Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SEX manns björguðust naumlega
út úr brennandi húsi við Suð-
urgötu 27 í Keflavík í fyrrinótt.
Tveir feðgar sem búa á miðhæð
hússins björguðu sér sjálfir út úr
húsinu en fengu væga reykeitrun
og voru þeir fluttir á sjúkrahús.
Fjögurra manna fjölskylda býr
hinsvegar á efri hæð hússins og
voru henni öll sund lokuð þegar
eldurinn magnaðist. Brugðu liðs-
menn Brunavarna Suðurnesja,
sem var með allt tiltækt lið á
staðnum, á það ráð að bjarga fólk-
inu út um glugga. Var stigilagður
upp að húsinu og slapp fjölskyldan
því ómeidd.
Eldurinn kom upp kl. 2.30 í
fyrrinótt í svefnherbergi á miðhæð
hússins, en um er að ræða hálfnið-
urgrafið steinhús. Þegar slökkvi-
liðið kom á staðinn var mikill eldur
í húsinu og ljóst að um alvarlegt
atvik var að ræða þar sem manns-
líf voru í hættu og þyrfti skjót við-
brögð.
„Við reistum stiga upp að glugg-
anum hjá fólkinu og samtímis því
að bjarga fólkinu út var farið í að
berjast við eldinn á miðhæðinni,“
sagði Jón Guðlaugsson varaslökk-
viliðsstjóri Brunavarna Suð-
urnesja. „Það þurfti að brjóta rúð-
ur til að komast að fólkinu en það
gekk nokkuð vel að koma þeim út.
Þarna var um að ræða foreldra
með tvö ung börn, þar af aðeins
nokkurra mánaða gamalt barn.
Það má segja að þetta hafi farið
eins vel og hugsast gat því það var
mikill eldur í húsinu. Feðgarnir
björguðust út af sjálfsdáðum, með
reykeitrun reyndar, en það var
mikill eldur og íbúðin illa farin.“
Til marks um eldsofsann, þá
sprungu rúður í húsinu þegar
slökkviliðið var að mæta á vett-
vang. Íbúar í íbúðunum tveim not-
ast við sama stigagang og útihurð
og segir Jón að fjölskyldan á efri
hæðinni hafi ekki átt neina mögu-
leika á útgöngu með venjulegum
leiðum. Því hafi glugginn verið
notaður sem flóttaleið.
Lögreglan í Keflavík mætti á
staðinn og er rannsóknadeildin að
kanna möguleg upptök eldsins.
Fjölskyldu bjargað naumlega
Komst úr brenn-
andi húsinu með
aðstoð slökkviliðs
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Miklar skemmdir urðu á íbúðinni eftir að eldur kom upp í henni í fyrri-
nótt. Verið er að rannsaka eldsupptök, en ekkert liggur fyrir um þau enn.
KRISTÍN Káradóttir var einbeitt á svip þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti leið framhjá Austur-
bæjarskóla. Hún var að leggja lokahönd á þakið á
kofanum sem hún hefur verið að byggja. En þó að
þakið sé klárt er lokafrágangur oft tímafrekur. Það
vita þeir sem staðið hafa í húsbyggingum. Það má
því allt eins búast við að Kristín verði næstu daga að
mála og laga til í nýja kofanum. Svo er aldrei að vita
nema slegið verði upp veislu.
Á hverju ári eru margir kofar af ýmsum stærðum
og gerðum smíðaðir á smíðavöllum sem Reykjavík-
urborg rekur á nokkrum stöðum í borginni. Krakk-
arnir geta fengið kofana flutta heim á lóð til sín ef
þeir hafa aðstöðu til að koma þeim þar fyrir.
Morgunblaðið/Golli
Kristín leggur lokahönd á kofann
LANDSSAMBAND veiði-
félaga hefur kært til um-
hverfisráðherra þá ákvörðun
Skipulagsstofnunar að fyrir-
hugað þorskeldi AGVA ehf. í
Hvalfirði þurfi ekki að sæta
umhverfismati. Gert er ráð
fyrir 3.000 tonna þorskeldi í
firðinum og hafa veiðifélög
áhyggjur af því að sleppi fisk-
urinn úr kvíunum geti það
leitt til hruns laxastofna í
þeim ám er renna í Hvalfjörð-
inn. Botnsá, Brynjudalsá og
Laxá í Kjós renna allar í
fjörðinn og nemur meðalveiði
í ánum samanlagt um 1600
fiskum ár hvert. Landssam-
bandið telur víst að sleppi
þorskurinn muni hann leita
fæðis í firðinum, m.a. við ósa
ánna sem nefndar eru að
framan, auk þess sem þorsk-
urinn éti laxaseiði. Ef þorsk-
eldið leiði til hnignunar laxa-
stofna á svæðinu telur
landssambandið að gríðarleg-
ir eignarhagsmunir veiðirétt-
areigenda verði fyrir borð
bornir.
