Morgunblaðið - 14.02.2006, Side 11

Morgunblaðið - 14.02.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR LJÓSLEIÐARAVÆÐING hefur gríðarleg efnahagsleg og samfélagsleg áhrif og er ljóst að munurinn á ljósleiðara- og koparsamfélag- inu er eins og munurinn á samfélaginu fyrir og eftir tilkomu járnbrauta og bíla. Með næst- um ótakmarkaðri bandvídd ljósleiðaranna opnast möguleikar í menntun, menningu, þjónustu, lífsstíl og afþreyingu sem virðast í dag fjarlægur draumur. Þetta segir Dolf Zantinge, sérfræðingur í samskiptatækni, sem flutti nýverið fyrirlestur um opin ljósleiðaranet í ráðstefnusal Orku- veitu Reykjavíkur. Zantinge er stjórnarfor- maður fyrirtækisins Unet, sem rekur ljósleið- aranetið í borginni Almere, einni fyrstu ljósleiðaravæddu borg Evrópu. Allar opinber- ar byggingar, fyrirtæki og heimili í borginni eru tengd fullkomnu ljósleiðaraneti og segir Zantinge tilkomu þess hafa gjörbylt lífi og samfélagi borgarinnar. Þannig hafi fjölmörg hátæknifyrirtæki og þjónustufyrirtæki hreiðrað um sig í borginni og öll þjónusta í Al- mere sé á öðru plani en áður þekktist. Eins og munurinn á ritvél og einkatölvu „Það má segja af þeim tölum sem við höfum séð, að hagvöxtur tvöfaldist við ljósleiðara- væðingu samfélags,“ segir Zantinge. „Nýjar tegundir samskipta taka við og ný fyrirtæki dragast að. Þá opnast margir möguleikar fyr- ir fólk, t.d. hvað varðar símasamskipti, að- gang að þjónustu og fjarvinnslu og hag- kvæmni eykst til muna. Við stöndum nú á þröskuldi tækniframfara sem geta breytt heimsmynd okkar algerlega. Háupplausnar sjónvarp beintengt við ljósleiðara getur leyft mönnum að skoða saman flóknar og nákvæm- ar röntgenmyndir í rauntíma. Fræðsla og kennsla, afþreying og fjarvinnsla verða á allt öðrum grundvelli en við þekkjum nú.“ Opin ljósleiðaranet voru eins og áður segir umfjöllunarefni fyrirlesturs Zantinge, en nú er unnið að því að koma slíkum kerfum upp á Seltjarnarnesi og Akranesi. Orkuveita Reykjavíkur fjármagnar þau verkefni og eru þau í raun prufukeyrsla á opnum ljósleið- arasamfélögum. „Möguleikarnir eru næstum ótakmarkaðir. Að bera saman koparkerfið og ljósleiðarann er eins og að bera saman ritvél- ina og PC-tölvuna. Jafnvel þegar PC-tölvan var að koma fyrst á markað, klunnaleg og með fáa möguleika, keyptu menn hana af því þeir sáu framtíðina í henni. Það hefur líka sýnt sig að í dag kemur einkatölvan og netið að öllum hliðum okkar lífs, það gerir ekki rit- vélin,“ segir Zantinge. „Það er líka að sýna sig að þau efnahagskerfi heimsins sem byggj- ast á ljósleiðurum vaxa mjög hratt, til dæmis í Japan og Kóreu þar sem allt er á ljósleið- urum. Það opnast hreinlega nýjar gáttir í samskiptum og viðskiptum.“ Þjóðhagslega hagkvæm fjárfesting Ljósleiðaravæðing Reykjavíkur ætti, að mati Zantinge, ekki að þurfa að kosta mjög mikið. „Að gefinni minni reynslu ætti það að kosta um 70 milljónir dollara (4,2 milljarða), sem er ekki há upphæð miðað við þær gríð- arlegu framfarir sem verða. Það gæti tekið þrjú til fimm ár að ljósleiðaravæða alla borg- ina. Við erum að tala um mikla þjóðhagslega hagkvæmni þegar þú eykur gagnaflutnings- getu kerfanna mörg þúsundfalt. Það er líka hægt að gera þetta skref fyrir skref,“ segir Zantinge og bætir við að mikilvægast sé að ljósleiðaravæða fyrst fyrirtæki, stofnanir, heilsugæslu og skóla til að byrja með. „Þegar þessir hlutar samfélagsins eru tengdir ljós- leiðara er skilvirknin strax orðin mun meiri og hitt getur komið hægar. Við getum tekið dæmi um það að ljósleiðaravæddur skóli eða fyrirtæki þarf ekki lengur PC-tölvur. Það nægir að vera bara með einfalda skjái og lyklaborð. Öll vinnsla getur farið fram í mið- lægri tölvu sem sér um alla vinnuna. Þannig gætirðu alls staðar verið með sýndarvinnu- stöðvar og alltaf verið að vinna á sömu tölv- unni, hvar sem þú ert í heiminum. Heimurinn er að verða stór leikvöllur og þau samfélög sem sitja eftir og neita að ljósleiðaravæðast munu lenda mjög aftarlega í samkeppninni þegar fyrirtæki fara að færa sig á betri sam- skiptastaði.