Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman leiðbeiningar um viðmið fyrir góða starfshætti ríkisstarfsmanna. Í sérstöku dreifibréfi eru settar fram almennar leiðbein- ingar um þau viðmið sem rík- isstarfsmanni ber daglega að gæta í störfum sínum. Í því sambandi er lögð áhersla á að ríkisstarfsmaður starfi í þjón- ustu ríkisins og honum beri að haga störfum sínum í sam- ræmi við það. Í því felst fyrst og fremst að hann skal virða lög og stjórnarskrá og hafa grunnreglur lýðræðis og mannréttinda í heiðri. Hann skal ennfremur leggja sig fram um að sinna starfi sínu af alúð, trúmennsku, heiðarleika og ábyrgð. Leiðbeiningar Ríkisstarfsmaður skal leitast við að haga orðum sínum og at- höfnum í samræmi við eftirfar- andi leiðbeiningar:  Ríkisstarfsmaður gætir þess að fara vel með það vald sem honum er falið og beita því í þágu almanna- hagsmuna, gæta sanngirnis og meðalhófs en ekki nýta það í eigin þágu.  Beiti ríkisstarfsmaður mati við meðferð valds, sem hon- um er fengið, þar sem velja þarf á milli einstaklinga, t.d. við ráðningu í störf, úthlut- un styrkja eða annarra gæða eða gerð samninga um verktöku, skal hann byggja ákvörðun sína á málefnaleg- um sjónarmiðum, s.s. verð- leikum og hæfni. Óheimilt er að mismuna málsaðilum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, s.s. kynferðis, kynþáttar, kynhneigðar, eða samfélagslegrar stöðu að öðru leyti.  Ríkisstarfsmaður gætir þess að persónulegir og fjár- hagslegir hagsmunir hans, fjölskyldu hans eða vina fari ekki í bága við starfsskyldur hans. Þannig skal hann t.d. ekki taka þátt í ákvörðunum ef hann tengist málsaðilum fjölskylduböndum, ef hann á sjálfur aðild að málinu eða ef það varðar vini hans eða fyrrverandi maka.  Ríkisstarfsmaður skal ekki þiggja eða sækjast eftir gjöfum eða fjármunum frá einstaklingum, fyrirtækjum eða öðrum sem á einn eða annan hátt tengjast starfi hans ef almennt má líta á það sem endurgjald fyrir greiða eða sérstaka þjón- ustu. Sanngjarnt er að víkja frá þessu ef um afmælisgjaf- ir eða annars konar tæki- færisgjafir er að ræða enda séu verðmæti þeirra innan hóflegra marka. Hafa skal samráð við yfirmann ef vafi leikur á hvort starfsmanni er heimilt að taka við gjöf.  Ríkisstarfsmaður skal stuðla að því að upplýsingar um ákvarðanir og starfsemi þess stjórnvalds, stofnunar eða fyrirtækis sem hann starfar hjá séu aðgengilegar almenningi enda sé ekki um upplýsingar að ræða sem leynt þurfa að fara sam- kvæmt lögum.  Ríkisstarfsmaður gætir þagmælsku um atriði er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara. Honum er óheimilt að afla sér trúnaðarupplýsinga í starfi sínu sem ekki hafa þýðingu fyrir starfið. Hann skal ekki hagnýta sér upp- lýsingar sem hann hefur fengið í starfi sínu og ekki hafa verið kynntar eða gerð- ar almennar, til þess að skapa sjálfum sér eða öðrum ávinning, þ. á m. fjárhags- legan, enda þótt ekki sé um trúnaðarupplýsingar að ræða. Ríkistarfsmaður gæt- ir þagnarskyldu sinnar þótt hann hafi látið af starfi sínu.  Ríkisstarfsmanni ber að fara vel með almannafé, gæta þess að það sé vel nýtt og sé ekki notað á annan hátt en ætlast er til lögum samkvæmt.  Ríkisstarfsmaður sem verð- ur var við spillingu, ólög- mæta eða ótilhlýðilega hátt- semi, skal koma upplýs- ingum um slíka háttsemi til réttra aðila. Til réttra aðila geta m.a. talist stjórnendur stofnunar, hlutaðeigandi fagráðuneyti og eftir atvik- um Ríkisendurskoðun eða lögregla. Ríkisstarfsmaður sem í góðri trú greinir á réttmætan hátt frá upplýs- ingum samkvæmt þessum lið, skal á engan hátt gjalda þess. Siðferðileg álitamál Í dreifibréfi frá fjármálaráðu- neytinu segir að framan- greindar leiðbeiningar verði jafnan að taka mið af aðstæð- um starfsmanna á hverju sviði stjórnsýslunnar. Er því lagt fyrir stjórnendur að meta það sjálfstætt hvenær og í hvaða tilfellum sé rétt að setja frek- ari viðmið í formi leiðbeinandi reglna eða sérstakra