Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 1
Flugustangir
Ísland fyrir og
eftir Björk
Jákvæða umfjöllunin um litla
Íslendinginn | Af listum
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Avensis fær andlitslyftingu Bara bíladella
Einfaldleikinn stundum bestur Íþróttir | Fyrstu skref Eiðs
Smára Vallarmet féll á Hoylake Silja handarbrotin
STOFNAÐ 1913 196. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
„VIÐ ERUM stæltir strákar á ströndinni,“
söng gleðisveitin Jójó um árið og á það gletti-
lega vel við piltana hér á myndinni sem nutu
veðurblíðunnar á ylströndinni í Nauthólsvík í
en á þó nokkrum stöðum á suðvesturhorninu
fór hitinn upp fyrir 20 gráður. Útlit er fyrir
hlýtt veður og bjart sunnanlands í dag en sval-
ara veður á Norður- og Austurlandi. | Miðopna
gærdag. Fjölmenni var á helstu sundstöðum
höfuðborgarsvæðisins í gær enda fádæma
blíða og langþráð eftir rigningatíð að und-
anförnu. Hiti varð mestur í Árnesi, 22 gráður,
Morgunblaðið/Jim Smart
Veðurblíðunnar notið í Nauthólsvík
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
ÓTTAST er að ein milljón manna
geti þurft að flýja heimili sín í Líb-
anon á næstunni ef átökin þar halda
áfram. Þegar hefur meira en hálf
milljón manna yfirgefið heimili sín í
Beirút, höfuðborg Líbanon, en
flestir hafa farið til svæða innan
landsins.
Fólksflutningarnir geta haft al-
varlegar afleiðingar og hjálpar-
stofnanir hafa varað við því að
neyðarástand kunni að skapast á
svæðinu. „Þessi tala gæti hækkað
hratt upp í eina milljón flóttamanna
ef átökin halda áfram,“ sagði Ama-
deu Altafaj, talsmaður Louis
Michel, sem fer með neyðaraðstoð í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins. Jan Egeland, yfirmaður
neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóð-
anna, SÞ, sagðist í gær búa sig und-
ir hörmungarástand í Líbanon og
að aðstæður fólks versnuðu með
hverri mínútunni. Í máli hans kom
ars í sér að Hizbollah láti lausa tvo
ísraelska hermenn sem samtökin
rændu í síðustu viku og að friðar-
gæslusveitir verði sendar á vett-
vang.
Annan fordæmdi Hizbollah fyrir
að hafa rænt hermönnunum og
skotið flaugum á Ísrael og Ísraela
fyrir að bregðast við af mikilli
hörku. Hann sagði að mikilvægast
væri nú að hjálpa íbúum Líbanon
og hindra frekara mannfall hjá al-
mennum borgurum bæði í Líbanon
og Ísrael.
fram að þriðjungur flóttamann-
anna væri börn.
Fordæmdi báða
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, krafðist þess í gær að átökin á
milli Ísraela og Hizbollah yrðu
stöðvuð án tafar. Hann hvatti ör-
yggisráðið til að grípa til aðgerða til
að tryggja frið á svæðinu og lagði
fram áætlun sem felur meðal ann-
Óttast að flóttamenn
geti orðið milljón
Hjálparstofnanir vara við
neyðarástandi í Líbanon
Hundruð | 16
GRÆNLENSKA heimastjórnin
hefur samkvæmt frétt í færeyska
dagblaðinu Sosialurin skrifað undir
samstarfssamning um að kanna
möguleika á byggingu álvers á
Grænlandi. Jafnframt er verið að
kanna orkumöguleika, en Grænlend-
ingar hafa verið að skoða frekari
vatnsaflsvirkjanir. Kanna á hvort
næg orka sé til staðar fyrir eitt eða
fleiri álver.
Jake Siewert, talsmaður Alcoa á
heimsvísu, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að samkomulag hefði
verið gert við Grænlendinga. Mögu-
leikarnir yrðu kannaðir ítarlega á
næstu mánuðum en of snemmt væri
að segja til um hvort einhverjar
framkvæmdir yrðu að veruleika.
Hugmyndin væri að þróa aðferðir
með Grænlendingum til að nýta
vatnsorku til álframleiðslu. Skv.
upplýsingum Morgunblaðsins er um
frumkvæði grænlensku heima-
stjórnarinnar að ræða, hún mun hafa
leitað til Alcoa um möguleika á sam-
starfi.
Verði af þessum áformum gæti
það einnig komið sér vel fyrir þau ís-
lensku fyrirtæki sem hafa aflað sér
þekkingar og reynslu við uppbygg-
ingu álvera, slík þekking er af skorn-
um skammti í Danmörku.
Í́huga álver á Grænlandi
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STJÓRNENDUR Marriott International,
stærstu hótelkeðju Bandaríkjanna, hafa
tilkynnt að reykingar verði bannaðar í
öllum 400 þúsund hótelherbergjum keðj-
unnar í Bandaríkj-
unum og Kanada.
Brjóti hótelgestir
bannið bíður þeirra
sekt upp á 200–300
dollara eða um 15–22
þúsund krónur.
Ákveðið var að
banna reykingar þar
sem eftirspurn eftir
herbergjum sem má
reykja í hefur minnkað stöðugt síðustu ár
og nú biðja minna en 5% gesta um slík
herbergi, að því er greint er frá í frétt
blaðsins Washington Post. Þá berast sí-
fellt fleiri kvartanir frá hótelgestum sem
finna reykingalykt í herbergjum sínum
og er þetta eitt algengasta umkvörtunar-
efni gesta.
Stjórnendur hótelkeðjunnar telja að
ákvörðunin muni hafa góð áhrif á við-
skiptin og margir telja að önnur hótel
fylgi í kjölfarið og banni reykingar.
Reykingabann í
öllum herbergjum
FJÓRAR tegundir háplantna fundust í
fyrsta sinn í Surtsey í fjögurra daga
leiðangri líffræðinga til eyjunnar á veg-
um Náttúrufræðistofnunar Íslands og
Surtseyjarfélagsins, sem lauk í gær.
Tegundirnar sem um ræðir eru þúfu-
steinbrjótur, burnirót, blávingull og
blóðberg. Þá fundust allnokkrar nýjar
fléttutegundir í Surtsey og eru þær nú
orðnar um 80.
„Tegundir æðri plantna sem hafa
fundist í Surtsey frá upphafi eru nú 64
talsins en aðeins 56 þeirra reyndust nú á
lífi,“ segir dr. Sturla Friðriksson.
Leiðangursstjóri var dr. Borgþór
Magnússon en í ferðinni voru átta ís-
lenskir náttúrufræðingar og einn gestur
þeirra frá Hawaii. | 4
Blómstrandi
blóðberg finnst
í Surtsey
♦♦♦