Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 2
SKRÁÐ ERLENDIS
Fjármunaeign erlendra aðila á Ís-
landi var 252 milljarðar króna árið
2005 og hafði þá tvöfaldast frá árinu
áður. Stærstur hluti eignanna er í
höndum íslenskra ríkisborgara en
76% þeirra eru í höndum einstaklinga
og félaga sem skráð eru í Belgíu/
Lúxemborg, Guernsey og Hollandi.
Ríkisskattstjóri segir mörg af þess-
um félögum staðsetja sig þarna til að
komast undan skatti.
Hálf milljón flóttamanna
Hálf milljón manna hefur yfirgefið
heimili sín í Berút, höfuðborg Líb-
anons, en óttast er að fjöldi flótta-
manna í landinu geti tvöfaldast. Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ, krefst
þess að átökin í Mið-Austurlöndum
verði stöðvuð og hvetur öryggisráð
SÞ til aðgerða.
Barnaklámsíður algengar
Meira en helmingur vefsíðna sem
tilkynnt er um að innihaldi barna-
klám er hýstur í Bandaríkjunum,
samkvæmt nýrri skýrslu. Sumar
barnaklámsíður hafa verið aðgengi-
legar í fimm ár þótt tilkynnt hafi ver-
ið um þær til yfirvalda.
Fjórar nýjar tegundir
Fjórar nýjar tegundir háplantna
og allnokkrar nýjar fléttutegundir
fundust í Surtsey í leiðangri vísinda-
manna þangað sem lauk í gær. Há-
plöntutegundirnar eru þúfusteins-
brjótur, burnirót og blávingull en
einnig fundust blómstrandi blóð-
bergsplöntur.
Skilyrði LÍN til dómstóla
Menntamálaráðherra segir að látið
verði reyna á það fyrir EFTA-
dómstólnum hvort búsetuskilyrði í
lögum um LÍN feli í sér mismunun í
skilningi EES-samningsins. Eftirlits-
stofnun EFTA (ESA) telur að svo sé.
Y f i r l i t
2 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MS drykkjarvörur í ferðalagið
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Fréttaskýring 8 Viðhorf 30
Úr verinu 12 Bréf 34
Viðskipti 14 Minningar 35/41
Erlent 16/17 Myndasögur 44
Minn staður 18 Dagbók 44/48
Akureyri 19 Víkverji 44
Höfuðborgin 20 Staður og stund 46
Austurland 20 Leikhús 48
Landið 21 Bíó 50/53
Daglegt líf 22/23 Ljósvakamiðlar 54
Menning 24, 48 Veður 55
Umræðan 26/38 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráðast í
stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. og
hefst vinna við hana á næstu dögum.
Endurskoðunar- og ráðgjafafyrir-
tækið Deloitte & Touche mun vinna
úttektina og stefnt er að því að nið-
urstöður hennar liggi fyrir í septem-
ber. Komið hefur í ljós að rekstrar-
vandi fyrirtækisins er mikill en á
tímabili í vetur nam tap þess um einni
milljón króna á dag.
Á fundi stjórnar Strætó bs. þann
31. mars síðastliðinn var lögð fram
greinargerð þar sem fram kom að
fjárhagsáætlun fyrirtækisins myndi
ekki standast þar sem fjárvöntun
vegna kjarasamnings og aukins akst-
urs gæti verið 220 milljónir króna, þar
af 140 milljónir vegna launa og óvissa
í fargjaldatekjum upp á 55 til 60 millj-
ónir því til viðbótar. Þetta kemur
meðal annars fram í minnisblaði Ár-
manns Kr. Ólafssonar, formanns
stjórnar Strætó bs., og Ásgeirs Ei-
ríkssonar, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins, sem lagt var fram á fundi
borgarráðs í gær.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs, segir ljóst að alvarleg
staða fyrirtækisins hafi verið lengi til
umræðu og flestir geti verið sammála
um það að einhvers staðar sé pottur
brotinn. „Ég tel að það hefði þurft að
grípa til aðgerða fyrr og það hefði
þurft að vekja athygli á vandanum
fyrr,“ segir Björn Ingi og bendir á að
ef stjórnin hafi talið að meira fjár-
magn þyrfti í reksturinn frá sveitar-
félögunum hefði átt að koma fram um
það formlegt erindi í borgarráði eða
til sveitarfélaganna.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, sagði að í
ljós hefði komið á fundi borgarráðs í
gær að stóran hluta fjárhagsvanda
Strætó bs. mætti rekja til þess að ná-
grannasveitarfélög Reykjavíkur
hefðu svikist um að greiða framlög í
samræmi við launahækkanir vegna
nýgerðra kjarasamninga. Vandinn
væri því aðeins að litlum hluta vegna
fækkunar farþega. Þessu er vísað á
bug í yfirlýsingu Strætó bs. frá því í
gær þar sem segir að öll aðildarsveit-
arfélög hafi að fullu staðið við skuld-
bindingar sínar skv. samþykktri fjár-
hagsáætlun byggðasamlagsins.
Ráðist verður í stjórn-
sýsluúttekt á Strætó bs.
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
BLÁSIÐ var til heilmikillar garðveislu í bakgarði
hjúkrunar- og elliheimilisins Grundar við Hringbraut.
