinstri
nasavæng. Christian vildi biðja þá sem hefðu ein-
hverjar upplýsingar um René eða mennina tvo,
sem hann átti að hafa verið í viðskiptum við, að
hafa samband við sig í síma +45 2854 0679.
Leita horfins Dana hér á landi
René Michael
Bodilsen
Morgunblaðið/Ómar
Christian Gundtoft leitar að horfnum Dönum
fyrir dönsku sjónvarpsstöðina DR1.
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
TVEIR tæplega tvítugir piltar voru í
gærmorgun dæmdir í 3 og 12 mánaða
skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness. Piltarnir voru dæmdir
fyrir innbrot, þjófnaði, íkveikju og
fyrir að hafa haft fíkniefni í fórum sín-
um.
Lögreglustjórinn í Hafnarfirði
höfðaði málið í tveimur ákærum.
Fyrri kæran var á hendur öðrum pilt-
anna fyrir brot sem framin voru í lok
árs 2004 og að vori 2005. Voru það
innbrot í leikskóla þar sem gluggi
hafði verið spenntur upp, þaðan stolið
tölvu, flatskjá og peningaskáp sem
hafði að geyma trúnaðargögn um
börnin á leikskólanum. Þá var ákært
fyrir stórfelld eignaspjöll með
íkveikju í skólahúsnæði, en um var að
ræða timburhús sem ákærða tókst að
leggja eld að með mottum og blöðum
sem hann hafði safnað saman í horn-
sófa við gafl húsnæðisins. Olli elds-
voðinn stórtjóni og eyðilagði allt
innbú. Einnig var pilturinn ákærður
fyrir að hafa haft í vörslu sinni tæp 18
g af hassi og rúm 2 g af kókaíni. Síðari
ákæran var gegn báðum piltunum
fyrir brot framin í apríl 2005. Um var
að ræða nytjastuld á bifreið sem pilt-
arnir stálu í Garðabæ og skildu svo
eftir í Mosfellsbæ. Auk þess voru þeir
ákærðir fyrir þjófnaði á skjávörpum,
stafrænum myndavélum o.fl.
Skýlaus játning þeirra lá fyrir og
hlutu báðir skilorðsbundna dóma. Til-
lit var tekið til þess við dómsúrskurð
að með brotum sínum rauf annar
þeirra skilorðsdóm frá 2003. Öðrum
piltanna var gert að greiða skipuðum
verjanda sínum, Hilmari Ingimund-
arsyni hrl., 75 þúsund krónur í máls-
varnarlaun. Gunnar Aðalsteinsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Skilorðsbundin refs-
ing fyrir ýmis afbrot
FRAMKVÆMDIR við Laugardals-
völl eru í fullum gangi og í gærdag
var unnið hörðum höndum við að
hífa fyrstu þakeininguna af eldri
áhorfendastúkunni. Fyrir liggur
stækkun stúkunnar í báðar áttir –
um alls 2.500 sæti – en einnig verð-
ur fimm röðum bætt framan við og
þakið endurbyggt. Að sögn Jó-
hanns G. Kristinssonar, vallarstjóra
Laugardalsvallar, gekk verkið vel
og var önnur einingin tekin í kjöl-
far þeirrar fyrstu. Verklok eru
áætluð um næstu áramót en þrátt
fyrir það, og að eldri stúkan verði
lokuð, verður leikið á Laugardals-
velli næsta sumar og áhorfendum
fundin sæti í nýrri stúku vallarins.
Andlitslyfting á þjóðarleikvanginum
LIÐSMENN Björgunarfélags
Hornafjarðar sóttu slasaðan sjó-
mann um borð í nótaskip fyrir utan
Hornafjörð í gærmorgun á björg-
unarskipi félagsins, Ingibjörgu SF.
Að sögn lögreglunnar á Höfn í
Hornafirði hafði maðurinn slasast á
hendi um kl. 8 í gærmorgun, og var
skipi hans snúið í átt að landi til
móts við björgunarmennina. Vel
gekk að koma sjómanninum milli
báta, og var hann fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðausturlands þar
sem gert var að sárum hans.
Sóttu slasaðan
sjómann
GRUNUR leikur á því að kveikt
hafi verið í ruslageymslu við Vest-
urberg í Breiðholti í gærmorgun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað á vettvang á ellefta tím-
anum, en þá hafði lögreglumönnum
sem komu fyrstir á vettvang tekist
að slökkva eldinn að mestu. Ekki
varð mikið tjón af völdum eldsins,
og tók slökkvilið að sér að ljúka
slökkvistarfinu.
Grunur um
íkveikju