Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.07.2006, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á TÖFLUNNI má sjá einfalt dæmi um áhrif þeirra breytinga sem ríkis- stjórn og Landssamband eldri borgara tilkynntu að samkomulag hefði náðst um í fyrradag. Hér eru borin saman kjör einstaklings sem býr einn samkvæmt núverandi kerfi og kerfinu sem tekur við 1. janúar nk. Miðað er við að tekjur hækki um 5,5% og er einnig gert ráð fyrir að skatthlutfallið lækki um eitt prósentustig. Eins og sjá má aukast ráðstöfunartekjur í þessum tilfellum en hafa ber í huga að gangi svartsýnustu spár um verðbólgu eftir er raunhækkunin öllu lægri en krónutalan segir til um.                                                !     "      # $%& $ ' $ $ '( !       ! !   !! !     !      ! Ráðstöfunartekjur aukast AÐGERÐIR stjórnvalda í þágu aldr- aðra og öryrkja eru tvímælalaust já- kvætt skref, er haft eftir Sigursteini Mássyni, formanni Öryrkjabandalags Íslands, á heimasíðu félagsins. Í samkomulagi stjórnvalda og eldri borgara, sem kynnt var í fyrradag, felst meðal annars að breytingar á líf- eyrisbótum nái til öryrkja. Á heimasíðunni kemur fram að Sigursteinn telji mestu máli skipta að þeir sem verst séu settir og hafi eng- ar eða litlar tekjur umfram greiðslur frá Tryggingastofnun fái mestu krónutöluhækkanirnar. Einnig sé þýðingarmikið að skerðingarhlut- fallið verði nú lækkað en það sé fyrsta skrefið til einföldunar á almanna- tryggingakerfinu. ÖBÍ muni h.v. halda áfram að þrýsta á um frekari einföldun kerfisins. Skref sé tekið í rétta átt með því að tekjutryggingin og tekjutryggingarauki fari í einn flokk frá áramótum og minni áhrifum tekjutenginga en hingað til. Þá er haft eftir Sigursteini að ÖBÍ hefði að sjálfsögðu viljað sjá meiri hækkanir grunnlífeyristekna og enn meiri lækkun á skerðingarhlutfalli en að um jákvætt skref sé að ræða. ÖBÍ fagnar aðgerðum stjórnvalda ÞÆR aðgerðir, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að fara út í til að bæta kjör aldraðra og kynntar voru í fyrradag, er æskilegra að fara út í þegar meiri slaki er í efnahagslífinu, að sögn Lúðvíks Elíassonar, hagfræðings hjá Landsbankanum. Hann segir að aðgerðir á borð við þessar auki þenslu og að á móti slíkum aðgerðum þurfi að rýma til í fjármálum ríkisins. Lúðvík tekur þó fram að Landsbankinn hafi ekki unnið sérstaka úttekt á áhrifum þessara aðgerða en þess í stað sé hér ein- ungis um almenn sjónarmið að ræða. Lúðvík segir að tímasetningar aðgerða sem þessara séu mik- ilvægar. „Það er auðvitað alltaf spurn- ing hvenær það er pólitískt mögulegt að fara út í slíkar að- gerðir,“ segir hann en bætir við að í hagstjórnarlegum skilningi sé tímasetning aðgerðanna ekki heppileg. Segir aðgerðir ríkisstjórnar þenslu- hvetjandiBORGARRÁÐ samþykkti ígær samhljóða tillögu meiri- hlutans um að lækka leikskóla- gjöld í Reykjavík frá og með 1. september nk. Námsgjald, sem áður var nefnt kennslugjald, verður lækkað um 25% en auk þess verður veittur 100% systk- inaafsláttur af námsgjaldinu með öðru eða fleiri börnum. Lækkun leikskólagjalda leið- ir til þess að tekjur borgarsjóðs lækka um 93,4 milljónir króna en þar að auki verða framlög til