siða- reglna. Slíkar reglur skulu fela í sér nánari útlistun á því hvernig æskilegt sé að starfs- maður bregðist við þegar sið- ferðileg álitamál koma upp í starfinu. Jafnframt er í sama tilgangi lagt til að stjórnendur yfirfari og eftir atvikum endur- skoði sérstaklega þau viðmið eða siðareglur sem settar hafa verið. Stjórnendur ríkisstofnana skulu tryggja að þær leiðbein- ingar sem settar eru fram í dreifibréfi þessu séu ávallt að- gengilegar starfsmönnum. Við ráðningu starfsmanna skulu leiðbeiningarnar kynntar þeim sérstaklega, segir í dreifibréf- inu. Viðmið um góða starfs- hætti ríkisstarfsmanna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ríkisstarfsmenn Fjármálaráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar um hvernig ríkis- starfsmönnum, sem skipta þúsundum, ber að haga sér í vinnunni, og jafnframt hvernig þeir eiga ekki að starfa. ● SIGURÐUR Pétursson, sem hefur átt sæti í framkvæmdastjórn Alfesca, hefur að eigin ósk látið af störfum sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Alfesca. Hann mun þó í samráði við yfirstjórn fyrirtækisins vinna áfram í óákveðinn tíma sem ráðgjafi að ýms- um verkefnum á sviði viðskiptaþróunar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Alfesca. Sigurður hóf störf hjá fyrirtækinu árið 1999 og hefur frá 2005 gegnt stöðu fram- kvæmdastjóra viðskiptaþróunar og átt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Í fyrstu gegndi hann starfi mark- aðsfulltrúa og verkefnastjóra móðurfélagsins á Íslandi en í upp- hafi árs 2002 hélt hann til starfa í Frakklandi þar sem hann tók við starfi framkvæmdastjóra Iceland Seafood France (áður Nord Ocean Seafood). Árið 2003 var Sigurður ráðinn sem fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá SIF France og árið 2004 gegndi hann starfi framkvæmdastjóra kælisviðs félagsins. Sigurður Pétursson hættir hjá Alfesca Sigurður Pétursson ● NÝLEGA öðlaðist Landsteinar Strengur hæfnisvottun frá Microsoft á sviði sjálf- stæðra seljenda og framleiðenda hugbún- aðarlausna. Áður hafði fyrirtækið hlotið hæfnisvottun á sviði fyrirtækjalausna frá Microsoft, en þessi nýja vottun styrkir enn stöðu Landsteina Strengs á meðal sam- starfsaðila Microsoft, segir í tilkynningu. Að sögn Sigurjóns Péturssonar, fram- kvæmdastjóra Landsteina Strengs, er vott- unin mikill heiður fyrir Landsteina Streng og góð viðbót við þær viðurkenningar sem fyrirtækið hefur áður hlotið frá Microsoft. Á síðastliðnu ári fékk fyrirtækið æðstu við- urkenningu sem Microsoft Business Solutions veitir samstarfs- aðilum sínum á þessu sviði – Global ISV Partner of the Year. Hæfnisvottun frá Microsoft til Landsteina Strengs Til sölu Til sölu málverk Tvö eftir Ásgeir Bjarnþórsson. Annað frá '47. H. 68 cm og br. 115,5cm og hitt hæð 58 cm og br. 82,5 cm. Einnig málverk eftir Þorlák R. Halldórsen frá '85, h. 65, br. 79. Málverkin eru öll innrömmuð. Upplýsingar í síma 696 9683. Félagslíf Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofnað 1918, sími 551 8130, Garðastræti 8, Reykjavík. Huglæknarnir Hafsteinn Guð- björnsson, Ólafur Ólafsson, Kristín Karlsdóttir. Miðlarnir Anne Pehrsson, Guðrún Hjörleifsdóttir, Rósa Ólafsdóttir, Sigríður Erna Sverrisdóttir, Skúli Lórenz- son og Þórunn Maggý Guð- mundsdóttir starfa hjá félaginu og bjóða upp á einkatíma. Hópastarf - Bæna- og þróunar- hringir eru á vegum félagsins. Uppl., fyrirbænir og bókanir í síma 551 8130. Opið mán. frá kl. 9.30-14.00, þri. frá kl. 13.00-18.00, mið.-fös. frá kl. 9.30-14.00. www.srfi.is. srfi@srfi.is. SRFÍ. Smiðjuvegi 5, Kópavogi. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Aldursskipt barnastarf. Högni Valsson kennir, létt máltíð að samkomu lokinni. Allir velkomnir. Bænastund kl. 18.30. Samkoma kl. 19.00. Freddie Fil- more prédikar, lofgjörð, fyrir- bænir, samfélag. Allir velkomnir. Þriðjudaginn 28. mars verður út- sending frá kennslu á Livets Ord kl. 06:30 með Kong Hee frá Sing- apore og aftur kl. 17:00. Mið- vikudaginn 29. mars verður út- sending kl. 17:00. www.vegurinn.is Samkoma í dag kl. 16.30 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Thomas J. Stankiewicz predikar. