Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 20
20 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Efnalaugin Björg, Háaleitisbraut
óskar eftir að ráða starfsmann í
móttöku og
afgreiðslu
Um fullt framtíðarstarf er að ræða. Góð laun
eru í boði. Nánari upplýsingar á staðnum.
Efnalaugin Björg er rúmlega 50 ára gamalt fyrirtæki sem
kappkostar að vera fremst á sínu sviði. Áratuga reynsla
starfsmanna skapar þá þekkingu og þjónustu sem
Efnalaugin Björg veitir viðskiptavinum sínum.
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa við al-
mennar raf- og tölvulagnir.
Upplýsingar í símum 517 6900 og 660 6901 á
skrifstofutíma milli kl. 9-17.
Umsóknir sendist á netfangið
fagtaekni@fagtaekni.is
Starf lífeindafræðings
eða líffræðings
Tilraunastöð HÍ í meinafræði,
Keldum, Reykjavík
Laust er til umsóknar fullt starf lífeindafræð-
ings B.S. eða líffræðings B.S. við Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Ein-
staklingur með sambærilega menntun kemur
til greina í starfið. Umsækjandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Í starfinu felst m.a. vinna við frumuræktanir,
veirurannsóknir og gæðaeftirlit.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneyt-
isins og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Bergljót Magnadóttir
í síma 585 5100 eða á netf.: bergmagn@hi.is.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist til Framkvæmdastjóra Tilrauna-
stöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keld-
um v. Vesturlandsveg, 112 Reykjavík, eða með
tölvupósti til helgihe@rhi.hi.is fyrir 9. apríl nk.
RANGÁRÞING YTRA
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Helstu verkefni:
Hefur yfirumsjón og annast áætlanagerð og framkvæmdir á
nýjum fasteignum sem og viðhaldi og endurbótum á eldri fast-
eignum sveitarfélagsins. Hefur yfirumsjón með mannahaldi,
daglegum rekstri og áætlanagerð þjónustumiðstöðvar. Sinnir
jafnframt þeim tilfallandi verkefnum sem upp koma hverju
sinni og sviðsstjóri umhverfissviðs felur honum. Leysir garð-
yrkjustjóra/forstöðumann vinnuskóla af í fríum.
Menntunarkröfur:
Sveinspróf í trésmíði, vélsmíði, pípulögnum eða rafvirkjun
æskilegt. Próf í byggingariðnfræði eða tæknifræði æskilegt.
Reynsla af mannahaldi, rekstri og verkstjórn nauðsynleg
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfissviðs.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélags.
Veitustjóri/Vélamaður/Tækjamaður
Helstu verkefni:
Hefur umsjón með eftirliti og viðhaldi á fráveitulögnum á veg-
um sveitarfélagsins í þéttbýli sem dreifbýli. Hefur umsjón með
viðhaldi og vinnur á vélum og tækjum sveitarfélagsins. Hefur
umsjón með minniháttar snjómokstri.
Hefur umsjón með viðhaldi á vélum og tækjum og stýrir véla-
vinnu fyrir garðyrkjustjóra/forstöðumann vinnuskóla.
Sinnir jafnframt þeim tilfallandi verkefnum sem upp koma
hverju sinni og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar felur honum.
Menntunarkröfur:
Vinnuvélaréttindi nauðsynleg. Þekking og reynsla af lagningu
dreifikerfa fráveitna og vatnslagna æskileg. Sveinspróf í tré-
smíði, vélsmíði, pípulögnum eða rafvirkjun æskilegt.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN ytra og viðkomandi stéttarfélags.
Iðnaðarmaður/Mælingamaður/Tæknimaður
Helstu verkefni:
Hefur umsjón með og annast viðhald og viðgerðir á fasteignum
sveitarfélagsins. Hefur umsjón með og annast GPS-landmæl-
ingar fyrir Umhverfissvið sveitarfélagsins sem og úrvinnslu við-
komandi gagna og skráningu.
Sinnir jafnframt þeim tilfallandi verkefnum sem upp koma
hverju sinni og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar felur hon-
um.
Menntunarkröfur:
Sveinspróf í trésmíði, vélsmíði, pípulögnum eða rafvirkjun
nauðsynlegt. Próf í byggingariðnfræði eða tæknifræði æskilegt.
Þekking og reynsla í meðhöndlun og vinnu með landmælinga-
tæki æskileg. Vinnuvélaréttindi æskileg.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélags.
Verkstjóri gámasvæða
Helstu verkefni:
Verkstjóri gámasvæða hefur umsjón með og annast vöktun,
viðhald og umhirðu á gámastöðvunum þremur í; Meiri-Tungu,
Þykkvabæ og á Hellu.
Verkstjóri gámasvæða hefur einnig yfirumsjón með öðrum
minni gámastöðvum í sveitarfélaginu, s.s. með Landvegi og
Þingskálavegi.
