Morgunblaðið - 20.02.2006, Side 50
50 F MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavík - Húsalind fasteignasala
er með í sölu bjarta, opna og fallega
þriggja herbergja 105 fermetra út-
sýnisíbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjöl-
býli á eftirsóttum stað í Víkurhverf-
inu í Grafarvogi.
Eignin er við Ljósavík 24, í botn-
langa og langt frá miklum umferðar-
götum. Hún er vel staðsett með tilliti
til verslunar og þjónustu. Víkurskóli
er skóli hverfisins og Borgarholts-
skóli og leikskóli eru í göngufæri.
Falleg útivistarsvæði eru við bæjar-
dyrnar, m.a. Korpúlfsstaðagolf-
völlur, Egilshöll og göngu- og hjóla-
leiðir meðfram strandlengjunni.
Sérinngangur er af svölum og
þvottahús innan íbúðar. Úr rúm-
góðri forstofunni er annarsvegar
gengið í sér þvottahús/geymslu
íbúðarinnar og hins vegar inn í íbúð-
ina. Þvottahúsið er rúmgott með
góðu hilluplássi og glugga. Holið
tengir saman vistarverur íbúðar-
innar. Ljóst viðarparket er heillagt á
íbúðinni og gefur henni fallegan
heildarsvip og gott flæði. Tölvutengi
eru í svefnherbergjum og stofu,
adsl-lína í íbúðinni og digital Ísland í
húsinu.
Íbúðin skiptist í svefnherbergis-
álmu þar sem eru baðherbergi og
tvö svefnherbergi og hins vegar
liggja saman eldhús, borðstofa og
stofa. Eldhúsið er hálfopið við borð-
stofu með Axis innréttingu og mjög
góðu skápaplássi. Öll eldhústæki frá
Fagor. Stofan er rúmgóð með falleg-
um stórum gluggum með útsýni til
vesturs yfir Snæfellsjökul og norður
yfir Esjuna. Útgengt er úr stofunni
út á rúmgóðar svalir. Borðstofan er
opin við eldhús og stofu. Birtumiklir
gluggar.
Hjónaherbergið, sem er með
glugga í vestur, og barnaherbergið
eru rúmgóð með góðu skápaplássi.
Baðherbergið er líka rúmgott og
flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með
sturtuaðstöðu. Falleg innrétting við
vask, innbyggð halogenlýsing í
kappa. Gluggi á baðherbergi.
Sérgeymsla er á jarðhæð og hlut-
deild í sameiginlegri hjólageymslu.
Gluggar að utan í sameign voru mál-
aðir fyrir tveimur árum.
„Þetta er góð og skemmtileg eign
í Grafarvogi í göngufæri við Spöng-
ina og alla þá verslun og þjónustu
sem þar er,“ segir Guðbjörg Svein-
björnsdóttir hjá Húsalind fasteigna-
sölu.
Ásett verð er 24,9 millj. kr.
Húsalind fasteignasala er með í sölu þriggja herbergja 105 fermetra útsýnisíbúð á 2. hæð í þessu litla fjölbýli við Ljósavík
24 í Grafarvogi. Eignin er vel staðsett með tilliti til verslunar og þjónustu. Ásett verð er 24,9 millj. kr.
Ljósavík 24
Laufengi - raðhús.
Vorum að fá í sölu fallegt endaraðhús á
tveimur hæðum á þessum eftirsótta stað. 4
herbergi eru á efri hæðinni. Afgirtur garður.
Verð 29,9 millj.
Breiðvangur - 4ra - Hfj.
Falleg og vel skipulögð 4ra herb. íbúð á 1. hæð
á þessum eftirsótta stað. Sérþvottahús í íbúð.
Verð 18,9 millj.
Seljavegur - 3ja + aukaherb.
Til sölu mjög góð 3ja herb. íbúð á 1. hæð með
aukaherbergi í kjallara. Tvær stórar parketlagðar
stofur, úr annarri stofunni er útgengt í stóran
garð sem snýr í suður. Mikil lofthæð er í íbúð-
inni. Verð 23,5 millj.
Sólheimar - 3ja herb.
Falleg, björt og talsvert endurnýjuð, 3ja herb.
83,5 fm íbúð á jarðhæð með séraðkomu, sérinn-
gangi, hellulögðu og upphituðu sérbílastæði og
stórum garði á þessum vinsæla stað.
Verð 19,5 millj.
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Nýjustu eignirnar á www.hofdi.is
Þverbrekka - 2ja - Kóp.
Vorum að fá í sölu sérlega fallega 63 fm 2ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í litlu snyrtilegu fjölbýli á
þessum eftirsótta stað. Sérinngangur. Svalir.
Laus strax. Verð 14 millj.
Hjarðarhagi - 3ja
Björt og snyrtileg 91,4 fm íbúð á 4. hæð í góðu
fjölbýli ásamt 27,7 fm bílskúr í sérlengju. Íbúðin
skiptist í hol, tvær stofur, eldhús, baðherbergi
og svefnherbergi. Í kjallara er sérgeymsla og
reiðhjóla- og vagnageymsla. Verð 20,5 millj.
Engjasel - 3ja herb.
Vorum að fá í sölu gullfallega 90 fm 3ja herb.
íbúð á 3. hæð ásamt sérstæði í bílageymslu á
þessum barnvæna stað. Verð 16,5 millj.
Furugrund - 4-5 herb.- Kóp
Björt, vel skipulögð 4ra-5 herb. 108,1 fm enda-
íbúð á 3. hæð á þessum vinsæla stað. Þvotta-
herbergi og búr í íbúð. Parket og flísar á gólfum.
Aukaherbergi í kjallara sem hentar í útleigu.
Verð 20,7 millj.
Jörfabakki - 3ja herb.
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilega og mikið
endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð á þess-
um eftirsótta stað. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Verð 16,9 millj.
Kelduland 3ja-4ra herb.
Gullfalleg 3ja-4ra herb. 85,9 fm endaíbúð á 2.
hæð (efstu) á gróðursælum stað í Fossvoginum.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð. Parket og
flísar á gólfum. Verð 20,9 millj.
Ástún - 3ja - Kóp.
Vorum að fá í sölu vel skipulagða 3ja herb. íbúð
á eftirsóttum stað í Kópavogi. Frábært útsýni.
Stórar svalir í vestur. Parket á gólfum. Góð að-
koma. Snyrtileg sameign. Verð 17,9 millj.
Laufásvegur - 3ja herb.
Til sölu falleg 3ja herb., 82,6 fm íbúð með sér-
inngangi og garði á þessum eftirsótta stað.
Verð 21,5 millj.
12 - 20 milljónir 20 - 30 milljónir
Til sölu er hús og eignarlóð að Bræðraborgarstíg 31. Um er að ræða 536 fm hornlóð
við Hávallagötu. Á lóðinni er 104 fm hús á tveimur hæðum ásamt geymslulofti. Ýmsir
möguleikar eru með lóðina, t.d. bygging stærri eignar. Tilboðum óskast skilað til Jóns
Ólafssonar hrl., Tjarnargötu 4, fyrir 8. mars 2006. Teikningar af lóðinni ligga fyrir en
ekki deiliskipulag. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Nánari upplýsingar gefa Eiríkur í síma 896-4865 og Guðlaugur í síma 692-4646.
Tilboð óskast