Morgunblaðið - 14.02.2006, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
50% afsláttur
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
ÚTSALA
AKUREYRI
AUSTURLAND
NOKKRIR krakkar úr Giljaskóla á Akureyri afhentu
nýverið Hjálparstarfi kirkjunnar um 30 þúsund krónur
sem þau söfnuðu, og vilja að féð renni til hjálparstarfs í
Pakistan.
Söfnunin hófst í fyrrahaust þegar krakkarnir héldu
tombólu í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi, þar sem
söfnuðust 13 þúsund krónur. Börnin voru síðan svo
heppin að Kjötkrókur gaf hverju og einu þeirra eitt þús-
und krónur í skóinn aðfaranótt Þorláksmessu, og fór sá
góði sveinn þess þá á leit við krakkana að þau gengju
líka í hús í hverfinu og söfnuðu svolítið meiru. Það
gerðu þau, 10 þúsund bættust þannig í sarpinn og þegar
upp var staðið höfðu þau því safnað 30 þúsund krónum.
Fimm úr hópi krakkanna sjö eru á myndinni ásamt
sóknarprestum í Glerárkirkju. Frá vinstri: séra Arn-
aldur Bárðarson, Björn Ísak Benediktsson, Sara Koldís
Garðarsdóttir, Bjarki Guðmundsson, Hákon Birkir
Gunnarsson, Natan Dagur Benediktsson, Hilmir Gauti
Garðarsson og séra Gunnlaugur Garðarsson. Tvö
barnanna voru fjarverandi þegar myndin var tekin,
Sigfús Elvar Vatnsdal og Álfhildur Rögn Gunnars-
dóttir.
Kjötkrókur lagði fé í söfnunina
Nokkrir krakkar söfnuðu 30 þúsund krónum handa
fórnarlömbum hamfaranna í Pakistan
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Djúpivogur | Á laugardag héldu
viðbragðsaðilar á Djúpavogi upp á
112-daginn sem haldinn var hátíð-
legur um allt land.
Viðburðurinn, sem var haldinn í
blíðskaparveðri, vakti verðskuld-
aða athygli í bænum, þar sem
flestöll tæki og tól er skipta máli í
þessum efnum voru til sýnis fyrir
bæjarbúa. Dagurinn byrjaði á því
að bifreiðum viðbragðsaðila var
keyrt í halarófu um bæinn með til-
heyrandi ljósagangi og lúðraþyt.
Það má segja að það hafi komið
bæjarbúum skemmtilega á óvart
hvað mikið er til af góðum tækj-
um og búnaði í sveitarfélaginu,
enda t.d. ekki komið til þess áður
að bifreiðum þessara aðila hafi
verið stillt sérstaklega upp til sýn-
is á sama stað.
Þá sýndu slökkviliðsmenn m.a.
hvernig menn bera sig að því að
klippa bíla sem fólk er fast í.
Er vonandi að dagur sem þessi
verði gerður að föstum lið á
hverju ári til að viðhalda og vekja
áhuga almennings á því nauðsyn-
lega starfi sem þessir aðilar
vinna.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Klippt og skorið Kristján Ragnarsson einbeittur á svip með klippurnar.
112 með ljósa-
gangi og lúðraþyt
Neskaupstaður | Blús-, rokk- og
djassklúbburinn á Nesi, BRJÁN,
leggst í vikunni í víking til höf-
uðborgarinnar með rokkveisluna
Einnar nætur gaman. Er þetta 15.
rokkveisla BRJÁN og var sýnd
fimm sinnum fyrir fullu húsi í Eg-
ilsbúð í Neskaupstað seint í haust.
Rokkveislan verður flutt á Broad-
way 17. febrúar nk. og á Marías B.
Kristjánsson, annar framkvæmda-
stjóra sýningarinnar, von á fjöl-
mörgum Austfirðingum og öðrum
aðdáendum BRJÁN á sýninguna.
Klúbburinn hefur farið á Broadway
með sýningar frá árinu 1999 og á
milli 750 og 1.200 gestir komið í
hvert skipti.
Um 40 manns fara suður í þetta
skiptið, þar af 8 manna hljómsveit,
11 söngvarar, 2 dansarar og hljóð-
og ljósamenn. Að auki eru makar
með í för og segir Marías það n.k.
uppbót fyrir þá, sem sýnt hafi tak-
markalausa þolinmæði á meðan æf-
ingum og sýningum hafi staðið. Hóp-
urinn sé firnagóður og mikil
eftirvænting vegna suðurferðar-
innar.
Sívinsælir smellir á dagskrá
Einnar nætur gaman byggist á
lögum með flytjendum sem slegið
hafa í gegn með einu einasta lagi og
eru flutt bæði innlend og útlensk lög
sem eiga það sameiginlegt að hafa
verið miklir músíksmellir.
Í sýningunni taka þátt listamenn
víða að af Austurlandi, en auk Marí-
asar sér Guðmundur R. Gíslason um
framkvæmdastjórn. BRJÁN-
klúbburinn hefur puttana í ýmsu á
Austurlandi, þ.á m. sá hann um
Neistaflugshátíðina í fyrra, tónleika-
hald er nokkuð viðamikið og í bígerð
er Jazzhátíð Egilsstaða með fleiri
aðilum.
