Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 B 9
Verkefnastjórar
Óskum eftir verkefnastjórum í framtíðarstörf
Verkefnastjóri stýrir verklegum framkvæmdum og ber ábyrgð á að gæða-,
kostnaðar- og tímaáætlanir standist.
Hæfniskröfur:
· Menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði
· Skipulögð vinnubrögð
· Frumkvæði
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Góð tölvukunnátta
· Þekking og reynsla af hönnun bygginga, stjórnun, framkvæmdaeftirliti
eða ráðgjöf
Umsóknir óskast sendar á skrifstofu ÍAV, Höfðabakka 9, eða í tölvupósti
til Árna Inga Stefánssonar starfsmannastjóra á netfangið arni@iav.is merktar
„verkefnastjóri“. Einnig er hægt að senda umsóknir til Hagvangs og óskast þá
umsóknir fylltar út á www.hagvangur.is. Númer starfs er 5359. Umsóknarfrestur
er til 8. apríl nk.
Góð laun í boði fyrir rétta aðila.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þær endursendar að
lokinni ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað.
Upplýsingar veita Karl Þráinsson aðstoðarforstjóri, karl.th@iav.is, og Árni Ingi
Stefánsson starfsmannastjóri, arni@iav.is, í síma 530 4200 eða Ari Eyberg hjá
Hagvangi, ari@hagvangur.is, sími 520 4700.
Við leggjum mikla áherslu á
að ráða til okkar kraftmikla
og framsækna einstaklinga.
Við bjóðum góða starfs-
aðstöðu og erum stolt af
starfsandanum og þeim
metnaði sem hjá okkur ríkir.
iav.is
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og við búum yfir
áratugareynslu í mannvirkjagerð. Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum byggingar-
iðnaðar, hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði,
opinberar byggingar eða aðra mannvirkjagerð sem og jarðvinnuframkvæmdir.
Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 500 manns, þar af 35 verkfræðingar
og tæknifræðingar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
Skrifstofubygging við GlæsibæGrand Hótel við Sigtún
Fjölbýlishús við Sóltún
Þjónustuhús við HNLFÍ
Skrifstofubygging við Borgartún 26
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Reykjavíkurhöfn
Háskólatorg