Verkstjóri gámasvæða skipuleggur opnunartíma gámastöðv-
anna í samráði við forstöðumann þjónustumiðstöðvar og sviðs-
stjóra umhverfissviðs.
Verkstjóri gámasvæða sinnir jafnframt þeim tilfallandi verkefn-
um sem upp koma hverju sinni og forstöðumaður þjónustu-
miðstöðvar felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Framhaldsskólapróf æskilegt. Vinnuvélaréttindi æskileg. Snyrti-
mennska og reglusemi nauðsynleg.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélags.
Garðyrkjustjóri/Forstöðumaður vinnuskóla
Helstu verkefni:
Hefur faglega og rekstrarlega ábyrgð með almenningsgörðum
og opnum svæðum sveitarfélagsins.
Annast áætlanagerð á sviði garðyrkju og hefur umsjón og eftirlit
með þessum svæðum, þar með talið öryggi leiktækja o.þ.h.
Hefur umsjón með og annast; gerð nýrra göngustíga og viðhald
á eldri stígum, snyrtingu og flutning á trjám og gróðursetningu
nýrra, viðhald og þrif á götum og göngustígum, jólaskreytingar,
vinnuskóla sveitarfélagsins.
Sinnir jafnframt þeim tilfallandi verkefnum sem upp koma
hverju sinni og sviðsstjóri umhverfissviðs felur honum.
Leysir forstöðumann þjónustumiðstöðvar af í fríum.
Menntunarkröfur:
Sveinspróf í garðykju nauðsynlegt/æskilegt. Reynsla af manna-
haldi, verkstjórn og eftirliti með verktökum æskileg.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfissviðs.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal skila inn til skrifstofu Rangárþings ytra,
Laufskálum 2, 850 Hellu, fyrir kl. 12.00 mánudaginn 10. apríl 2006.
Símanúmer skrifstofunnar er 487 5834 og fax 487 5434.
Umsóknareyðublöð fyrir framangreind störf má finna á heimasíðu
Rangárþings ytra www.rangarthingytra.is undir flokknum eyðublöð.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Júlíusson sviðsstjóri umhverfis-
sviðs Rangárþings ytra í síma 487 5599 milli kl. 10.00 og 12.00 alla
virka daga
Vakin er athygli á þeirri stefnu hjá Rangárþingi ytra að jafna hlut kynja
í störfum.
Áhugaverð framtíðarstörf í boði
hjá Umhverfissviði Rangárþings ytra
Sölu- og dreifingarsvið MS Reykjavík
Sumarafleysingar
í vörudreifingu
MS Reykjavík óskar eftir að ráða bílstjóra
vegna sumarafleysinga til vörudreifingar hjá
fyrirtækinu.
Ef þú hefur áhuga á að vinna hjá MS í sumar
en ert ekki með meirapróf þá mun fyrirtækið
aðstoða þig fjárhagslega við að afla slíkra rétt-
inda.
Nánari upplýsingar gefur dreifingarstjóri í síma
569 2320 milli kl. 13:00 og 15:00 virka daga.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl nk.
Umsóknir skal senda á netfangið
starfsmannasvid@ms.is en einnig má nálgast
sérstök umsóknareyðublöð í anddyri MS á
Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík.
MS er framleiðslu-, þjónustu- og markaðsfyrirtæki á sviði mjólkur-
framleiðslu Félagið rekur 6 mjólkurbú og öfluga dreifingarmiðstöð
í Reykjavík. Hjá félaginu starfa 380 starfsmenn. Frekari upplýsingar
um fyrirtækið er að finna á heimasíðu félagsins www.ms.is.
Trésmiðir og
kranamenn óskast
Vegna nýrra verkefna óskum við eftir að ráða
trésmiði eða starfsmenn sem vanir eru tré-
smíðum til fjölbreyttra verkefna.
Óskað er eftir starfsmönnum til úti- og inni-
vinnu. Ennfremur mönnum vönum mótaupp-
slætti og mönnum á trésmíðaverkstæði okkar
við innréttingasmíðar fyrir fyrirtæki og heimili.
Einnig óskum við eftir vönum kranamönnum
með full réttindi.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu fyrirtækis-
ins í síma 553 3322 og hægt er að senda inn
fyrirspurnir á tsh@hbh.is.
Fyrirtækið H.B.Harðarson ehf. er alhliða verktaki sem tekur að sér
nýbyggingar, verkefni fyrir fyrirtæki, skip og heimili. Stofnár er árið
1986 og starfa um 50 starfsmenn við fyrirtækið við fjölbreytt verkefni
á vel búnu trésmíðaverkstæði og við almennar trésmíðar úti og
inni. Með fyrirtækinu starfar einnig vaskur hópur undirverktaka
þannig að fyrirtækið er vel í stakk búið til að taka að sér heildarverk.
H.B.Harðarson ehf.,
Skógarhlíð 10, 105 Reykjavík,
sími 553 3322, fax 551 2003.