Þorskeldi
í Hvalfirði
gagnrýnt
Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is
HÖSKULDUR Ásgeirsson, for-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar, segir málflutning Samtaka
verslunar og þjónustu vera rugl-
ingslegan, en samtökin kærðu ný-
lega rekstur komuverslunar í flug-
stöðinni til eftirlitsstofnunar
EFTA, ESA.
„Í málflutningi þeirra og rök-
stuðningi fyrir þessari leið finnst
okkur þeir vera að rugla saman
heimild ferðamannsins til að kaupa
tollfrjálsan varning, sem er 46 þús-
und krónur í dag, og rekstrarfyr-
irkomulaginu sem eru óskyldir
hlutir. Það finnst okkur vera rugl-
ingsleg framsetning af hálfu Sam-
taka verslunar- og þjónustu.“ Í yf-
irlýsingu frá fyrirtækinu kemur
fram að rekstur verslunar og þjón-
ustu í flugstöðinni sé í samræmi við
lög frá Alþingi og reglur sem
stjórnvöld setja hverju sinni. „Það
er heimildarákvæði í nýjum tolla-
lögum fyrir því að setja reglugerð
fyrir vöruflokka í komuverslunina.
Ég veit ekki betur en sú vinna sé á
lokastigi í fjármálaráðuneytinu.
Það eru ákveðin lög í kringum
rekstur flugstöðvarinnar og síðan
erum við með rekstrarleyfi frá ut-
anríkisráðuneytinu.“
Samkeppni milli flugstöðva
Rök SVÞ fyrir að leggja niður
verslunina á komusvæði Leifs-
stöðvar eru aðalleg þau að þeir telji
það ósiðlegt að ríkið skuli vera í
samkeppni við einkaaðila sem
standa í verslunarrekstri hérlend-
is. Höskuldur sagði svo ekki vera,
samkeppnin væri aðallega við er-
lendar verslanir: „Nei, við teljum
að þessi verslun sé að óverulegu
leyti í samkeppni við innlenda
verslun og ef komuverslun yrði
lögð niður myndi stærsti hluti
þeirrar verslunar sem þar fer fram
færast til útlanda,“ og vísaði því til
sönnunar til Noregs, en þar voru
nýlega sett lög sem heimiluðu frí-
hafnarverslun fyrir komufarþega:
„Þá færðist þessi verslun frá er-
lendum verslunum inn í norskar
flugstöðvar. Það hefur skipt gríð-
arlegu máli fyrir flugstöðina í Ósló,
Gardermoen.“
Auk þess kemur fram í yfirlýs-
ingu flugstöðvarinnar að komufar-
þegar hafi heimild til að kaupa toll-
frjálsan varning að upphæð 46
þúsund krónur og ef farþegi gæti
ekki nýtt sér þessa heimild við
komu til landsins væri næsta víst
að mestur hluti slíkra viðskipta
ætti sér stað erlendis og störfum
við flugstöðina fækkaði að sama
skapi. Rök og reynsla hníga að því
að dæmigerðar fríhafnarvörur á
borð við áfengi, ilmvatn og sælgæti
yrðu keyptar erlendis og fluttar
hingað til lands ef komuverslun í
flugstöðinni yrði lögð af. Því taldi
Höskuldur þennan rökstuðning
vera mjög veikan. „Mér finnst
þessi rökstuðningur mjög veikur
hjá þeim að telja að þetta sé í sam-
keppni við innlenda verslun. Þetta
er fyrst og fremst samkeppni við
erlendar flugstöðvar og erlenda
verslun.“
Flugstöð Leifs Eiríkssonar um kæru SVÞ til ESA vegna komuverslunar
Rök um samkeppni er
veikur rökstuðningur
ALCAN auglýsir um þessar mundir eftir
starfsfólki vegna endurgangsetningar
kera í skála þrjú.
Á vef fyrirtækisins
kemur fram að það
vanti starfsmenn á þrí-
skiptar vaktir í raf-
greiningu.