Að sögn Júlíusar Rafnssonar, framkvæmdastjóra
Grundar, er um árlegan viðburð að ræða sem verið hef-
ur við lýði áratugum saman. Segir hann veislunni ætlað
að krydda hversdagstilveruna og gefa íbúum kost á að
tjútta aðeins úti í góða veðrinu við skemmtilega tónlist
og gæða sér á grilluðum pylsum.
Að sögn Júlíusar hefur garðveislan fram að þessu
ávallt verið haldin sunnanmegin við húsið í garðinum
sem snýr út að Hringbraut, en í þetta sinn var veislan í
bakgarði við húsið sem nýbúið er að ganga frá. „Tón-
listin og veislan vöktu óneitanlega athygli nágranna
okkar og krakka sem voru á ferð í hverfinu og litu þau í
heimsókn til okkar og fengu sér grillaðar pylsur, enda
allir velkomnir í pylsupartíið,“ segir Júlíus.
Tjúttað í garðveislu á Grund
Morgunblaðið/Eggert
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FJÖGUR fjársvikamál sem varða
þjófnað úr heimabönkum með
njósnaforritum frá því í október þar
til nú í sumar eru enn til rannsóknar
hjá lögreglunni í Reykjavík og eru
óupplýst. Auðgunarbrotin fólust í
þjófnaði á alls 10–15 milljónum kr.
og nýttu þjófarnir sér tölvur í eigu
einstaklinga til að svindla sér inn á
reikninga sem dregið var fé út af.
Rökstuddur grunur leikur á að síð-
asta málið tengist SMS-fjöldasend-
ingum frá því í júní sl., en ef leiðbein-
ingum úr skeytunum var fylgt eftir
og hugbúnaði halað niður var komið
fyrir svokölluðum bakdyrum á við-
komandi tölvu. 22. júní sl. fengu þús-
undir Íslendinga skilaboð frá er-
lendri stefnumótaþjónustu þar sem
þakkað var fyrir nýskráningu í þjón-
ustuna. Kom jafnframt fram að tveir
dollarar yrðu gjaldfærðir á síma-
reikning viðkomandi hvern dag, þar
til hætt yrði að kaupa þjónustuna, og
var vísað á vef stefnumótaþjónust-
unnar. Einn aðili gekk grunlaus í
gildruna en ekki er útilokað að upp
komist um fleiri slík tilvik.
Málið sem kom upp í nóvember
snýst um stuld á um 2 millj. kr. úr
heimabönkum og var 25 ára maður
handtekinn grunaður um aðild að því
og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Hann hafði komið áður við sögu lög-
reglunnar, þó ekki vegna auðgunar-
brota, og var ekki talinn líklegur til
að búa yfir mikilli tölvukunnáttu.
Málið þar á undan, sem upp kom í
október, varðar mun lægri fjárhæðir
en ekki var neinn handtekinn í
tengslum við það.
15 milljóna svik
enn í rannsókn
Fjögur mál tengd njósnaforritum
GENGIÐ var frá
ráðningu Helgu
Jónsdóttur í emb-
ætti bæjarstjóra
Fjarðabyggðar í
gær. Allir bæj-
arfulltrúar
Fjarðabyggðar
greiddu atkvæði
með tillögu bæj-
arráðs um að
bjóða Helgu bæjarstjórastólinn. Hún
var valin úr hópi 20 umsækjenda og
mun hefja störf á haustdögum.
Helga hefur sinnt ýmsum ábyrgð-
arstörfum á sviði stjórnsýslu ríkis og
sveitarfélaga, meðal annars gegnt
starfi borgarritara og aðstoðar-
manns ráðherra.
Helga Jónsdóttir
nýr bæjarstjóri
Fjarðabyggðar
Helga Jónsdóttir
UMFERÐARÓHAPP varð í Vest-
ursíðu á Akureyri um hádegisbilið í
gær. Þar var mótorhjóli ekið fram
úr bíl, sem beygði í sama mund inn
á bílastæði, með þeim afleiðingum
að hjólið og ökumaður þess höfn-
uðu inni í garði. Að sögn slökkviliðs
Akureyrar er ekki talið að ökumað-
ur hjólsins hafi meiðst alvarlega en
einhverjar skemmdir urðu á hjólinu
og bílnum.
Í fyrrinótt þurfti sjúkraflugvél
Mýflugs að lenda á Sauðárkróki til
að ná í mjög veikan sjúkling frá
Akureyri. Hann hafði verið fluttur
með sjúkrabíl frá Akureyri á flug-
völlinn á Sauðárkróki ásamt lækni.
Sjúkraflugvélin var stödd í Reykja-
vík eftir sjúkraflug á Ísafjörð
kvöldið áður en komst ekki til baka
til Akureyrar vegna þoku.
Ók bifhjóli
sínu í garð
LÖGREGLAN í Reykjavík heldur
úti öflugu umferðareftirliti um
þessar mundir og fylgist m.a.
grannt með bílbelta- og símanotk-
un. Nýverið voru tólf ökumenn
stöðvaðir fyrir að tala í síma undir
stýri, þ.e. án þess að nota hand-
frjálsan búnað, og mega þeir búast
við fimm þúsund króna sekt hver.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hafa auk þess fjórir ökumenn
verið kærðir fyrir að aka án bíl-
belta og þá virðist ekkert lát á
hraðakstri í borginni en tíu öku-
menn voru teknir fyrir of hraðan
akstur í gær og á miðvikudag.
Öflugt umferðar-
eftirlit lögreglu