einkarekinna leikskóla hækkuð um 15 milljónir. Auknum kostn- aði verður mætt með hækkun á áætluðum útsvarstekjum en þær hafa verið hærri en áætlað var sem m.a. má rekja til bætts atvinnuástands. Einnig var samþykkt tillaga borgarráðsfulltrúa Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks um að fela stjórnkerfisnefnd að undirbúa stofnun leikskólaráðs. Minnihlutaflokkarnir lögðu þá fram tillögu um frestun málsins og var henni einnig vísað til stjórnkerfisnefndar. Leikskóla- gjöld lækk- uð í borginni TÆPLEGA 1.800 umsóknir bárust um skólavist í Háskólanum í Reykjavík (HR) fyrir næsta skóla- ár, sem hefst eftir réttan mánuð. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um skólavist í HR og gera skóla- yfirvöld ráð fyrir að tæplega 1.000 nemendur verði teknir inn í skól- ann í haust. Kynjahlutfall umsækjenda er nokkuð jafnt og alls eru um 52,5% umsækjenda karlkyns og 47,5% þeirra kvenkyns. Til samanburðar má benda á að 63% allra háskóla- nema í landinu í fyrra voru konur. Í viðskiptadeild skólans lætur nærri að þrjár umsóknir séu um hvert laust pláss, en alls sóttu 567 um nám í deildinni. Þar af sóttu 232 um grunnnám viðskiptafræði og eru það rúmlega 40 prósentum fleiri umsóknir en í fyrra. Þá hefur umsóknum um diplómanám við- skiptadeildar fjölgað mikið, sem og um meistaranám í fjármálum fyr- irtækja og fjárfestingarstjórnun. Tæplega 200 manns sóttu um grunnnám í lagadeild og tæplega 100 umsóknir bárust um meistara- nám í lögfræði. Í tækni- og verkfræðideild hefur umsóknum fjölgað hlutfallslega mest í rekstrarverkfræði, hugbún- aðarverkfræði og iðnaðarverk- fræði. Tæplega 90 umsóknir bárust um nám í íþrótta- og kennslufræðum, sem er fremur nýtt af nálinni og starfrækt í samstarfi við Íþrótta- akademíuna í Reykjanesbæ, og hefur umsóknum um það nám fjölgað nokkuð á milli ára. Metfjöldi hefur sótt um skólavist í HR UNDANFARNA tvo daga hefur Hrafn Svavarsson áhugaljósmynd- ari rekist á á annan tug fuglshræja á göngum sínum um Seltjarnarnes. Hrafn segir ekki fara á milli mála að fuglarnir hafi verið skotnir, en sérstakt leyfi þarf til að skjóta fugl innan bæjarmarka og nægir skot- vopnaleyfi ekki til. Veiðimönnum ber skylda til að hirða bráð sína, en það höfðu þeir sem þarna voru á ferðinni ekki gert heldur möruðu fuglarnir ýmist í hálfu kafi í sjónum eða lágu í fjör- unni. Meðal hræanna voru hræ síla- máva og svartbaks, auk ellefu fýla, en sá síðastnefndi er friðaður hér á landi á þessum árstíma. Lögreglan hafði í gær ekki hafið rannsókn á því hvernig dauða fuglanna bar að. Fuglar skotnir á Seltjarnarnesinu Ljósmynd/Hrafn Svavarsson „ÞAÐ er alltaf eitthvað nýtt sem ber fyrir augu í hvert skipti sem maður kemur til Surtseyjar,“ segir dr. Sturla Frið- riksson en hann hefur fylgst með þróun eyjarinnar í þau 42 ár sem lið- in eru síðan hún reis úr sjó suður af Vest- mannaeyjum. Þessi orð Sturlu má til sanns vegar færa en í fjögurra daga leiðangri vís- indamanna til eyjarinnar, sem lauk í gær, fundust fjórar nýjar tegundir háplantna og allnokkrar nýjar fléttu- tegundir. Háplöntutegundirnar sem um ræðir eru þúfusteinsbrjótur, burnirót og blávingull en einnig fund- ust blómstrandi blóðbergsplöntur. Frá