“ Opin ljósleiðaranet hafa í för með sér gríðarlegar samfélagsbreytingar Hagvöxtur tvöfaldast með tilkomu ljósleiðara Morgunblaðið/Brynjar Gauti Dolf Zantinge, sérfræðingur í samskipta- tækni, ræðir um opin ljósleiðaranet. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is „MÉR líst mjög vel á þá framtíðarsýn sem Dolf Zantinge var að sýna okkur og er raunar orðin að veruleika í Almere,“ segir Jónmundur Guð- marsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, en þar í bæ stendur nú yfir átak um ljósleiðaravæðingu. „Það sem Dolf var að greina frá er þessi áhersla á opið net, þar sem dreifileiðirnar, sjálft vegakerfið, er á höndum annarra en þeirra sem veita þjónustuna. Þetta er nákvæmlega sama sýn og við á Seltjarnarnesi höfum haft á ljósleiðaravæð- ingu bæjarins og er sú hug- myndafræði sem við vinnum eftir. Ég tel að það sé grund- vallaratriði ef opinberir að- ilar eru á annað borð að koma að málum af þessu tagi, að það sé skýr aðgrein- ing á milli dreifikerfisins og efnisins og tryggt sé að not- endur hafi frelsi til að velja á milli ólíkra þjónustuveitenda. Þetta er eins og með vegakerfið. Það er okkar að stuðla að því að vegakerfið verði til, sjá um umferðina, nema hvað snertir okkar eigin þjónustu, t.d. aðgang borgara að þjónustu bæjarfélagsins. Skilyrðið um opið net var lykillinn að þátttöku okkar í verkefninu og gerð er krafa um eitt opið net sem annaði allri þjónustu.“ Gefur meiri möguleika Jónmundur segir landleysi hafa hrjáð bæj- arfélagið hingað til og þar hafi ekki þrifist stór fyrirtæki sem þurftu mikið landrými undir starfsemi sína. Með ljósleiðaranetinu opnist hins vegar möguleikar fyrir aðkomu smærri þekkingarfyrirtækja sem þurfa ekki mikið pláss undir starfsemi sína. „Okkur fannst það bæði klókt og eftirsóknarvert að vera í fararbroddi þeirra sveitarfélaga sem vilja ljósleiðaravæðast og byggja upp framtíðarkerfi sem mun anna ört vaxandi eftirspurn eftir bandvídd um ókomin ár,“ segir Jónmundur. Framkvæmdir við ljósleiðaravæðingu Sel- tjarnarnesbæjar hófust í fyrrasumar og er fjórðungur bæjarins nú tengdur. „Ætlunin er að ljúka verkinu síðla hausts í ár, en rafræn stjórnsýsla bæjarins verður opnuð nú fljótlega,“ segir Jónmundur. „Þá hafa allar stofnanir bæjarins verið tengdar ljósleiðara- kerfi.“ Jónmundur Guðmarsson Telur opin kerfi réttu lausnina STEFNT er að því að áhrif kemískra efna á heilsu fólks og umhverfi verði hverfandi árið 2020, samkvæmt að- gerðaáætlun sem samþykkt var á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um kemísk efni í Dubai á dögunum. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverf- isráðherra stýrði fundinum, sem fulltrúar um 130 ríkja heims sóttu, og lagði hún þar áherslu á hreinleika hafsins. Í ræðu umhverfisráðherra kom fram að aðgerðaráætlun SÞ væri mikilvægt skref til að vernda hrein- leika hafsins, en áætlaður kostnaður vegna heilsutjóns fólks á strandsvæð- um vegna mengunar sjávar séu tæpir 13 milljarðar dollarar á ári. Kemísk efni eru í dag talin valda umtalsverðum áhrifum á heilsu fólks, ekki síst í þróunarlöndunum. Mörg kemísk efni eru talin geta valdið krabbameini og haft áhrif á þroska barna. Kemísk efni geta borist langa leið með haf- og loftstraumum og