Fram kemur að við
endurgangsetningu
kera þurfi góðan tíma
fyrir undirbúning og
einnig mikla umönnun
fyrstu sólarhringana á
eftir.
Sökum þessa hafi verið ákveðið að
setja á laggirnar auka vinnuhóp á hverri
vakt í rafgreiningu sem muni alfarið
vinna við endurgangsetningu kera í
skála þrjú.
Er tekið fram að um sé að ræða bæði
framtíðar og tímabundin störf. Allar nán-
ari upplýsingar má nálgast á vef Alcan:
www.alcan.is.
Vantar starfsfólk við
endurgangsetningu
Frá álverinu í
Straumsvík.
FLUGMÁLASTJÓRN kynnti fyrir for-
ystumönnum Félags íslenskra flugumferð-
arstjóra 11. júní sl. mögulegar breytingar
á nýja vaktakerfinu þar sem leitast var við
að koma til móts við óskir flugumferð-
arstjóra, m.a. með því að fjölga fríhelgum
og fækka vöktum. Stjórn FÍF hafnaði
þessum hugmyndum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Flugmálastjórn. Þar segir jafnframt að
viðræður um breytingar á vaktakerfi milli
Flugmálastjórnar og FÍF hafi staðið yfir
frá árinu 1999. Eftir að Flugmálastjórn
taldi ljóst að ekki næðist samkomulag hafi
verið ákveðið fyrr á þessu ári að nauðsyn-
legt væri að gera breytingar á vaktakerfi í
flugstjórnarmiðstöðinni. Tilgangurinn
hafi einkum verið að bæta við mönnun á
álagstímum, laga mönnun betur að flug-
umferð og nýta um leið betur starfskrafta
stofnunarinnar. Þá hafi einnig á síðustu
árum borist ábendingar frá starfsmönnum
um að mönnun á tilteknum tímum sólar-
hringsins sé ekki í samræmi við flug-
umferð og ákveðnar vaktir séu of langar.
Flugmálastjórn bendir á hún sé á leið í
mikið samkeppnisumhverfi og því sé talið
rétt að starfsemin sé löguð að aðstæðum,
en töluverð þróun hafi átt sér stað í ná-
grannalöndum okkar í þá átt að stytta
vaktir flugumferðarstjóra. Á Bretlandi
hafa menn farið þá leið að binda hámarks-
lengd vakta flugumferðarstjóra í lög eða
reglugerð, en samkvæmt þeim mega dag-
vaktir flugumferðarstjóra ekki vera
lengri en 10 klukkustundir og næturvaktir
ekki lengri en 9 klukkustundir. Svipað fyr-
irkomulag er í Noregi.
Höfnuðu tilboði frá
Flugmálastjórn
JÓNAS Garðarsson, fyrrverandi formaður
Sjómannasambands Reykjavíkur, hefur
áfrýjað máli sínu til Hæstaréttar. Jónas
var 6. júní sl. dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í þriggja ára fangelsi fyrir
manndráp af gáleysi fyrir þátt sinn í sjó-
slysinu á Viðeyjarsundi í september á sl.
ári. Jónas hefur alltaf haldið fram sakleysi
sínu og segist ekki hafa verið við stýrið.
„Ég tel mig ekki hafa fengið réttláta
málsmeðferð og þess vegna er þetta gert.
Það er sagt að ég ljúgi því að ég hafi ekki
verið að sigla bátnum en það verður að
sanna það með einhverjum hætti,“ segir
Jónas og bætir við að íslenskir læknar sem
komu fyrir dóminn hafi bent á að hann
gæti ekki hafa verið við stýrið, miðað við
þá áverka sem hann hlaut í slysinu.
Jónas Garðarsson
áfrýjar máli sínu
RÁN í verslun í Mosfellsbæ um síðustu
helgi hefur verið upplýst hjá lögreglunni í
Reykjavík og hefur tveim 18 ára piltum af
þrem verið sleppt úr gæsluvarðhaldi. Sá
þriðji situr enn í haldi en framhaldið verð-
ur ákveðið í dag, föstudag. Fyrir liggur
játning á ráninu sem framið var með hníf
seint á laugardagskvöld síðastliðið. Vegna
málsins voru alls fimm einstaklingar hand-
teknir.
Þá hefur gripdeild og líkamsárásarmál í
verslun við Granda fyrr sama dag verið
upplýst hjá lögreglu.
Ránið í Mosfellsbæ
upplýst hjá lögreglu