upphafi hafa því fundist 64 teg- undir æðri plantna í Surtsey en að- eins 56 þeirra reyndust nú á lífi. Sturla steig fyrst á land í Surtsey árið 1964 til þess að kanna hvort eitt- hvert líf hefði borist þangað. Sem nærri má geta var útlit eyjarinnar mjög frábrugðið því sem nú er og fyrstu lífverurnar komust fyrir á litlum diski. „Þegar ég kom þarna fyrst var allt saman kolsvart – engin planta og ekki neitt. Ég kom einungis með ætisdiska sem gætu höndlað bakteríur og mygl- ur sem gætu hafa borist í loftinu.“ Ekki allar plönturnar eru eins og Róbinson Krúsó Bakteríurnar og myglurnar voru þó ekki lengi einráðar í Surtsey því strax á öðru ári tók fyrsta plantan sér þar bólfestu. „Á öðru ári kom þarna fjörukál og fór að vaxa en þetta var fyrsta plant- an. Það var auðvitað mikill viðburður að sjá fyrstu plöntuna en nú er ekkert fjörukál að finna og það hefur aðeins fundist einstaka sinnum síðan þá. Plantan er einær og deyr út sum ár- in.“ Sturla segir að einungis hluti þeirra æðri plantna sem hafi fundist í Surtsey finnist þar árlega. Þannig nemi plönturnar land og deyi svo út sumar hverjar. Þessu megi líkja við ævintýrið um Róbinson Krúsó, óheppna sæfarann sem skolaði upp á eyðieyju, hvar hann mátti dveljast við þröngan kost. „Að komast út á eyðieyju er eitt en það er annað að lifa það af. Það eru ekki allar plönturnar eins og Rób- inson Krúsó.“ Það er auðvelt að ímynda sér að ítrekuð ferðalög til Surtseyjar séu fremur tíðindalítil en blaðamaður kemst fljótt að raun um að svo er ekki. „Þetta er eins og að vera í æv- intýraleit að fara þarna um og finna eitthvað nýtt en það er alltaf einhver nýlunda sem verður á vegi manns,“ segir Sturla með glampa í augunum og bendir á að hann hafi orðið vitni að mörgu furðulegu á ferðalögum sín- um. „Náttúran hefur óendanlega mikla möguleika á að bera líf til úthafs- eyjar. Mér þykir alltaf mjög merki- legt þegar ég fann pétursskip, sem er egg skötunnar, í Surtsey og á því hékk fullt af fræjum. Þá hafði þetta skip virkað eins og flutningabátur en það hafði komist á einhverja strönd á meginlandinu þar sem fræ hafa verið og hengt sig utan á yfirborð skipsins. Síðan flutti sjórinn skipið yfir til Surtseyjar og þar var það komið upp á land hlaðið fræjum. […] Þá var það viðburður þegar skordýrafræðingar fundu þarna girðingarstólpa sem hafði flotið upp í fjöruborðið og þegar að var gáð var á staurnum fullt af litlum maurum. Þeir höfðu komið þarna hlaupandi á staurnum eftir því sem hann ruggaði með öldunum og hlupu síðan af honum og gátu numið land. Svona ævintýrum finnur náttúr- an uppá,“ segir Sturla og spyr í kjöl- farið blaðamann hvernig í ósköp- unum ánamaðkur komist til Surtseyjar. Blaðamaður á engin svör við því og sættist því fljótt á þá út- skýringu Sturlu að sennilega berist hann þangað sem egg á fiðri eða fót- um fugla. „Lífið virðist því koma til Surts- eyjar bæði með sjó- og landflutn- ingum.“ Dr. Sturla Friðriksson hefur fylgst með þróun Surtseyjar „Þetta er eins og að vera í ævintýraleit“ Ljósmynd/Sturla Friðriksson Leiðangursmenn við Pálsbæ í Surtsey, sem reis úr sjó fyrir 42 árum. Dr. Sturla Friðriksson Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.