Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 B 3
Ríkislögreglustjórinn
Sumarafleysingar
í lögreglu árið 2006
Auglýst er eftir nokkrum lögreglumönnum
vegna sumarafleysinga. Þeir verða ráðnir hjá
flestum embættum á landinu, þó ekki í Reykja-
vík, Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem nemar
Lögregluskóla ríkisins munu verða þar í
starfsþjálfun. Nánari upplýsingar um þörf á
afleysingamönnum hjá einstaka embættum
fást hjá viðkomandi embættum.
Auglýst er eftir lögreglumönnum sem hafa
útskrifast frá Lögregluskóla ríkisins, en náist
ekki að manna allar stöður menntuðum lög-
reglumönnum er heimilt að ráða ófaglærða
menn til afleysinga og skulu þeir fullnægja skil-
yrðum 2. mgr. 38. gr. lögreglulaga nr. 90/1996
og þurfa að standast inntökupróf, hafi þeir ekki
ekki starfað við afleysingar innan árs frá því
að þeir hefja störf að nýju. Áður en afleysinga-
menn, sem ekki hafa lokið prófi frá Lögreglusk-
óla ríkisins, hefja störf, þurfa þeir að sitja undir-
búningsnámskeið, hafi þeir ekki starfað áður
í lögreglu. Inntökupróf fyrir þá sem uppfylla
almenn skilyrði verða haldin hjá Lögregluskóla
ríkisins, en nánari tímasetning ákveðin síðar.
Prófin gilda ekki sem inntökupróf í Lögreglu-
skóla, skv. ákvörðun skólanefndar frá 28.10.
2003.
Námskeið fyrir sumarafleysingamenn og
héraðslögreglumenn verða haldin síðari hlut-
ann í maí, nánari tímasetning og staðsetning
verður ákveðin síðar.
Umsóknum skal skilað til viðkomandi
embættis fyrir 3. apríl 2006 á sérstökum
eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglu-
stjórum, annars vegar fyrir þá sem lokið
hafa prófi frá Lögregluskólanum og hins
vegar fyrir þá sem ekki hafa próf frá Lög-
regluskólanum. Einnig er hægt að nálgast
eyðublöðin á lögregluvefnum,
www.logreglan.is, undir liðnum
„Eyðublöð“. Nánari upplýsingar um inn-
tökupróf er hægt að nálgast á lögreglu-
vefnum undir Lögregluskóli ríkisins/Inn-
taka nýnema.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að
sækja um.
Reykjavík, 10. mars 2006,
Ríkislögreglustjórinn.
Forstöðumaður
Amtbókasafnsins í Stykkishólmi
Starf forstöðumanns Amtbókasafnsins í Stykk-
ishólmi er laust til umsóknar. Amtbókasafnið
í Stykkishólmi býr við þá sérstöðu að eiga sér
lengri fortíð en mörg önnur almenningsbóka-
söfn landsins, í safninu eru m.a. varðveitt
prentskil frá árunum 1886 til 1976. Safnið er
rekið af bæjarfélaginu skv. lögum um almenn-
ingsbókasöfn frá árinu 1997. Ljósmyndasafn
Stykkishólms er rekið innan safnsins og þar
eru einnig ýmis listaverk sem safnið hefur
fengið að gjöf. Fyrirhugað er að safnið flytjist
í annað húsnæði á árinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi í bóka-
safns- og upplýsingafræði eða jafngildu námi
skv. 8. gr. laga um almenningsbókasöfn. Um-
sækjandi þarf að hafa frumkvæði, getað unnið
sjálfstætt, vera þjónustulipur og eiga auðvelt
með samskipti.
Viðkomandi þarf að getað hafið störf eigi síðar
en 1. júní nk.
Umsóknir þurfa að berast bæjarskrifstofum
Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkis-
hólmi, í síðasta lagi þann 7. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir
bæjarstóri um netfangið erla@stykkisholmur.is
eða í síma 433 8100.