Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 22

Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 22
22 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ VERKSTJÓRI Vegna aukinna byggingaverkefna viljum við bæta verkstjóra í hóp stjórnenda okkar. Meistararéttindi í trésmíði æskileg en ekki skilyrði. Áhugasamir hafi samband við Friðrik Hansen Guðmundsson, s: 534 6000 Stafnás ehf. er bygginga– og verkfræðifyrir- tæki. Við leggjum metnað okkar í fagleg vinnubrögð, gott starfsumhverfi og góðan aðbúnað á vinnustöðum. StafnÁs Bygginga- & verkfræðifyrirtæki Blaðamaður á Skessuhorn Vegna aukinna verkefna óskar Vesturlands- blaðið Skessuhorn eftir að ráða blaðamann í fullt starf. Í boði er krefjandi en skemmtilegt starf fyrir réttan aðila. Skilyrði er að viðkom- andi hafi gott vald á íslensku og rituðu máli, sé snöggur að vinna, hafi reynslu af hliðstæð- um störfum og haldgóða menntun. Blaðamenn með reynslu og jákvæð meðmæli ganga fyrir um starfið. Viðkomandi þarf að hafa gott frétta- mat og mikinn áhuga á mannlífi líðandi stund- ar, jafnt atvinnulífi sem mýkri málefnum. Skil- yrði er að viðkomandi sé eða verði búsettur á Vesturlandi. Ráðið verður í starfið sem fyrst. Umsóknir, ásamt ferilskrá, sendist: Skessuhorni ehf., Kirkjubraut 54-56, 300 Akran- esi, eða á tölvupósti: skessuhorn@skessuhorn.is fyrir 1. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Magnús Magnússon í síma 894 8998. VERKFRÆÐINGUR TÆKNIFRÆÐINGUR Vegna aukinna verkefna við bygginga- stjórnun og hönnun viljum við bæta verkfræðing/tæknifræðing í hóp stjórnenda okkar. Áhugasamir hafi samband við Friðrik Hansen Guðmundsson, s: 534 6000 Stafnás ehf. er bygginga– og verkfræðifyrir- tæki. Við leggjum metnað okkar í fagleg vinnubrögð, gott starfsumhverfi og góðan aðbúnað á vinnustöðum. StafnÁs Bygginga- & verkfræðifyrirtæki Bakari óskast til starfa sem fyrst. Við leitum að góðum alhliða bakara með metnað, áhuga og faglega þekkingu. Góð vinnuaðstaða í skemmtilegum hópi bakara. Allar nánari upplýsingar gefur Óttar Sveinsson framleiðslustjóri í síma 864 7733. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á ottar@bakarameistarinn.is Starfsmenn vantar Handlaginn mann við uppsetningar og afgreiðslumann á lager. Innflutningsfyrirtæki í örum vexti á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða ábyrga og þjónustulundaða starfsmenn. Störfin fela í sér: Uppsetningar á iðnaðarhurðum, krön- um o.fl. tengdu vöruflokkum fyrirtæk- isins. Móttöku og tiltekt á vörupöntunum, afgreiðslu og öðru tilfallandi. Lyftararéttindi æskileg en þó ekki skil- yrði. Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga. Laun samkvæmt samkomulagi. Leitað er að röskum, stundvísum og heiðarlegum einstaklingum sem geta hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstörf er að ræða. Umsóknir fást á www.formaco.is og upplýsingar í síma 577 2050 eða 824 2050. Lögfræðingur Yfirskattanefnd óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Starfið er einkum fólgið í gagnaöflun og öðrum undirbúningi mála sem eru til með- ferðar fyrir nefndinni. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku, vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og vera færir um að skrifa vandaðan texta. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf hið fyrsta. Menntunarskilyrði eru embættispróf eða meist- arapróf í lögfræði. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Stéttar- félags lögfræðinga. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist formanni yfirskattanefndar, Borgartúni 21, Reykjavík. Hann veitir einnig nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2006. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu hefur verið tekin. Yfirskattanefnd, www.yskn.is „... eitt saklaust lítið bros“ Óskum að ráða:  Grunnskólakennara í umsjón á yngsta- og miðstigi og í dönsku í 7. -10. bekk.  Grunnskólakennara í hönnun og smíði.  Grunnskólakennara með framhaldsnám í sérkennslufræðum.  Námsráðgjafa í 60-70% starf. Skoðaðu aðstæður og vertu með í liði sem byggir upp. Upplýsingar um störfin gefa Sveinbjörn Mark- ús Njálsson skólastjóri, í símum 540 4700 og 821 5007, netfang: sveinbjorn.njalsson@alftanesskoli.is og Erna Ingibjörg Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri í sím- um 540 4700 og 821 5009, netfang: erna.palsdottir@alftanesskoli.is Umsóknir sendist Álftanesskóla, 225 Álftanesi. Laun eru skv. kjarasamningi LN og KÍ. Skólastjóri. Lausar stöður lækna Heilbrigðisstofunin Ísafjarðarbæ auglýsir eftir tveimur læknum til starfa. Stöðurnar eru lausar strax. Um er að ræða 100% stöður. Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir, netfang thorsteinn.johannesson@fsi.is. og Fjölnir Freyr Guðmundsson yfirlæknir, netfang fjolnir@fsi.is Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendist Þresti Óskarssyni fram- kvæmdastjóra, fyrir 1o.apríl n.k.. Netfang: throstur@fsi.is Heilbrigðisstofnunin, Ísafjarðarbæ skiptist í sjúkrasvið og heilsugæsl- usvið og er vel búin stofnun, með rúmgóðri vinnuaðstöðu. Stofnunin þjónar Vestfjörðum, einkum norðurhlutanum. Við veitum alla al- menna þjónustu, bæði á heilsugæslusviði og á sviði skurð- og lyf- lækninga, fæðingarhjálpar, öldrunarlækninga, slysahjálpar og endur- hæfingar. Starfsemin hefur verið í örum vexti á undanförnum árum. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar eru rúmlega 150 talsins og starfsandi er mjög góður. Ísafjörður er höfuðstaður Vestfjarða og þar blómstrar öflugt lista-, menningar- og félagslíf. Íþrótta- og keppn- isaðstaða er mjög góð, bæði innan- og utanhúss. 3 golfvellir eru á svæðinu, 4 íþróttahús og 5 sundlaugar. Einnig er líkamsræktarstöð í bænum. Tækifæri til útivistar eru mörg, skíðaland er frábært, stutt í veiðilönd og áhugaverð göngusvæði og aðstaða til sjósports er engu lík. Veðursæld er mikil á Ísafirði og lognkyrrð algeng. Flugsam- göngur eru tvisvar á dag til Reykjavíkur. BM VALLÁ EHF óskar eftir starfsmönnum í eftirtalin störf húseiningadeild Garðabæ Bílstjóra á einingabíl o.fl. (meirapróf). Lagermann (lyftararéttindi). Kranamann o.fl. með (meirapróf). Verkamenn í húseiningadeild. Nánari upplýsingar gefur Kjartan Antonsson verkstjóri í síma 860 5020 eða kjartan@bmvalla.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.