Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 B 17
Vélstjóri óskast
2. vélstjóri óskast á frystitogarann
Hrafn GK 111. Réttindi 1500 KW.
Upplýsingar í síma 892 2502.
Það vantar
enn fleira gott fólk
í Skagafjörð
Sveitarfélagið Skagafjörður
er spennandi valkostur
Nálægð við náttúru, góðir skólar á öllum skólastigum, ein
ódýrasta hitaveita á landinu, fjölbreytt þjónusta, öflugt
íþróttalíf, mikil veðursæld og kröftugt menningarlíf er
meðal þess sem gerir Skagafjörð að fýsilegum búsetu-
kosti, ekki síst fyrir fjölskyldufólk.
Íbúar í Sveitarfélaginu Skagafirði eru um 4200, þar af
um 2600 á Sauðárkróki. Sauðárkrókur er einn öflugasti
byggðakjarni landsbyggðarinnar þar sem saman fer
öflug útgerð, úrvinnsla afurða af stóru landbúnaðarsvæði
og þjónusta sem jafnast á við það besta sem býðst á
landsbyggðinni.
Það er alltaf pláss
fyrir fleira gott fólk í Skagafirði!
RÁÐHÚS SKAGFIRÐINGABRAUT 21 550 SAUÐÁRKRÓKUR 455 6000www.skagafjordur.is
ÁRSKÓLI SAUÐÁRKRÓKI
Við Árskóla eru eftirtaldar stöður lausar
skólaárið 2006-2007:
• umsjónarkennsla á yngsta stigi
• enskukennsla
• tónmenntakennsla,
• handmennta- og sérkennsla
• skólaritari
• námsráðgjafastarf er laust nú þegar
og út næsta skólaár
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur
í síma: 455 1100 / 822 1141
Heimasíða skólans: www.arskoli.is
Í Árskóla eru 440 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er einsetinn
og að hluta til endurbyggður, en starfar í tveimur skólahúsum. Í
skólanum er ágætlega búin sérdeild og einnig er aðstaða í tölvu-
og upplýsingatækni með því besta sem gerist í grunnskólum. Við
skólann er skólavistun fyrir nemendur í 1.-3. bekk. Síðastliðin ár
hafa starfsmenn skólans unnið að sjálfsmati eftir skosku kerfi
sem aðlagað hefur verið að íslenskum aðstæðum og nefnist
„Gæðagreinar“. Skólinn vinnur einnig eftir Olweusaráætluninni.
Sauðárkrókur býður upp á góða þjónustu, öflugt íþróttastarf,
leikskóla og fjölbrautaskóla.
DAGVIST ALDRAÐRA
Starfsmann til sumarafleysinga vantar í
Dagvist aldraðra
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
Elísabet Pálmadóttir.
Símar: 453 5909 / 893 5398
Netfang: dagvist@skagafjordur.is
„Dagvist aldraðra er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri
þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima”
VINNUSKÓLI SKAGAFJARÐAR
Auglýst eru laus til umsóknar störf flokksstjóra
og starf forstöðumanns Vinnuskóla Skaga-
fjarðar sumarið 2006.
Laun samkv. kjarasamningi Starfsmannafélags
Skagafjarðar. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu
www.skagafjordur.is og skal skila í Ráðhúsið á
Sauðárkóki fyrir 18.apríl n.k.
Forstöðumaður Vinnuskólans tekur til starfa 15. maí og
vinnur til 31. ágúst.
Flokkstjórar taka til starfa 1. júní og vinna ýmist til 15.
ágúst eða 31. ágúst.
Um er að ræða störf á Sauðárkróki, Hofsósi og í Varmahlíð.
Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri og er æskilegt að
viðkomandi hafi unnið með börnum og/eða unglingum. Þek-
king á staðháttum í sveitarfélaginu er einnig nauðsynleg.
VARMAHLÍÐARSKÓLI
Laus er kennarastaða við Varmahlíðarskóla,
meðal kennslugreina er heimilisfræði.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur
í síma: 453 8225
Heimasíða skólans: www.varmahlidarskoli.is
Í Varmahlíðarskóla eru 125 nemendur í 1. - 10. bekk.
Í skólanum er öflugt félagslíf, góður starfsandi og góð
vinnuaðstaða.
LEIKSKÓLINN FURUKOT
LEIKSKÓLINN GLAÐHEIMAR
Stöður leikskólakennara
og starf í eldhúsi laus til umsóknar.
Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar í síma: 455 6110
(Furukot) og 455 6120 (Glaðheimar)
Heimasíður leikskólanna: www.skagafjordur.is
Sveitarfélagið Skagafjörður rekur fjóra leikskóla og þar dvelja
um 220 börn á aldrinum 1-6 ára. Allir leikskólarnir byggja starf
sitt á lögum um leikskóla, reglugerð og Aðalnámskrá leikskóla
sem tók gildi frá og með júlí 1999. Hver skóli fer þó sína leið
að settum markmiðum.
Nánari upplýsingar um Sveitarfélagið Skagafjörð og þjónustu
þess má finna á heimasíðu sveitarfélagsins
www.skagafjordur.is
N
ÝP
RE
N
T
eh
f
www.rumfatalagerinn.is
SÖLUMAÐUR!
Rúmfatalagerinn óskar eftir sölumönnum,
í boði er fullt starf.
Góð laun í boði fyrir duglega einstaklinga.
Mikil vinna í boði á líflegum og skemmtilegum vinnustað.
Ör vöxtur fyrirtækisins gefur mikla möguleika á að vaxa í starfi.
Hæfniskröfur:
• Hressleiki
• Opin fyrir nýjungum
• Tilbúin að læra
• Metnaður og áhugi
Umsóknir sendist á rumfatalagerinn@rumfatalagerinn.is eða Smáratorg 1 201
Kópavogur merkt „Sölumaður“. Allar nánari upplýsingar veita verlsunarstjórar í
verslunum Rúmfatalagersins milli 14:00 - 16:00.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Holtagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavík
588 7499
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Glerártorg
600 Akureyri
463 3333
Póstkrafa
Glerártorg
463 3333
Smáratorgi 1
200 Kópavogi
510 7000
Póstkrafa
Smáratorgi 1
510 7020
Tjónaskoðunarmaður
óskast
Óskum að ráða mann til að tjónaskoða bifreið-
ar. Leitum að metnaðarfullum og vandvirkum
einstaklingi, mikillar nákvæmi krafist. Frábær
vinnuaðstaða. Upplýsingar í síma 567 8686.
Bílastjarnan,
Bæjarflöt 10,
112 Reykjavík.
1. vélstjóra
vantar á togara sem stundar bolfiskveiðar.
Vélarstærð 1309 kW. Þarf að geta leyst af sem
yfirvélstjóri.
Upplýsingar í síma 450 4620 á skrifstofutímum.