eru mörg dæmi um það á norðlægum slóðum m.a. á íslenskum hafsvæðum. Íslensk stjórnvöld hafa því lengi lagt áherslu á mikilvægi þess að vinna gegn mengun kemískra efna, einkum vegna mögulegra áhrifa þeirra á líf- ríki hafsins. Nokkur átök urðu meðal ríkja um frágang aðgerðaáætlunar, einkum hvað varðar fjármögnun hennar og dróst fundurinn nokkuð af þeim sök- um. Áætlunin miðar að því að tryggja betri framleiðslutækni og meðhöndl- un kemískra efna og betra eftirlit með framleiðslu nýrra efna. Eins og áður segir er stefnt að því að áhrif kemískra efna á heilsu fólks og um- hverfi verði hverfandi árið 2020, en fram að þeim tíma er gert ráð fyrir að þjóðir heims komi saman á þriggja ára fresti og meti framkvæmd áætl- unarinnar. Umhverfisstofnun SÞ mun fylgjast með framkvæmdinni. Þá stjórnaði umhverfisráðherra ennfremur, ásamt umhverfisráð- herra Jórdaníu, fundi um orku- og umhverfismál á ársfundi Umhverfis- stofnunar SÞ í Dubai. Þar voru rædd- ar aðgerðir til að bæta orkunýtingu og auka hlut endurnýjanlegrar orku í heiminum. Samhliða því að stýra fundinum tók umhverfisráðherra þátt í um- ræðum og lagði sérstaka áherslu á nýtingu jarðhita, en hún skýrði m.a. frá aukinni áherslu Íslendinga á jarð- hitanýtingu í þróunarlöndum og minnti á starfsemi Jarðhitaskóla SÞ hér á landi. Þá benti hún á þá miklu möguleika sem eru á nýtingu jarðhita víðs vegar í heiminum, en þeir gætu séð hundruðum milljóna manna fyrir endurnýjanlegri orku. Þekking Íslendinga mikilvæg þróunarlöndum Sigríður Anna segir bæði aðgerða- áætlunina vegna kemískra efna og orkumálin málefni sem skipta Íslend- inga gríðarlegu máli. „Aðgerðaáætl- unin skiptir mjög miklu máli fyrir okkur Íslendinga, því við höfum í gegnum tíðina lagt gríðarlega áherslu á það að vernda hafið og allt kvikt sem í því er. Það eru okkar hagsmunir sem fiskveiðiþjóð. Meng- un virðir engin landamæri og það er mjög mikilvægt að það verði strang- ara regluverk um eftirlit og fram- leiðslu kemískra efna,“ segir Sigríður Anna. „Við erum hér á Íslandi með strangar reglur um þessi efni og við fylgjum Evrópusambandinu í því, en víða um heim eru reglurnar ekki eins strangar og eftirlitið ekki í nógu góðu lagi. Það þýðir það að mjög mikið er um slæmar afleiðingar af slíku í þró- unarlöndunum. Mörg þessara efna geta valdið krabbameini og haft áhrif á þroska barna. Það eru sífellt að koma meiri fréttir af því, m.a. í gegn- um niðurstöður rannsókna, hversu slæm áhrif kemísk efni hafa á lífverur og þar á meðal að sjálfsögðu á menn, því við lifum á því sem náttúran gefur af sér. “ Varðandi orkumálin segir Sigríður jafnmikilvægt að finna leiðir til betri orkunýtingar og að vinna að þróun endurnýjanlegra orkugjafa. Segir hún orkunýtingu hafa batnað gríðar- lega m.a. með tilkomu bættrar upp- lýsingatækni. Hins vegar sé líka afar mikilvægt fyrir þróunarlöndin að efl- ast í orkumálum og þá helst með nýt- ingu endurnýjanlegra og hreinna orkugjafa. „Þróunarlöndin þurfa að sækja fram á þessum sviðum en þau þurfa aðstoð við það,“ segir Sigríður Anna. „Þar er mjög mikilvæg aðstoð þróuðu ríkjanna við þróunarlöndin. Hjá okkur hafa Þróunarsamvinnu- stofnun og íslensk fyrirtæki verið mjög framarlega í að færa okkar þekkingu til þróunarlandanna.“ Vilja eyða áhrif- um kemískra efna á heilsu og umhverfi Umhverfisráðherra stýrði fundum Sameinuðu þjóðanna um umhverfismál í Dubai Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra stýrði fundi á vegum SÞ um aðgerðaáætlun vegna kemískra efna sem haldinn var í Dubai. Ráðherra sagði slíka áætlun mjög mikilvæga vegna verndunar hafsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.