Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 F 21
Breytingar á íbúðum
Innréttingar eru sérlega vandaðar en óski kaupandi eftir að hanna íbúðina að eigin smekk tökum við
vel í slíkar óskir. Þær þurfa þó að koma fram í tíma. Ítarleg kaupendahandbók fylgir öllum íbúðum ÍAV.
Söludeild okkar er að
Höfðabakka 9, sími
530 4200
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og
hafa jafnframt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Kaupendur
gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar
gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og
heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar gönguleiðir allt í
kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja frá stærðinni
86–100 fm.
Verð frá 23,2 millj.
ÞJÓNUSTUHÚS – HVERAGERÐI 3ja herbergja
Ásakór er fallegt þriggja hæða fjölbýlishús með lyftu og 6 íbúðum á hæð. Sérinngangur er í hverja íbúð og fylgir
eitt bílastæði í bílageymslu hverri íbúð. Svalagangar 2. og 3. hæðar eru með glerskermum. Íbúðum er skilað
fullbúnum án gólfefna en með flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Innréttingar eru mjög vandaðar
og hægt er að velja á milli þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum. Þvottaherbergi er í öllum íbúðum.
Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja frá stærðinni 96–120 fm.
Verð frá 22,5 millj.
ÁSAKÓR – KÓPAVOGI 3–4ja herbergja
BAKKAGERÐI – REYÐARFIRÐI
Parhús
Glæsilega hönnuð tæplega 160 fermetra parhús með
sérstæðum bílskúrum. Húsin eru klædd með bárumálm-
klæðningu og litaðri viðarklæðningu að hluta. Íbúðum er
skilað fullbúnum að utan, með grófjafnaðri lóð og rúmlega
fokheld að innan. Húsin eru á fallegum stað með góðu útsýni
yfir fjörðinn.
Verð frá 17,5 millj.
NORÐURTÚN – EGILSSTÖÐUM
3ja–4ra herbergja
Í Norðurtúni eru til sölu glæsilega hönnuð 128 fm rað- og par-
hús á einni hæð. Húsunum fylgir leik- og útivistarsvæði og því
eru þau tilvalin fyrir fjölskyldufólk. Bílskúrsréttur fylgir hverri
íbúð. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með litaðri
bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu.
Þakið er klætt með krossvið og bárumálmklæðningu. Íbúð-
unum er skilað frágengnum að utan og rúmlega fokheldum að
innan. Sameiginlegri lóð er skilað með malbikuðum bíla-
stæðum. Afhending er samkomulag.
Verð frá 16,4 millj.
SMÁRAFLÖT – AKRANESI
3ja herbergja
Fallegar 92–97 fm íbúðir í þriggja hæða stigahúsi. Sér inn-
gangur er í hverja íbúð. Íbúðum er skilað fullbúnum, parket
á gólfum, en flísar á anddyris-, geymslu-, baðherbergis- og
þvottahúsgólfum. Gólfhiti er í íbúðunum.
Verð frá 17,7 millj.