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Öll samkoman fer fram á íslensku og ensku. Allir eru hjartanlega velkomnir. www.vineyard.is Samkoma í dag kl. 16.30. Gunnar Þorsteinsson predikar. Mánud. Logos-námskeið kl. 20.00. Þriðjud. Samkoma kl. 20.00. Miðvikud. Bænastund kl. 20.00. Fimmtud. Unglingar kl. 20.00. Laugard. Samkoma kl. 20.30. www.krossinn.is. Morgunguðsþjónusta kl. 11. Friðrik Schram kennir um: Hvernig kenndi Jesús og hvern- ig þjálfaði hann lærisveinana? Barnapössun fyrir 1-2 ára, sunnu- dagskóli fyrir 3-6 ára og Krakka- kirkja fyrir 7-13 ára. Samkoma kl. 20.00 með mik- illi lofgjörð og fyrirbænum. Frið- rik Schram predikar. Hvernig mætti Jesús fólki? Þáttur kirkjunnar „Um trúna og til- veruna“ sýndur á Ómega kl. 14. Samkoma á Eyjólfsstöðum á Héraði kl. 17.00. Unnar Erlings- son predikar. Tvískift barnastarf. Kaffi og samfélag á eftir. www.kristur.is Í kvöld kl. 20.00. Samkoma. Umsjón Miriam Óskarsdóttir og Björn Tómas Kjaran. Mánudag 27. mars kl. 15.00. Heimilasamband. Allar konur velkomnar. I.O.O.F. 3  1863278  III.H.F.*Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í dag kl. 14.00. English speaking service at 12:30 pm. The entrance is from the car park in the rear of the building. Everyone is welcome. Almenn samkoma kl. 16:30. Ræðum. Shawn Foster frá Youth Storm USA. Kirkja unga fólksins leiðir lof- gjörð. Fyrirbænir í lok samkomu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Barnakirkja á meðan samkomu stendur, öll börn velkominn frá 1-12 ára. Hægt er að hlusta á beina út- sendingu á Lindinni fm 102.9 eða horfa á www.gospel.is Á Ómega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu kl. 20:00. filadelfia@gospel.is www.gospel.is Almenn samkoma kl. 14.00. Helga R. Ármannsdóttir prédikar. Tónlist, söngur og fyrirbænir. Barnastarf fyrir 1-12 ára meðan á samkomu stendur og kaffisala að henni lokinni. Allir hjartanlega velkomnir! Fríkirkjan Kefas, Fagraþingi 2a við Vatnsendaveg, www.kefas.is. Heildsala - Smásala til sölu með eigin innflutning og góða álagn- ingu ásamt fínum samböndum. Góð upp- grip framundan. Verð ca 12 m. Svar merkt: „Tækifæri“ sendist á netfang: galle@isl.is Húsnæði í boði Ventura - Orlando Til leigu rúmlega 100 fm íbúð. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús og tvö rúmgóð svefnherbergi með sér baðherbergjum. Íbúðin er til leigu frá 1. maí til 30. sept. Upplagt fyrir félagasamtök og starfsmannafélög. Áhugasamir sendi tölvupóst á arni.hall@simnet.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Ungir menn í framkvæmdum við húsið Hamborg. ATVINNUÁSTAND er heldur gott á félagssvæði Fé- lags málmiðnaðarmanna á Akureyri um þessar mundir, en um þrjú hundruð manns eru í félaginu. Nemar í málmiðnaðar- greinum eru of fáir á félags- svæðinu, og brýn nauðsyn að þeim fjölgi verulega á næstu árum. Þetta kom fram á aðal- fundi félagsins nú á dögun- um. Þá kom og fram að heldur er að lifna yfir endurmennt- unarnámskeiðum fyrir fé- lagsmenn í endurmenntun- arstöð félagsins við Draupnis- götu. Verið er að ganga frá samningi við Tölvufræðsluna á Akureyri um tölvunámskeið fyrir félagsmenn. Félagið er í auknum mæli að koma til móts við félagsmenn sína á sem flestum sviðum m.a. með niðurgreiðslu á margskonar námskeiðsgjöldum sem nýt- ast félagsmönnunum bæði í leik og í starfi. Nýtt sumarhús sem félagið á með Félagi iðn- og tækni- greina á Illugastöðum var tekið í notkun sl. sumar. Ver- ið er að leggja hitaveitu á svæðinu og munu verða settir heitir pottar við öll húsin á Illugastöðum í vor. Aðalfundurinn samþykkti að fara í stefnumótunarvinnu fyrir félagið á þessu ári. Of fáir nemar á Akureyri Sigurjón Pétursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.