BRJÁN suður með
Einnar nætur gaman
Ljósmynd/ÞSÞ
Kampakátir gestir Stuðið í algleymingi í Egilsbúð í haust.
Ljósmynd/ÞSÞ
Í „Einnar nætur sveiflu“ Sigurjón Egilsson syngur í rokkveislu BRJÁN.
Nýtt KEA-merki | KEA hefur tek-
ið í notkun nýtt merki og fær um leið
nýja ásýnd. Í áratugi hefur merki
KEA, sem fagnar 120
ára afmæli hinn 19.
júní næstkomandi,
verið hinn þekkti
græni tígull, en tilvist
hans má rekja allt aft-
ur til ársins 1930 og hefur hann sett
mikinn svip á bæjarmynd Akureyrar.
Ekki er vitað hver hönnuður þess
merkis var, en nýtt merki fyrir KEA
var hannað hjá Ásprenti Stíl ehf.
Fleiri breytinga er að vænta hjá
KEA. Ákveðið hefur verið að flytja
skrifstofu félagsins úr Hafnarstæti
91, þar sem hún hefur verið staðsett
um áratuga skeið. KEA á ekki lengur
húsnæðið í Hafnarstræti, en hefur á
undanförnum misserum leigt þar að-
stöðu. Að sögn Halldórs Jóhanns-
sonar rúmar núverandi húsnæði ekki
starfsemi KEA, Upphafs og Hild-
ings, dótturfélaga þess, til framtíðar.
Íþróttahús | Fyrirhugað er að
byggja fjölnota íþróttahús í Hrísey.
Hönnun stendur nú yfir og er gert
ráð fyrir því að útboð fari fram í apríl.
Húsinu verður valinn staður í nálægð
við sundlaug og skóla. Gert er ráð
fyrir samnýtingu búningsaðstöðu fyr-
ir íþróttahúsið og sundlaugina. Hönn-
un hússins er í höndum Kollgátu hf.
Kynningarfundur var haldinn með
íbúum Hríseyjar í janúar. Undir-
tektir íbúa voru mjög jákvæðar og
komu fram ýmsar góðar ábendingar
sem hafðar eru til hliðsjónar eftir því
sem verkinu vindur fram að því er
fram kemur á vef Akureyrarbæjar.
Fjöldi ferða í beinu flugi | STUTT
ÚT, beint flug frá Akureyri er yf-
irskrift bæklings sem Ferðaskrif-
stofa Akureyrar dreifir inn á öll heim-
ili á svæðinu frá Ólafsfirði austur til
Húsavíkur, en þar kynnir hún fjölda
ferða til nokkurra áfangastaða í Evr-
ópu í beinu flugi frá Akureyri.
Beint flug frá Akureyri til Evrópu
hefur notið vinsælda, enda þykir fólki
á norðanverðu landinu gott að þurft
ekki að ferðast þvert yfir landið áður
en utanlandsferðin sjálf hefst.
Nú í vor og næsta haust mun
Ferðaskrifstofa Akureyrar bjóða upp
á ferðir í beinu flugi frá Akureyri,
áhersla verður lögð á helgarferðir til
nokkurra borga og stuttar sólar-
landaferðir. Áfangastaðirnir eru
Kaupmannahöfn, Barcelona, Dublin,
Hamborg, Varsjá, Mallorca og Krít.
Sem dæmi má nefna páskaferðir milli
Akureyrar og Kaupmannahafnar,
dagana 13., 17. og 24. apríl þar sem
möguleiki er á að hefja ferð hvort
heldur sem er á Akureyri eða í Kaup-
mannahöfn. Í maí verður boðið upp á
helgarferð til Hamborgar og vikuferð
til Krítar. Jafnframt er í boði göngu-
ferð um Krít. Í haust, september og
október verða svo í boði helgarferðir
til Barcelona, Dublin og Varsjár sem
og vikuferðir til Mallorca og Krítar.
Þá má nefna aðventuferð til Kaup-
mannahafnar í desember. Sala er
þegar hafin í þessar ferðir.
Sýna í Danmörku | Tvær akur-
eyrskar listakonur, Anna G. Torfa-
dóttir og Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
taka nú þátt í stórri grafíksýningu í
Danmörku. Þar sýna 120 félagsmenn
í Fyns Grafiske Værksted ný graf-
íkverk unnin í hina ýmsu miðla graf-
íklistarinnar. Fyns Grafiske Værks-
ted er grafíkfélag á Fjóni og eru nú
liðin 30 ár frá stofnun þess.
Meðlimir eru um 250 grafík-
listamenn frá 17 löndum. Félagi rek-
ur vel búið verkstæði og sýning-
arrými í miðbæ Óðinsvé á Fjóni.
Sýningin stóð fram í febrúar en var
að þá flutt til Kerteminde og opnuð í
Johannes Larsen Museet 17. febrúar.